Alls hafa 41 Covid-19 smit verið greind á Vesturlandi en ekkert nýtt smit hefur verið greint frá því á þriðjudaginn í síðustu viku. Aðeins 13 eru í sóttkví á Vesturlandi og þrír þeirra eru á Akranesi. Eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan...
Þorpið fékk nýverið styrk frá Akraneskaupstað til þess að þróa þróa útilífs- og ævintýranámskeið fyrir 11 – 12 ára börn. Styrkur úr þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs verður nýttur í þetta verkefni sem verður unnið í samvinnu við Skátafélag Akraness og Björgunarfélag Akraness. Styrkir úr þróunarsjóði...
Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri Knattpspyrnufélags ÍA segir í viðtali á ÍATV að erfið fjárhagsleg staða félagsins sé tækifæri til að taka til í rekstrinum og horfa fram á veginn. Geir tók við framkvæmdastjórastarfinu nýlega. Geir hefur mikla reynslu úr rekstrarumhverfi knattspyrnunnar á Íslandi og var hann...
Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA, var gestur þáttarins „Að koma saman er bannað“ á ÍATV í gær. Í viðtalinu segir Geir ma.a. frá aðdraganda þess að hann tók við starfi framkvæmdastjóra KFÍA og hans sýn á það starf sem er framundan hjá félaginu. Fjárhagsstaða KFÍA...
Fjölmargir Skagamenn tóku þátt í því að hreinsa bæinn í samvinnu við Íþróttabandala Akraness og Akraneskaupstað. „Plokkarar“ á öllum aldri voru út um allt í bænum að tína upp rusl og fegra bæinn. Veðrið lék við Skagamenn í dag eins og sjá má á þessum...
Ekkert nýtt smit var greint í gær af Covid-19 veirunni á öllu Íslandi. Staðan er því óbreytt á Vesturlandi líkt og á fimmtudaginn. Alls hafa 41 Covid-19 smit verið greind á Vesturlandi og eru aðeins 13 í sóttkví á Vesturlandi og þrír þeirra eru á...
Félagsmenn í Golfklúbbnum Leyni tóku saman höndum í gær á vinnudegi klúbbsins. Garðavöllur kemur vel undan vetri og er stefnt að því að opna völlinn formlega í byrjun maí. Pétur Ottesen, formaður Leynis, skrifaði eftirfarandi pistil en staða klúbbsins er að sjálfsögðu óvenjuleg á tímum...
„Ég er án efa með besta útsýnið á Akranesi og víðar þegar ég fer í bað. Málverk eru óþörf þegar maður er með baðkar í bakgarðinum hjá sér,“ segir Gunnar Smári Jónbjörnsson við skagafrettir.is. Sjúkraþjálfarinn og eigandi CrossFit Ægir á Akranesi fór ótroðnaðar slóðir þegar...
Snillingarnir á ÍATV leysa vandamálin sem fylgja samkomubanni og skorti á íþróttaviðburðum á undarlegum tímum Covid-19 með glæsibrag. Í kvöld var Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir í heimsókn þar sem að rætt var um allt á milli himins og jarðar. Helga Ingibjörg er ekki aðeins söngkona í...
Skagamenn á öllum aldri hafa á undanförnum dögum glatt íbúa – og starfsmenn á Höfða með söng. Samkomubann er í gildi og hafa skemmtikraftarnir verið í hæfilegri fjarlægð eins og sjá má á myndunum og í myndbandinu. Í dag kom karlakórinn Svanir í heimsókn. Kórinn...