Það stendur mikið til á næstunni hjá Fasteignasölu Vesturlands á Akranesi. Fyrirtækið hefur verið með skrifstofu á Kirkjubraut 40 s.l. 25 ár. Framundan eru flutningar hjá FastVest en fyrirtækið ætlar ekki að fara langt því nýja skrifstofan verður í rýminu þar sem að tryggingafélagið VÍS...
Karlalið ÍA gerði 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni í Akraneshöllinni í fyrsta leiknum á fotbolti.net mótinu í knattspyrnu. Brynjar Snær Pálsson skoraði fyrsta mark leiksins á 25. mínútu en Guðjón Baldvinsson jafnaði fyrir Stjörnuna á 31. mínútu. Steinar Þorsteinsson kom ÍA yfir á 66. mínútu en...
Kvennalið ÍA sigraði Gróttu örugglega í Faxaflóamótinu í knattspyrnu kvenna 6-0 í Akraneshöllinni. María Björk Ómarsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins strax á 3. mínútu. Sigrún Eva Sigurðardóttir bætti við öðru marki á 22. mínútu, Bryndís Rún Þórólfsdóttir bætti við þriðja markinu á 47. mínútu. Eva...
Miðasalan fyrir Þorrablót Skagamanna hófst í dag í útibúi Íslandsbanka. Að venju var biðröð við opnun miðasölunnar. Samkvæmt upplýsingum úr innsta kjarna Club 71 sem heldur utan um skipulagið á Þorrablóti Skagamanna fór miðasalan vel af stað. Um 500 miðar hafa nú þegar verið seldir...
Útgefendur fjögurra bæjarmiðla lýsa yfir vonbrigðum með þróun fjölmiðlafrumvarps Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í sameiginlegri umsögn sem þeir hafa sent frá sér. Skilafrestur á umsögnum vegna frumvarps til laga um fjölmiðla rennur út í dag. „Við, útgefendur fjögurra bæjarmiðla; Hafnfirðings, Kópavogsblaðsins, Mosfellings og Skagafrétta,...
Áhöfnin á Bjarna Ólafssyni AK 70 mun á næstunni fara í leiðangur í leit að loðnu í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun. Tvö uppsjávarskip, Bjarni Ólafsson AK 70 og Hákon EA, fara í næstu viku til loðnuleitar ásamt rannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni. Ætlunin er að ná mælingu á...
Sundfélag Akraness skorar á bæjaryfirvöld að flýta byggingu 50 metra innilaugar á Akranesi. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að aðstaða félagsins sé langt frá því að vera viðunandi og óskiljanlegt að ný sundlaug færist aftur og aftur neðar á forgangslista bæjaryfirvalda á Akranesi. Tilkynningin...
Skagamaðurinn Eyleifur Ísak Jóhannesson hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð á heimsvísu sem sundþjálfari. „Leifi“ hefur á undanförnum 13 árum þjálfað sundfólk í fremstu röð á heimsvísu hjá danska stórklúbbnum Aalborg Svømmeklub. Í byrjun ársins 2020 gaf Leifi það út að hann...
„ Til að fyrirbyggja allan miskilning. Þá hefur hækkandi aldur okkar í Club 71 eða dvínandi þrek ekkert með það að gera að við séum að hætta að skipuleggja Þorrablót Akurnesinga,“ segir Bryndís Böðvarsdóttir í léttum tón við Skagafréttir. Eins og margir vita hefur árgangur...
Kallabakarí tekur þátt í því að efla heilsuvitund Skagamanna á nýju ári. Framlag fyrirtækisins í upphafi ársins 2020 eru spennandi súrdeigsbrauðtegundir – sem hafa notið mikilla vinsælda. „Súrdeigsbrauðin okkar eru gerð úr lífrænu hveiti og lifandi súr,“ segir Alfreð Karlsson bakari og einn af eigendum...