Það var mikið markaregn í Eistlandi í dag þegar lið ÍA/Kára/Skallagríms gjörsigraði lið Levadia Tallinn í Unglingadeild UEFA. Lokatölur 12-1 og samanlagt 16-1 í báðum leikjunum en fyrri leikurinn fór 4-0 fyrir ÍA/Kára/Skallagrím á Akranesvelli. Staðan var 6-0 í hálfleik og leikmenn 2. flokks ÍA/Kára/Skallagríms...
Í byrjun skólaárs var tekin sú ákvörðun að banna alfarið notkun snjallsíma á skólatíma í Grundaskóla á Akranesi. Um tímabundið bann var að ræða en nú hefur verið tekin sú ákvörðun að bannið verði í gildi þar til annað verður ákveðið. Þetta kemur fram í...
Formlegur fundur með hugsanlegum fjárfestum um uppbyggingu gagnavers á Akranesi fór fram þann 25. september s.l. Þetta kom fram í máli Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar í gær. Fundurinn fór fram í Frístundamiðstöðinni við golfvöllinn á Akranesi. Alls voru 7 einstaklingar á fundinum...
Sameiginlegt lið ÍA/Kára og Skallagríms leikur í dag síðari leikinn gegn Levadia Tallinn í Unglingadeild UEFA. Leikurinn fer fram í Eistlandi og hefst hann kl. 14:30 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á fésbókar og Twittersíðu ÍATV – sjá hér fyrir neðan ÍA...
Nemendur í Grundaskóla stóðu sig svipað og undanfarin ár í samræmdu prófunum í 4. og 7. bekk. Það sem stendur upp úr er að árangur nemenda í Grundaskóla er betri í stærðfræði en á landsvísu. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Grundaskóla. Í íslensku...
Í drögum að samgönguáætlun sem er til umfjöllunar á Alþingi Íslands kemur fram að gert er ráð fyrir 400 milljónum kr. í verkefni sem tengjast Faxabraut á Akranesi. Þetta kom fram í ávarpi Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra í gær í upphafi bæjarstjórnarfundar. Eins og áður...
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir hefur óskað eftir áframhaldandi tímabundnu leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi, eða til 1. september 2020. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar Akraness í dag. Tillaga þess efnis að verða við ósk Gerðar var samþykkt með 7 atkvæðum en 2 bæjarfulltrúar sátu hjá....
Bæjarstjórn Akraness fjallaði um málefni FVA á fundi sínum í dag. Eins og fram hefur komið hafa kennarar í Fjölbrautaskóla Vesturlands lýst yfir vantrausti á skólameistara FVA, Ágústu Elínu Ingþórsdóttur. Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) hafa hvatt yfirvöld menntamála til að...
Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir hafa á undanförnum árum byggt upp hrossræktarbúið Skipaskaga við sveitabæinn Litlu-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit. Skipaskagi er í fremstu röð á sviði hrossaræktar og er búið tilnefnt til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, sem ræktunarbú ársins 2019. Alls komu 30 slík hrossaræktarbú til...
Nú stendur yfir bein útsending frá fundir bæjarstjórnar Akraness. Fundurinn hófst kl. 17.00, þriðjudaginn 22. október. Hægt er að horfa á útsendinguna hér fyrir neðan.