Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, var í viðtali í síðdegisþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar fór Sævar Freyr yfir þá hluti sem snúa að Akraneskaupstað vegna fyrirhugaðra vegaframkvæmda á Kjalarnesi. Eins og kunnugt hefur Skipulagsstofnun ákveðið að framkvæmdir við 2+1 veg á Kjalarnesi...
Bæjarráð Akraness hefur falið bæjarstjóra að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar um að breikkun Vesturlandsvegar í 2+1 veg sé háð mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdin hefur afar jákvæð samfélagsleg áhrif vegna bætts umferðaröryggis og er ætlað að taka á lífshættulegum aðstæðum sem vegfarendum er boðið upp á sem...
Niðurrifi er lokið á Sementsreitnum á Akranesi og gríðarleg breyting er á svæðinu eftir framkvæmdirnar sem hafa staðið þar yfir undanfarin misseri. Þrátt fyrir allt niðurrifið voru framkvæmdir í gangi í morgun þegar Skagafréttir litu þar við í veðurblíðunni í morgun. Búið er að ganga...
Aðsend grein frá Halldóri Jónssyni, íbúa á Akranesi: Ákvörðun Skipulagsstofnunar, að breikkun þjóðvegar um Kjalarnes skuli sæta mati á umhverfisáhrifum, er með miklum ólíkindum og eru landsmenn þó ýmsu vanir úr þeirri áttinni á undanförnum árum. Að eðlileg framþróun og löngu tímabær breyting á þjóðvegi...
Skagamaðurinn Jón Gísli Eyland Gíslason verður í U-18 ára landsliði Íslands í knattspyrnu í tveimur vináttuleikjum sem fram fara í júlí. Leikirnir fara fram 19. og 21. júlí – og eru þeir báðir í Riga í Lettlandi þar sem Ísland mætir heimamönnum. Þorvaldur Örlygsson, fyrrum...
Kötturinn Birta frá Akranesi er til umfjöllunar á stærstu fréttmiðlum Íslands. Birta týndist hér á Akranesi fyrir fjórum dögum. Kötturinn fannst í gær í Kársnesi í Kópavogi. Hulda Guðbjörnsdóttir, segir í samtali við Fréttablaðið að málið sé allt hið dularfyllsta. Hulda er eigandi kattarins Birtu....
Ragnheiður Runólfsdóttir hefur á undanförnum árum verið þjálfari hjá Sundfélaginu Óðni á Akureyri. Skagakonan ætlar nú að söðla um og hefur hún ráðið sig sem yfirþjálfara hjá einu stærsta sundfélagi Svíþjóðar. Það er blaðamaðurinn Skapti Hallgrímsson á Akureyri sem greindi frá þessu. Félagið heitir SO2...
Álmaðurinn fer fram miðvikudaginn 24. júlí á Akranesi en um er að ræða keppni í þríþraut. Keppnin fer fram í og við helstu náttúruperlur Akraness. Keppt er í hjólreiðum, fjallgöngu/hlaupi, og sjósundi. CrossFit Ægir á Akranesi stendur á bak við keppnina í ár og sér...
Arnór Sigurðsson skoraði þrennu í dag í æfingaleik með CSKA Moskvu gegn Rubin Kaza. Bæði liðin leika í efstu deild í Rússlandi. Skagamaðurinn skoraði fyrsta markið á 14. mínútu, og hann bætti við tveimur mörkum með stuttu millibili þegar um 10 mínútur voru eftir leiknum....
Bæjarráð Akraness fjallaði á fundi sínum þann 3. júlí 2019 um skýrslu starfshóps um Sundabraut. En starfshópur um Sundabraut hefur lokið störfum og skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sundabraut hefur verið til skoðunar um árabil og hafa bæjaryfirvöld á Akranesi og Samtök sveitarfélaga á...