• 2023

    Öldungaráð verður stofnað hjá Akraneskaupstað á næstunni. Sveitarfélög eiga að koma slíkum ráðum á laggirnar samkvæmt breytingum á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sem tóku gildi þann 1. okt. 2018. Öldungaráðum er fyrst og fremst ætlað að vera formlegur vettvangur fyrir samráð við notendur um öldrunarþjónustu....

  • 1628

    Starfsmenn áhaldahúss bæjarins vinna nú hörðum höndum við að salta stíga og helstu íbúagötur bæjarins. Byrjað verður að salta við stofnanir og í framhaldinu farið um íbúagötur bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Veðurspá næstu daga bíður upp á hlýnandi veður en fer...

  • Aníta Ólafsdóttir, leikmaður ÍA, er í U17 ára landsliði kvenna sem mætir Írum í tveimur vináttuleikjum 18. og 20. febrúar n.k. Báðir leikirnir fara fram í Kópavogi, sá fyrri kl. 18.00 í Fífunni og sá síðari kl. 12.00 í Kórnum. Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari...

  • 2301

    Öll leyfi eru í höfn varðandi niðurrif Sements­stromps­ins. Sævar Freyr Þráinsson segir í samtali við mbl.is að beðið sé færis með framkvæmdina og þar leikur veðrið stórt hlutverk. Strompurinn verður sprengdur en hann mun ekki falla til jarðar í heilu lagi. Fyrst verður efri hluti...

  • 3399

    Spennuþættirnir Ófærð hafa vakið mikla athygli og eru margir sem horfa á þáttinn. Í 8. þætti sem sýndur var í kvöld kom Akranes við sögu sem leikmynd í lokaatriði þáttarins. Þar gekk mikið á. Lögreglumaður úr þættinum ætlaði að hitta grunsamlegan einstakling við leikvöll sem...

  • Einn Skagamaður verður í stjórn Knattspyrnusambands Íslands á næsta starfsári. Gísli Gíslason verður áfram í stjórn KSÍ en 73. ársþing KSÍ fór fram um liðna helgi á Hótel Nordica Reykjavík. Guðni Bergsson var þar endurkjörinn sem formaður KSÍ til næstu tveggja ára. Hann hafði mikla...

  • 2662

    Akranesviti er mjög vinsæll sem myndefni hjá áhuga – og atvinnuljósmyndurum. Þessa mynd tók Andrea Heribanova og birti hún myndina á Instragram reikningi sínum. Myndin er flott og hefur vakið athygli víða. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem teknar hafa verið á Akranesi á...

  • Skagamenn náðu frábærum árangri á Íslandsmóti unglinga í keilu. Jóhann Ársæll Atlason ÍA fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í opnum flokki. Jóhann sigraði Steindór Mána Björnsson úr ÍR í úrslitum með samtals 372 pinnum gegn 359. Jóhann Ársæll varð einnig í öðru sæti í 1. flokki pilta. Sindri Már...

  • 2281

    „Það hafa orðið alvarleg slys vegna snjóflóða til dæmis í Esjunni og við hjá Björgunarfélagi Akraness viljum síður að það gerist. Hvetjum við því alla ferðamenn til þess að meta aðstæður rétt, hafa réttan búnað meðferðis og kunna að nota hann,“ segir í færslu á...

  • 2698

    Ársþing Knattspyrnusambands Íslands stendur nú yfir í Reykjavík. Skagamenn fengu viðurkenningu í dag þegar Guðni Bergsson formaður KSÍ afhenti Halldóri Breiðfjörð Dómarverðlaun KSÍ 2018. Hjá ÍA er starfandi öflugt dómarafélag, Knattspyrnudómarafélag Akraness (KDA), sem stofnað var árið 1970 og er því orðið 49 ára gamalt....

Loading...