Starfsmenn Spalar hafa nú greitt viðskiptavinum félagsins liðlega helming þeirra fjármuna sem þeir áttu á áskriftarreikningum sínum (andvirði ónotaðra ferða á veglykli) þegar ríkið tók við rekstri Hvalfjarðarganga 1. október sl. eða um 120 milljónir króna af alls 231 milljón króna, sem var staðan í...
Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni, hefur leik á fimmtudaginn á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar. Mótið heitir Andalucia Costa del Sol Open Espana og verður leikið á La Quinta vellinum. Íþróttamaður Akraness 2017 er í 33. sæti á stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Valdís Þóra er örugg með...
Skagamenn voru áberandi á meistaramóti Badmintonfélags Hafnarfjarðar sem fram fór um helgina. Mótið er hluti af mótaröð Badmintonsambandsins og gefur stig á styrkleikalista sambandsins. Skagamaðurinn Brynjar Már Ellertsson sigraði í öllum þremur greinunum sem hann tók þátt í. Hann sigraði m.a. í tvenndarleik þar sem...
„Landsmenn góðir. Komið er að LOKAÚTKALLI vegna skila veglykla og afsláttarmiða! Mörg ykkar eigið fjármuni inni hjá Speli og við viljum að sjálfsögðu borga! Allra síðasti dagur til að skila er 30. nóvember 2018,“ segir í tilkynningu frá Speli. Þeir sem koma því við að...
Haustmót FSÍ í hópfimleikum fór fram í gær í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Meistaraflokkur kvenna frá ÍA gerði sér lítið fyrir og sigraði í sínum flokki. Sýnt var beint frá mótinu á ÍA TV og hér má sjá samantekt frá æfingum mfl. ÍA sem tryggði liðinu...
Það er nóg um að vera í íþróttalífinu í íþróttabænum Akranesi um helgina 17.-18. nóvember. Fimleikar, Íslandsmót í línuklifri og fjöldi knattspyrnuleikja í Akraneshöllinni. Haustmót í fimleikum: Í íþróttahúsinu við Vesturgötu fer fram Haustmót í hópfimleikum. Keppt verður í fjölmörgum flokkum og í fyrsta sinn...
Bæjarstjórn Akraness áréttar að mjög brýnt er að flýta framkvæmdum á Kjalarnesi þar sem ástand vegarins er með öllu óásættanlegt og öryggi vegfarenda er teflt í hættu. Daglega fara um veginn þúsundir bíla og sífellt eykst fjöldi óöruggra vegfarenda sem fara um veginn. Brýnt er...
Í gær var greint frá því hvaða fyrirtæki eru framúrskarandi á Íslandi að mati CreditInfo. Greining Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum er nú unnin í níunda sinn. Aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til að komast á listann. Fyrirtækin þurfa að...
Í kvöld leikur Ísland gegn Belgíu á útivelli í Þjóðadeild karlalandsliða í knattspyrnu. Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson, leikmaður CSKA Moskvu, er í leikmannahópnum. Leikurinn hefst kl. 19.45 í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 19 ára gamli leikmaður fær tækifæri að leika með A-landsliði...
Feðgarnir Sævar Jónsson og Emil Kristmann Sævarsson tóku í dag við viðurkenningu þess efnis að fyrirtæki þeirra, Blikksmiðja Guðmundar, er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi. Það er Creditinfo sem veitir viðurkenninguna. Aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til að...