Rótarýfélagar á Akranesi unnu hörðum höndum í gær við að lagfæra stíga í Selbrekku í Akrafjalli. Skipt var um gömul og lúin þrep og ný sett í staðinn. Eins og sjá má á þessum myndum sem Jens Baldursson tók þá lögðu félagarnir allt í verkið. Við...
Farsímafyrirtækið Nova stendur fyrir tónleikum neðan við Stein á Esjunni en tónleikarnir áttu að fara fram í kvöld, fimmtudaginn 8. júní klukkan 18.00. Tónnleikunum hefur verið frestað fram til morgundagsins vegna hvassviðris á Esjunni. Úrvalslið listamanna kemur fram á tónleikunum en plötusnúðurinn Þura Stína sér...
Ekkert verður af komu skemmtiferðaskipsins To Callisto en gert var ráð fyrir 14 heimsóknum skipsins í sumar í Akraneshöfnina. Skipið bilaði á leiðinni og er komið til Panama í viðgerð. Variety Cruises, sem rekur þetta skip, hefur því afbókað allar komur skipsins til Íslands segir...
„San Marínó er frábært land, fallegt og með einstaka menningu. Það var frábær upplifun að fá tækifæri með sundlandsliðinu á Smáþjóðaleikunum og hópurinn sem ég var með gerði þessa ferð ógleymanlega,“ segir sundmaðurinn úr ÍA Ágúst Júlíusson sem var fyrirliði íslenska landsliðsins í sundi á...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni og íþróttamaður Akraness 2016, var hársbreidd frá því að komast inn á Opna bandaríska meistaramótið eftir úrtökumót á Englandi. Valsdís lék á einu höggi yfir pari vallar á 36 holum og komst hún í þriggja manna bráðabana um tvö...
Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi 26. maí s.l. ósk listamanns þess efnis að mála vegg Sementsverksmiðjunnar. Í erindi listamannsins óskaði hann efitr því að mála einn vegg sem snýr að Faxabraut, nánar tiltekið frá listaverki Guttorms og út að enda veggjarins í austur. Á veggnum...
Tveir Skagamenn verða í U-21 árs landsliði Íslands sem keppir gegn Englendingum ytra þann 10. júní. Tryggvi Hrafn Haraldsson og Albert Hafsteinsson verða í liðinu en um er að ræða vináttuleik. Eyjólfur Sverrisson er þjálfari liðsins og Tómas Ingi Tómasson er aðstoðarþjálfari. Albert, sem hefur leikið...
Tryggvi Björnsson missir varla úr dag þegar kemur að því að synda og hann mætir stundvíslega kl. 6 á hverjum morgni í Jaðarsbakkalaug. Starfsfólk Jaðarsbakkalaugar og fjölskyldumeðlimir tóku vel á móti Tryggva í morgun þegar hann mætti að venju til þess að synda. Tryggvi fagnar...
Golfklúbburinn Leynir mun ganga til samninga við Akraneskaupstað um verkefnið Frístundamiðstöð við Garðavöll. Tillaga þess efnis var samþykkt á fjölmennum félagsfundi sem fór fram í gær í klúbbhúsi Leynis. Á fundinum voru lagðar fram tillögur sem stjórn Leynis hefur unnið að undanfarin tvö ár. Akraneskaupstaður...
Sæferðir hafa samið við norskt fyrirtæki um leigu á farþegaferjunni Tedno vegna fyrirhugaðra ferjusiglinga á milli Akraness og Reykjavíkur í sumar. Á kynningarfundi sem fram fór s.l. föstudag á Akranesi sögðu Gunnlaugur Grettisson framkvæmdastjóri Sæferða og Ólafur William Hand upplýsinga- og markaðsstjóri Eimskipa frá helstu staðreyndum í...