Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson hefur byrjað tímabilið vel í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með Silkeborg. Lið hans lék sinn fjórða leik á tímabilinu um liðna helgi og þar sigraði Silkeborg 3-1 gegn Álaborg. Stefán Teitur lagði upp eitt marka liðsins og var lykilmaður í leik liðsins á miðsvæðinu. Stefán Teitur var valinn í lið umferðarinnar...
Dýralækningastofa hefur ekki verið starfrækt á Akranesi frá því að Dagmar Vala Hjörleifsdóttir opnaði stofu á haustmánuðum árið 1987. Hún var sú fyrsta sem opnaði dýralækningstofu á Akranesi, samkvæmt heimildum sem gefnar eru upp í Skagablaðinu árið 1987. Dagmar starfaði við fag sitt á Akranesi um nokkurra ára skeið. Nánar í viðtali við Dagmar hér....
Unnur Ýr Haraldsdóttir stimplaði sig inn í 200 leikja klúbbinn hjá Knattspyrnufélagi ÍA í gær. Þá lék hin 28 ára gamla Unnur Ýr sinn 200. leik í 3-1 sigri ÍA gegn Knattspyrnufélaginu Hlíðarenda á Íslandsmótinu í 2. deild. Framherjinn hefur skoraði 78 mörk í þessum 200 leikjum – og þá eru aðeins taldir KSÍ leikir....
Keppendur verða með mörg járn í eldinum á Norðurlandameistaramótinu í eldsmíði sem fram fer á Akranesi við Byggðasafnið í Görðum dagana 11.-14. ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu. Keppendur og dómarar koma frá Íslandi, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku í öllum keppnisgreinum. Helstu markmið mótsins er að viðhalda áhuga og þekkingu á hinu forna handverki...
Skagamaðurinn Daníel Ingi Jóhannesson er í U-15 ára landsliðshóp Íslands sem leikur æfingaleiki gegn Færeyjum dagana 15.-19. ágúst. Alls verða leiknir tveir leikir en Skagamaðurinn Lúðvík Gunnarsson er þjálfari liðsins Daníel Ingi er fæddur árið 2007 og lék hann sinn fyrsta meistaraflokksleik á Íslandsmótinu á dögunum með ÍA – og er þar með yngsti leikmaðurinn...
Skagamaðurinn Stefán Gísli Örlygsson var í landsliði Íslands sem náði silfurverðlaunum á Norðurlandamótinu í haglabyssugreininni Skeet. Stefán Gísli er ríkjandi Íslandsmeistari í greininni. Liðið skipa þeir Hákon Þ. Svavarsson, sem varð á mótinu fyrsti Íslendingurinn til að hampa Norðurlandameistaratitli í skotfimi í einstaklingskeppninni í Skeet, Stefán Gísli Örlygsson, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í greininni, og...
Fyrirtækið Löður hefur sótt um að setja upp sjálfvirka bílaþvottastöð við bensínafgreiðslu Orkunnar við Skagabraut 43. Umsóknin var samþykkt í bæjarráði Akraness á fundi ráðsins þann 27. júlí s.l. Fyrirhuguð breyting er fólgin í að bætt verður við lóðina tveimur byggingareitum, annars vegar fyrir geymsluskúr sem fyrir er á lóðinni og hins vegar fyrir bílaþvottastöð....
Það var fjölmennt lið leikmanna úr röðum ÍA sem tók þátt á alþjóðlega knattspyrnumótinu ReyCup sem fram fór dagana 20.-24. júlí s.l. Alls tóku 9 lið frá ÍA þátt og var uppskeran og árangurinn góður. Kvennalið ÍA í 3. flokki stóð uppi sem ReyCup meistari og gullverðlaun. Varnarleikur liðsins var frábær og fékk liðið aðeins...
Blikkverk s/f hefur hætt rekstri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Þökkum fyrir tímann sem gátum starfað á lóðinni okkar Dalbraut 2 Akranesi þar sem við sköpuðum störf og gjaldeyri fyrir samfélagið til margra ára.Það er þyngra en tárum taki að kveðja ævistarfið og viðskiptavini okkar.Með einlægri von um að stjórnendur Akraneskaupstaðar temji sér...
Tvö stór vegglistaverk eru í vinnslu á Akranesi og er verkefnið tengt 80 ára afmæli Akraneskaupstaðar. Alls er gert ráð fyrir að sex slík vegglistaverk verði máluð í sumar og eru þessi tvö þau fyrstu í röðinni. Um er að ræða samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar, listamanna, Elkem, Faxaflóahafna, Norðuráls, Upprisu og Húsasmiðjunnar. Á gafli Hafbjargarhússins á Breiðinni...