• Bára Daðadóttir, sem setið hefur í bæjarstjórn Akraness undanfarin fjögur ár mun ekki gefa kost á sér á lista Samfylkingarinnar í næstu kosningum sem fram fara í maí á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Bára sendi frá sér á fésbókarsíðu sinni. Bára skipaði þriðja sætið á lista Samfylkingarinnar í kosningunum 2018. „Undanfarin...

  • Einn leikmaður úr röðum ÍA er í U-16 ára landsliðshóp kvenna sem mætir Sviss í tveimur vináttuleikjum í knattspyrnu síðar í þessum mánuði. Magnús Örn Helgason er þjálfari U16 kvenna og valdi hann alls 20 leikmenn í þetta verkefni. Markvörðurinn bráðefnilegi úr röðum ÍA, Salka Hrafns Elvarsdóttir, er í liðinu. Leikirnir fara báðir fram í...

  • Færeyski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Kaj Leo í Bartalsstovu, hefur samið við karlalið ÍA. Fréttavefurinn fotbolti.net greindi fyrst frá en Knattspyrnufélag ÍA sendi frá sér tilkynningu í kjölfarið þar sem að frétt fobolti.net var staðfest. Kaj Leo er vel þekkt stærð í íslenskum fótbolta en hann hefur leikið á Íslandi allt frá árinu 2016, með FH,...

  • Bæjarráð Akraness hefur samþykkt erindisbréf fyrir stýrihóp sem mun leggja fram tillögur vegna uppbygginar á framtíðarhúsnæði fyrir vinnuhluta Fjöliðjunnar, Búkollu og áhaldahúss Akraneskaupstaðar. Í fundargerð bæjarráðs kemur fram að byggja eigi nýtt hús við Kalmansvelli 5 – og mun starfssemi vinnuhluta Fjöliðjunnar, Búkollu og áhaldahúss vera í þessu nýja húsi. Velferðar- og mannréttindaráð Akraness hafði...

  • Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum í gær að gera leigusamning til þriggja ára fyrir Fjöliðjuna að Smiðjuvöllum 28. Leigusamningur er gerður við Línuvélar ehf. og tekur leigusamningurinn gildi þann 1. maí 2022 og út febrúarmánuð 2025. Bæjarráð samþykkti einnig að fela bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins og undirritun samningsins. Bæjarstjórn Akraness á eftir að samþykkja...

  • Tveir Skagamenn hafa gefið kost á sér í stjórn – og varastjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ. Kosið verður í ýmis embætti hjá KSÍ á ársþinginu sem fram fer þann 26. febrúar á Ásvöllum í Hafnarfirði. Bráðabirgðastjórn KSÍ var skipuð þann 2. október og sex af átta aðilum úr þeirri stjórn óska eftir endurkjöri. Pálmi Haraldsson býður...

  • Tveir leikmenn úr röðum ÍA eru í æfingahóp U-19 ára landsliðs karla í knattspyrnu sem kemur saman til æfinga helgina 21.-23. febrúar. Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari liðsins en liðið undirbýr sig fyrir milliriðla í undankeppni EM 2022. Þar er Ísland í riðli með Rúmeníu, Georgíu og Króatíu og fer riðillinn fram dagana 23.-29. mars....

  • Karlalið ÍA lagði Þór frá Akureyri nokkuð örugglega, 3-1, í fyrstu umferð Lengjubikarkeppni KSÍ, um liðna helgi. Leikurinn fór fram við fínar en ískaldar aðstæður í Akraneshöllinni. Steinar Þorsteinsson kom ÍA yfir með flottu marki á 5. mínútu, og varnarmaðurinn Alexander Davey bætti við öðru marki á 34. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Elmar Þór...

  • Kári og Augnablik áttust við í leik um þriðja sætið í C-deild fotbolti.net mótsins s.l. föstudag. Leikurinn fór fram við fínar en ískaldar aðstæður í Akraneshöllinni. Augnablik, sem er venslalið Breiðabliks úr Kópavogi, komst yfir í leiknum en Káramenn skoruðu þrjú mörk í kjölfarið sem tryggði sigurinn. Mörk Kára skoruðu Andri Júlíusson, Ingimar Elí Hlynsson...

  • Skagamaðurinn Oliver Stefánsson, sem er samningsbundinn sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping, hefur skrifað undir samning við ÍA út leiktíðina 2022. Um er að ræða lánssamning og verður varnarmaðurinn efnilegi í herbúðum ÍA út keppnistímabilið í efstu deild karla sem hefst í apríl á þessu ári. Oliver samdi við Norrköping í lok ársins 2018, á sama tíma og...

Loading...