• Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is mun Íþróttabandalag Akraness hætta sem rekstraraðili líkamsræktar í íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum. Akraneskaupstaður mun taka yfir rekstur líkamsræktarinnar og jafnframt kaupa eignarhluta ÍA í mannvirkjunum á Jaðarsbökkum. Í samkomulagi Akraneskaupstaðar og ÍA fær félagið 15 milljónir kr. á ári næstu fimm árin og er greiðslan verðtryggð. ÍA fær...

  • Áhaldahús Akraneskaupstaðar við Laugarbraut og endurvinnsla Fjöliðjunnar verða sameinuð undir einu þaki á næstu misserum í nýju húsi. Tillaga þess efnis var samþykkt á síðasta fundi bæjarstjórnar Akraness. Áhaldahúsið við Laugarbraut er í húsnæði sem var áður slökkviliðsstöð. Áhaldahúsið er m.a. miðpunktur í starfi vinnuskóla Akraness yfir sumartímann og þar er einnig hjartað í daglegum...

  • Tryggvi Bjarnason er nýr formaður barnaverndar á Akranesi. Tillaga þess efnis var samþykkt á síðasta fundi bæjarstjórnar. Á fundinum kom fram beiðni frá Sigrúnu Guðnadóttur þar sem hún óskaði eftir lausn frá störfum sem formaður barnaverndarnefndar. Barnaverndarnefnd Akraness er því þannig skipuð: Tryggvi Bjarnason, formaðurRagnheiður Stefánsdóttir (S) varaformaðurGuðríður Haraldsdóttir (S) aðalmaðurHafrún Jóhannesdóttir (D) aðalmaðurHildur Karen...

  • Nýverið fór fram Akranesmeistaramótið í pílukasti þar sem að keppnisfyrirkomulagið var Cricket. Alls tóku tíu félagar í Pílufélagi Akraness þátt í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Félagið er með aðstöðu í kjallara íþróttahússins þar sem að Keilufélagið er einnig með aðstöðu. Til úrslita kepptu Sigurður Tómasson og Sigurður Hafsteins Guðfinnsson (Diddi). Sá fyrrnefndi er ríkjandi Akranesmeistari Pílufélagsins...

  • Kristín Þórhallsdóttir og Viktor Samúelsson eru kraftlyftingakona og -karl ársins 2021. Það var ákveðið á stjórnarfundi Kraftlyftingasambands Íslands sem fram fór í gær 14. des. Kristín, sem er íþróttamaður Akraness 2020, mun því koma til greina í valinu á íþróttamanni ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna í lok þessa árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu...

  • „Skaginn syngur inn jólin“ er skemmtilegt tónlistarverkefni sem Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir settu á laggirnar í fyrsta sinn í fyrra. Þau hafa nú ýtt þessu verkefni úr vör annað árið í röð þar sem að Skagamenn eru líkt og áður í aðalhlutverki í tónlistaratriðum. Alls er 24 tónlistaratriði á dagskrá og verður einn...

  • Nýverið var fjallað er um áhugavert verkefni í Hvalfjarðarsveit í þættinum Að Vestan á sjónvarpsstöðinni N4. Þar hafa fermingarsystkin verið drifkrafturinn í endurbótum á Innra-Hólmskirkju. Á næsta ári verða 130 liðin frá því að kirkjan var byggð og er stefnt að því að endurbótum verði lokið fyrir þann tíma. Kirkjan var ekki í góðu ástandi...

  • Akraneskaupstaður skrifaði fyrsta kaflann í stafrænni húsnæðisáætlun hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun. Akranes er fyrsta sveitarfélagið sem skilar inn stafrænni húsnæðisáætlun HMS. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Nánar á vef Akraneskaupstaðar. Megin markmið með gerð húsnæðisáætlana er því að stuðla að auknu húsnæðisöryggi heimilanna og draga fram mynd af því hver staða húsnæðismála er...

  • Bæjarstjórn Akraness hefur hætt við áform um að reisa nýtt hús á opnu svæði í Jörundaholti sem mun nýtaast sem húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. Þessi nýbygging átti að vera á einni hæð og átti jafnframt að falla vel að núverandi byggð. Þessi áform féllu ekki í góðan jarðveg hjá mörgum íbúum á Akranesi og þá...

  • Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum í gær að hefja uppbyggingu á Samfélagsmiðstöð á Dalbrautarreit þar sem að ýmis starfssemi verður sameinuð í nýrri byggingu. Hætt hefur verið að gera upp húsnæði Fjöliðjunnar, vinnu – og hæfingarstað, sem skemmdist mikið í bruna í maí 2019. Þess í stað verður nýtt mannvirki reist á lóðum við...

Loading...