Tveir leikmenn úr röðum ÍA eru í æfingahóp U-19 ára landsliðs karla í knattspyrnu sem kemur saman til æfinga helgina 21.-23. febrúar. Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari liðsins en liðið undirbýr sig fyrir milliriðla í undankeppni EM 2022. Þar er Ísland í riðli með Rúmeníu, Georgíu og Króatíu og fer riðillinn fram dagana 23.-29. mars....
Karlalið ÍA lagði Þór frá Akureyri nokkuð örugglega, 3-1, í fyrstu umferð Lengjubikarkeppni KSÍ, um liðna helgi. Leikurinn fór fram við fínar en ískaldar aðstæður í Akraneshöllinni. Steinar Þorsteinsson kom ÍA yfir með flottu marki á 5. mínútu, og varnarmaðurinn Alexander Davey bætti við öðru marki á 34. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Elmar Þór...
Kári og Augnablik áttust við í leik um þriðja sætið í C-deild fotbolti.net mótsins s.l. föstudag. Leikurinn fór fram við fínar en ískaldar aðstæður í Akraneshöllinni. Augnablik, sem er venslalið Breiðabliks úr Kópavogi, komst yfir í leiknum en Káramenn skoruðu þrjú mörk í kjölfarið sem tryggði sigurinn. Mörk Kára skoruðu Andri Júlíusson, Ingimar Elí Hlynsson...
Skagamaðurinn Oliver Stefánsson, sem er samningsbundinn sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping, hefur skrifað undir samning við ÍA út leiktíðina 2022. Um er að ræða lánssamning og verður varnarmaðurinn efnilegi í herbúðum ÍA út keppnistímabilið í efstu deild karla sem hefst í apríl á þessu ári. Oliver samdi við Norrköping í lok ársins 2018, á sama tíma og...
Dróni er ómannað loftfar sem er fjarstýrt, því er flogið með notkun fjarstýribúnaðar. Gísli Jens Guðmundsson hefur á undanförnum mánuðum tekið fjölmargar ljósmyndir af Akranesi með slíku loftfari. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr safni „Gísla Rakara“ sem hann tók í vetrarblíðunni í gær á Akranesi. Akranes 2022. Mynd/Gísli G. Akranes 2022. Mynd/Gísli G....
Keppnislið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hefur farið af stað með látum í spurningakeppni Gettu betur – spurningakeppni framhaldskólanna. FVA hefur sigrað í fyrstu tveimur viðureignunum og er komið alla leið í 8-liða úrslit. Búið er að draga í 8-liða úrslitum. FVA keppir gegn liði Fjölbrautaskóla Garðabæjar, og fer sú keppni fram föstudagskvöldið 11. febrúar 2022...
Snemma í morgun kom Bjarni Ólafsson AK 70 til Neskaupstaðar með fyrsta loðnufarminn sem þangað berst á vertíðinni sem veiddur er í nót. Þetta kemur fram í færslu á fésbókarsíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Fram til þessa hafa loðnuskipin veitt í flotvörpu en nú eru þau að taka grunnnætur og flotvörpuveiðunum að ljúka. Barði NK er...
Í dag var dregið í forkeppni í Mjókurbikarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu. Karlalið ÍA, sem lék til úrslita gegn Víkingum úr Reykjavík, þarf ekki að taka þátt í forkeppninni og verður liðið í „hattinum“ þegar dregið verður í 32-liða úrslitum keppninnar. Kvennalið ÍA mætir liði Fjölnis úr Grafarvogi í forkeppninni og fer sá leikur...
Auglýsing Í tímavélinni förum við aftur til ársins 2006 þar sem mikið var um að vera á Langasandi á Akranesi. Tímarnir hafa breyst mikið eins og sjá má á þessum myndum sem Skagafréttir tóku þann 18. október 2006. Reyk lagði úr báðum skorsteinunum við Sementsverkssmiðjuna og fiskimjölsverksmiðju HB Granda. Vélhjólaíþróttaklúbburinn (VÍK) og Vélíþróttaklúbbur Akraness héldu...
Margir Skagamenn muna eftir hinni einu sönnu Axelsbúð, eða Veiðafæraverslun Axels Sveinbjörnssonar. Hér fyrir neðan eru fróðlegir þættir sem teknir voru upp þegar Axelsbúð hætti vorið 2005. Rætt við Axel Gústafsson en afi hans stofnaði verslunina á sínum tíma og starfaði Axel í búðinni í þrjá áratugi. Auglýsing