Bæjarráð Akraness hefur samþykkt rekstrarleyfi fyrir gistiheimil sem verður með rými fyrir 26 gesti að Stillholti 23 á Akranesi. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs. Akranes Guesthouse er nafnið á gistiheimilinu í umsókninni. Fyrirtækið NH-2 ehf. er umsóknaraðilinn og Sigurður Sigurgeirsso er forsvarsmaður. Umsagnir slökkviliðsstjóra og byggingarfulltrúa Akraneskaupstaðar liggja fyrir. Í fundargerð bæjarráðs, segir enn...
Nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi tóku nýverið þátt í könnun þar sem að um 100 nemendur svöruðu ýmsum spurningum um skólastarfið. Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að nemendur óska eftir forvarnarfræðslu og eru stress, kvíði og streitustjórnun ofarlega á lista yfir umfjöllunarefni. Þetta kemur fram á vef FVA. Aukið aðgengi að orkudrykkjum var einnig...
Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is skoraði Ísak Bergmann Jóhannesson mark fyrir danska stórliðið FCK Kaupmannahöfn í Sambandsdeild Evrópu, UEFA. Markið skoraði Skagamaðurinn í 4-0 sigri á útivelli gegn Lincoln Red Imps frá Gíbraltar. Ísak Bergmann lagði einnig upp tvö mörk í leiknu og annar Skagamaður, Hákon Arnar Haraldsson, lagði upp fyrsta mark...
Karlalið ÍA í körfuknattleik, sem leikur í næst efstu deild Íslandsmótsins, hefur nú leikið 10 leiki í deildarkeppninni. ÍA er enn án sigurs en þar fyrir ofan er lið Hamars úr Hveragerði með 2 sigra og 8 tapleiki. ÍA tók sæti í næst efstu deild rétt áður en Íslandsmótið hófst þar sem að lið Reynis...
Kristrún Bára Guðjónsdóttir frá Karatefélagi Akraness fagnaði Norðurlandameistaratitli í hópkata um helgina. Mótið fór fram í Stavanger í Noregi. Keppt var í þriggja manna liðum og með sigrinum lauk 9 ára bið Íslands eftir Norðurlandameistaratitli í þessari grein. Móey María Sigþórsdóttir McClure frá Breiðablik og Freyja Stígsdóttir frá Þórshamri skipuðu íslenska liðið ásamt Kristrúnu Báru....
Það var mikið um að vera í íþróttahúsinu við Vesturgötu um s.l. helgi þar sem að Meistaramót ÍA í badminton fór fram. Mótið hét áður Atlamótið en sú breyting var gerð að á Meistaramóti ÍA er nú keppt um Atlabikarinn í einliðaleik í úrvalsdeild og í tvíliðaleik í úrvalsdeild er keppt um Harðarbikarinnar. Atlabikarinn er...
Samningar um innanhússfrágang í nýjum leikskóla, Garðasel, við Asparskóga 25 voru undirritaðir s.l. föstudag. Verkefnið er stórt og alls bárust fimm tilboð í verkið. Akraneskaupstaður hefur nú samið við fyrirtækið E. Sigurðsson. Verkið var boðið út af Batteríinu arkitektum ehf fyrir hönd Akraneskaupstaðar. Eins og áður segir átti E. Sigurðsson ehf lægsta tilboðið sem hljóðaði...
Að mati margra er einn besti sjósundstaður landsins á Akranesi. Langisandur er nánast skapaður fyrir sjósund og fjölmargir nýta frábæra sjósundsdaga eins vel og hægt er. Með tilkomu Guðlaugar hefur aðsóknin stóraukist og mikil fjölgun hefur verið í hópi þeirra sem stunda sjósund eða sjóbað. Í dag var frábært veður á Akranesi – vissulega var...
Ég byrjaði í þessu verkefni sem foreldri þar sem að sonur minn var að æfa hjá Sundfélagi Akraness. Ég man að ég var stressuð að fá það hlutverk að lesa auglýsingar – en á síðustu árum hef ég verið í öðru hlutverki og titla sjálfa mig útvarpsstjóra,“ segir Hjördís Hjartardóttir í viðtali við Skagafréttir. Útvarp...
Útvarp Akraness hófst í dag 26. nóvember og verður útvarpið í gangi fram á miðjan dag á sunnudaginn 28. nóvember. Útvarpið hefur verið með aðsetur í gamla Landsbankahúsinu við Akratorg. Dagskráin er að venju fjölbreytt og margir áhugaverðir þættir. Útvarp Akraness hefur verið á dagskrá allt frá árinu 1988 og er stór þáttur í fjáröflun...