Keppendur úr Kraftflyftingafélagi Akraness, ÍA, náðu frábærum árangri á bikarmóti í klassískum kraftlyftingum sem fram fór 20. nóvember. Þrír keppendur úr röðum ÍA tóku þátt. Í kvennaflokki keppti Sylvía Ósk Rodriguez í -84 kg flokki kvenna. Hennar þyngstu lyftur voru 145 kg í hnébeygju, 82,5 kg í bekkpressu, 160 kg í réttstöðulyftu og samanlagður árangur...
Skagamaðurinn Daníel Ingi Jóhannesson mun æfa með danska stórliðinu FCK í Kaupmannahöfn þar sem hann verður til reynslu. Daníel Ingi hittir þar fyrir eldri bróður sinn, Ísak Bergmann Jóhannesson, og Hákon Arnar Haraldsson er einnig samningsbundinn FCK. Daníel Ingi er einn af fjölmörgum efnilegum leikmönnum úr röðum ÍA en hann er 14 ára gamall. Þetta...
Alls greindust 126 Covid-19 smit á landinu í gær samkvæmt upplýsingum á covid.is. Þar af voru 59 ekki í sóttkví. Á sjúkrahúsi eru 20 einstaklingar inniliggjandi vegna Covid-19, þar af eru fjórir á gjörgæslu. Á landinu öllu eru rétt um 1800 einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 smits. Á Akranesi eru 62 einstaklingar í einangrun vegna...
Viðræðurnar við ÍA hófust eftir tímabilið og við sigldum þessum í land á frekar stuttum tíma. Samningurinn er út tímabilið 2022 og ég hlakka til að komast af stað á fullu í boltann aftur,“ segir Árni Snær Ólafsson markvörður ÍA sem skrifaði nýverið undir samning við Knattspyrnufélag ÍA ásamt varnarmanninum þaulreynda Halli Flosasyni. Árni Snær...
Bjarki Fannar Hjaltason fer í viðamikla hjartaaðgerð á næstu vikum í Bandaríkjunum. Skagamaðurinn sem er fæddur árið 2007 fékk góðar kveðjur og stuðning frá samnemendum sínum úr Brekkubæjarskóla úr árgangi 2007. Árgangurinn stóð fyrir söfnun með aðstoð foreldra og forráðamanna með það að markmiði að Bjarki Fannar gæti nýtt söfnunarféð til þess að stytta sér...
Sindri Snær Magnússon, sem hefur verið lykilmaður í karlaliði ÍA, mun ekki leika áfram með liðinu í efstu deild karla á næstu leiktíð. Sindri Snær, sem er 29 ára gamall, samdi í dag við Keflavík og er samningurinn til næstu þriggja ára. Fregnir af brotthvarfri Sindra Snæs koma degi eftir að Óttar Bjarni Guðmundsson, fyrirliði...
Alls greindust 206 einstaklingar með Covid-19 smit í gær og voru 95 þeirra í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á vefnum covid.is. Er það metfjöldi smita sem hefur greinst á einum degi innanlands. Mest höfðu 200 smit greinst á einum degi, s.l. miðvikudag. Á Vesturlandi eru 95 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og...
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar um ráðningu í starf slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Akraness. Einn af umsækjendum, Einar Bergmann Sveinsson, kvartaði til umboðsmanns Alþingis í apríl á þessu ári. Kvörtun hans lýtur einkum að því...
Óttar Bjarni Guðmundsson, fyrirliði karlaliðs ÍA í knattspyrnu, er á förum í sitt gamla lið, Leikni í Breiðholti. Þetta kemur fram á fotbolti.net. Greint verður frá félagaskiptum Óttars á morgun samkvæmt sömu frétt. Óttar hefur leikið með ÍA frá árinu 2019 en hann var áður í herbúðum Stjörnunnar og HK. Hann hóf hinsvegar meistaraflokksferilinn með...
Eins og áður hefur komið fram náði sundfólk úr röðum Sundfélags Akraness, ÍA, frábærum árangri á Íslandsmótinu í 25 metra laug sem fram fór um liðna helgi í Ásvallalaug. Þar landaði ÍA einum Íslandsmeistaratitli, tvennum silfurverðlaunum, níu bronsverðlaunum. Þrír náðu lágmörkum fyrir landsliðsval og átta Akranesmet voru sett. Alls tóku 175 keppendur þátt frá 15...