• Á Vesturlandi eru 32 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og 74 eru í sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Vesturlandi. Á Akranesi 21 í einangrun með Covid-19 smit og 65 eru í sóttkví. Ekkert smit er til staðar í Stykkishólmi og Grundarfirði eins og sjá má á töflunni hér fyrir...

  • Það verður nóg um að vera á Smiðjuloftinu í vetur og þar á bæ er starfið komið á fulla ferð eftir gott sumafrí. Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson hafa staðið vaktina á Smiðjuloftinu frá því að þau ýttu verkefninu úr vör og segir Valgerður að það verð allskonar skemmtilegir fastir liðir í boði í bland...

  • Nýverið sömdu þrír efnilegir leikmenn við Knattspyrnufélag ÍA á Akranesi. Leikmennirnir hafa leikið stórt hlutverk með sínum flokkum í gegnum yngri flokka félagsins eru framtíðarleikmenn félagsins. Leikmennirnir heita Marey Edda Helgadóttir, Arndís Lilja Eggertsdóttir og Dagbjört Líf Guðmundsdóttir. Þetta er í fyrsta sinn sem þær semja við Knattspyrnufélag ÍA. Marey Edda er fædd árið 2004...

  • Aron Ýmir Pétursson hefur verið ráðinn sem þjálfari í fullt starf hjá Knattspyrnufélagi Akraness. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. Aron Ýmir hefur á udnanförnum misserum verið þjálfari meistaraflokk kvenna og 3. flokks karla. Hann mun ljúka þeim verkefnum en frá og með 1. september mun hann einnig þjálfa 5., 6. og 7. flokki...

  • Golfklúbburinn Leynir stóð uppi sem sigurvegari í 2. deild kvenna í +50 ára flokki sem fram fór á Kirkjubólsvelli um liðna helgi í Sandgerði. Alls tóku 8 golfklúbbar þátt og með sigrinum komst Leynir upp í efstu deild. Leynir og Golfklúbbur Suðurnesja léku til úrslita um sigurinn. Þar hafði Leynir betur 2-1. Golfklúbbur Kiðjabergs endaði...

  • Alls bárust þrjú tilboð í vátryggingar fyrir Akraneskaupstað – en kaupstaðurinn óskaði eftir tilboðum fyrir tímabilið 2022-2022 fyrr í sumar. Consello, löggild vátryggingarmiðlun og ráðgjafi aðstoðaði Akraneskaupstað við vinnslu útboðsins – en Guðmundur Ásgrímsson fyrirtækjaráðgjafi Consello sá um það verkefni. Sjóvá, TM og Vís lögðu fram tilboð og aðeins munar um 150.000 kr. á lægsta...

  • Vala María Sturludóttir er ein af efnilegustu kylfingum Golfklúbbsins Leynis en hún er 13 ára og fer í 8. bekk í Grundaskóla á næstu dögum. Vala María gerði sér lítið fyrir og sló draumahöggið á 14. braut Garðavallar – afrek sem aðeins þrír aðrir kylfingar hafa afrekað allt frá því að þessi hluti Garðavallar var...

  • Á fundi bæjarráðs Akraness þann 5. ágúst s.l. fór fram úthlutun lóða í Skógarhverfi. Mikil eftirspurn var eftir ákveðnum lóðum en alls var úthlutað 11 einbýlishúsalóðum og 6 lóðum fyrir raðhús. Alls bárust 262 gildar umsóknir en athygli vekur að ekki var sótt um tvær einbýlishúsalóðir við Skógarlund 2 og 3. Frá þessu er greint...

  • Á síðustu dögum hefur komið í ljós að nærri helmingur þeirra æfingabolta sem eru í eigu Golfklúbbsins Leynis er horfinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leyni en um er að ræða töluvert magn af golfboltum sem hefur „gufað“ upp af æfingasvæðinu. Á undanförnum dögum hefur borið á því að boltavélin á æfingasvæðinu tæmist þegar...

  • Karlalið ÍA komst í kvöld áfram í 8-liða úrslit í Mjólkurbikarkeppni KSÍ í knattspyrnu eftir 1-0 sigur gegn FH á Norðurálsvellinum í kvöld. Ísak Snær Þorvaldsson skoraði eina mark leiksins – og er þetta fyrsti sigur ÍA gegn FH í bikarkeppninni í 18 ár. Árni Marinó Einarsson, markvörður ÍA, átti stórleik í marki ÍA í...

Loading...