Karlalið ÍA leikur sinn fyrsta heimaleik í kvöld í PepsiMax deildinni í knattspyrnu og hefst leikurinn kl. 19:15 á Norðurálsvelli. Þjálfari Víkinga er Skagamaðurinn Arnar Bergmann Gunnlaugsson sem hefur bæði leikið með ÍA og verið þjálfari liðsins. Í fyrra gerðu liðin 2-2 jafntefli á Norðurálsvellinum en alls voru átta mörk skoruð í síðari leiknum á...
Kvennaliða ÍA lék sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni í gær á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á heimavelli Gróttu á Seltjarnarnesi – en liðinu er spáð efstu sætunum í næst efstu deild. Leikurinn var jafn og spennandi eins og búist var við. Védís Agla Reynisdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 17. mínútu og kom...
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur nú hafið heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna í nítjánda sinn. Það stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 25. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan...
Alls greindust 5 einstaklingar i gær með Covid-19 smit og var einn þeirra ekki í sóttkví. Smit greindist á Vesturlandi. Þetta kemur fram á vefnum covid.is. Alls eru 173 einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 smits en þeir voru 167 í gær. Það fækkar töluvert í hópi þeirra sem eru í sóttkví en alls eru 329...
Um þessar mundir stendur yfir niðurrif á húsi við Kirkjubraut sem var eitt sterkasta kennileiti Akraness á árum áður og var einnig vinsæll samkomustaður unglinga á Akranesi á árum áður. Fólksbílastöðin eða „Fóló“ var miðpunkturinn í lífi margra. Húsið var tekið í notkun á sjötta áratug síðustu aldar Í húsinu voru leigubílstjórar með aðstöðu til...
Aðsend grein frá Ungmennaráði Akraness: Fyrsti dagur maímánaðar er oftar en ekki góður dagur. Frídagur verkamanna. Kunnum við öll að meta frídaga. Alþjóðlegur frídagur verkafólks hefur líka lengi vel haft mikla þýðingu fyrir börn á Íslandi. Þennan dag breytast neflilega útivistarreglurnar. Frá og með 1.maí mega 12 ára börn og yngri lengst vera úti til...
Timburhús sem stendur við Smiðjuvelli 14 á Akranesi verður fjarlægt og skal því verkefni vera lokið fyrir árslok 2021. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Akraness. Húsið er í eigu Akraneskaupstaðar en í bókun bæjarráðs kemur fram að flytja megi húsið af lóðinni og einnig má rífa húsið. Fyrirhugað er að reisa nýbyggingar á þessu...
Alls greindust 6 einstaklingar með Covid-19 smit í gær og var einn þeirra utan sóttkvíar. Á landsmærunum greindust tvö smit. Undanfarna daga hafa 4-5 einstaklingar greinst daglega með Covid-19 og hafa flestir þeirra verið í sóttkví. Staðan á Vesturlandi er nánast óbreytt samkvæmt tölum á covid.is en 31 er í sóttkví í landshlutanum – en...
Töluverð fjöldi einstaklinga á Vesturlandi er í sóttkví vegna Covid-19 samkvæmt tölum sem Lögreglan á Vesturlandi sendi frá sér í gær. Alls eru 33 einstaklingar í sóttkví á Vesturlandi og þar af 21 á Akranesi. Ekkert smit var greint í landshlutanum í gær en tölurnar verða uppfærðar kl. 11 í dag – 4. maí.
Síðasta laugardag, 1. maí 2021, fór fram viðburðurinn „Stokkið fyrir Svenna“ sem var áheitasöfnun sem fram fór í Akraneshöfn. Það var Árangur 71 á Akranesi (Club 71) sem stóð fyrir viðburðinum. Í tilkynningu frá skipulagsnefndinni kemur fram að söfnunin hafi farið langt fram úr væntingum og samtakamáttur samfélagsins á Akranesi og víðar hafi komið í...