Alls greindust 67 einstaklingar í gær með Covid-19 smit og voru 29 þeirra utan sóttkvíar við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is. Á Vesturlandi er staðan svipuð og undanfarna daga en heldur dregur úr fjölda þeirra sem eru með Covid-19 smit. Alls eru 25 einstaklingar á Vesturlandi í einangrun með Covid-19 smit og 42 eru...
Ingunn Ríkharðsdóttir, skólastjóri skrifar: Í dag, þann 1. september, fagnar Garðasel 30 ára afmæli sínu og við sem störfum í leikskólanum horfum stolt um öxl, þakklát fyrir einstakt starf sem hefur tekið miklum breytingum á þessum langa tíma. Garðasel er góður staðurgaman er að leika hér.Heim ég skokka hress og glaður,heilsa nýju sumri fer. Í...
Afkastageta liðskiptaaðgerða á skurðstofu Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi verður rúmlega tvöfölduð á næstu mánuðum. Frá og með mars á næsta ári verður sérstakt liðskiptasetur sett upp á Akranesi á sérhæfðri skurðstofu þar sem aðeins verða framkvæmdar liðskiptaaðgerðir. Þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. Gert er ráð fyrir að 430 aðgerðir verði framkvæmdar árlega...
Sænska knattspyrnuliðið IFK Norrköping hefur á undanförnum árum hagnast vel á því að kaupa efnilega leikmenn frá Knattspyrnufélagi ÍA. Í gær var greint frá því að danska stórliðið FCK í Kaupmannahöfn hefði keypt Ísak Bergmann Jóhannesson frá sænska félaginu. Ísak Bergmann, sem er 18 ára gamall, gerði fimm ára samning við FCK og eru töluverðar...
Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson var í kvöld kynntur sem nýr leikmaður danska stórliðsins FCK í Kaupmannahöfn. Danska stórliðið kaupir hinn 18 ára gamla leikmann frá sænska liðinu IFK Norrköping. Samningurinn sem Ísak Bergmann gerir við danska liðið er til ársins 2026 eða til fimm ára. Samkvæmt frétt sænska dagblaðsins Aftonbladet greiðir FCK um 460 milljónir...
Morgunblaðið birti í dag niðurstöður úr skoðanakönnunum sem gerðar voru í samstarfi við MMR á síðastliðnum þremur mánuðum. Í þessum könnunum var spurt um fylgi stjórnmálaflokka landsins fyrir Alþingiskosningarnar 2021 sem fram fara 25. september. Niðurstöðurnar eru samanlagðar úr síðustu þremur könnunum MMR, mælt dagana 24. júní – 6. júlí, 8.-14. júlí og 18.-24. ágúst...
Skagamaðurinn Björn Viktor Viktorsson úr Golfklúbbnum Leyni varð í öðru sæti á stigalistanum í flokki 17-18 ára á unglingamótaröð GSÍ í golfi. Böðvar Bragi Pálsson, GR, varð stigameistari í þessum flokki. Böðvar Bragi tók þátt á fjórum mótum af alls fimm á keppnistímabilinu og varð stigameistari með töluverðum mun. Hann sigraði á þremur þeirra –...
Knattspyrnuliðið Skallablettir frá Akranesi náði áhugaverðum árangri í utandeildarkeppni á dögunum. Utandeildarkeppnir hafa vaxið gríðarlega á undanförnum misserum. Alls voru 8 lið sem tóku þátt í þessari deild þar sem að lið Skallabletta endaði í 5. sæti í riðlakeppninni en í úrslitakeppninni fór liðið á kostum. Árni Þórir Heiðarsson margmiðlunarstjóri liðsins segir að liðið sé...
Kvennalið ÍA í knattspyrnu tekur í dag á móti HK úr Kópavogi í næst efstu deild, Lengjudeildinni. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði liðin sem eru í harðri fallbaráttu í Lengjudeildinni. ÍA hafði betur gegn HK, 1-0, á útivelli þegar liðin mættust í fyrri umferðinni. ÍA er með 14 stig í þriðja neðsta sæti eftir...
Það var líf og fjör við Akraneshöfnina s.l. laugardag þegar kassabílarallý fór fram fyrir yngstu kynslóðina. Um 20 bílar mættu í keppnisbrautina en bílarnir voru af ýmsum gerðum og stærðum. Ole Jakob Volden var einn af skipuleggjendum viðburðarins. Hann segir í færslu á fésbókinni að frumraun viðburðarins hafi verið lærdómsríkur – og á næsta ári...