Íslandsmót unglinga í keilu fór fram um s.l. helgi í Egilshöll. Stór hópur ungra keilara frá ÍA tók þátt og var árangurinn góður eftir miklar æfingar að undanförnu. Margir bættu árangur sinn og ÍA eignaðist Íslandsmeistara – líkt og félagið hefur gert á hverju ári frá stofnun félagsins. Friðmey Dóra Richter og Haukur Leó Ólafsson...
Íslandsmeistaramótaröðin í klifuríþróttinni fór af stað í dag í Klifurhúsinu í Reykjavík. Keppendur úr ÍA náðu góðum árangri á þessu móti sem er það fyrsta af alls fjórum á Íslandsmeistaramótaröðinni. Á undanförnum misserum hefur iðkendum í klifuríþróttinni á Akranesi fjölgað mikið og var keppnishópur ÍA á þessu móti í B-C flokki sá fjölmennasti frá upphafi....
Aðalfundur Körfuknattleiksfélags ÍA fór fram í gær að Garðavöllum. Félagið á 35 ára afmæli á þessu ári og einnig er 50 ára keppnisafmæli fagnað á þessu ári. Gísli Gíslason, íþróttahetja og fyrrum bæjarstjóri, var fundarstjóri en hann er einn af frumkvöðlum körfuboltans á Akranesi. Góð mæting var á fundinn þrátt fyrir samkomutakmarkanir. Félagið fékk blómvönd...
Félag eldri borgara á Akranesi sendi á dögunum áskorun til bæjarstjórnar Akraness þar sem að félagið lýsir yfir miklum vonbrigðum með gjaldtöku fyrir eldri borgara í sundmannvirki Akraneskaupstaðar. Í byrjun ársins 2021 var þessi gjaldtaka sett og í erindi FEBAN er skorað á bæjarfulltrúa að endurmeta stöðuna og fella strax niður þessa gjaldtöku. Í áskorun...
„Ég valdi þessa uppskrift þar sem rétturinn er einfaldur og hann nýtur vinsælda hjá krökkunum. Ég þakka Dódó fyrir áskorunina og ég ætla að senda boltann á Brynjar S. Sigurðsson á Laxárbökkum – sem er eins og flestir vita snillingur í eldhúsinu,“ segir Arilíus Smári Hauksson sem er meistarakokkur vikunnar í fréttaflokknum „Heilseflandi samfélag“ þar...
Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í tuttugustu og aðra viku tímabilsins. Spennan fer vaxandi með hverri vikunni sem líður. Sigurður M. Sigurðsson heldur sínu striki eftir að hafa rúllað yfir Magnús Brandsson um s.l. helgi. Mótherji Sigurðar í þessari viku er nýkjörinn formaður Knattspyrnufélags Akraness, Eggert Herbertsson, sem þykir getspakur. Sigurður M. er...
Nú eru 46 Íslendingar 100 á eldri og þar af eru 6 karlar. Snæbjörn Gíslason á Akranesi er elstur allra karla á Íslandi en hann er 103 ára, fæddur í Borgarfjarðarsýslu. Þetta kemur fram á fésbókarsíðunni Langlífi – sjá hér. Hlutfall karla af þeim Íslendingum sem eru 100 ára eða eldri er 13% en hlutfallið...
Ýmsar breytingar voru gerðar í nýrri reglugerð frá heilbrigðisráðherrra varðandi sóttvarnarráðstafanir sem tók gildi þann 18. mars eða í gær. Skerpt er á skráningu gesta á viðburði, veitingar eru ekki leyfðar í hléi og gæta þarf betur að sóttvörnum við hlaðborð.Reglugerðin gildir til 9. apríl eða fram yfir páska. Eftirfarandi breytingar taka gildi 18. mars:...
„Bæjarmiðlar eru í raunverulegri útrýmingarhættu nema gripið verði inn í á einhvern hátt. Stóru miðlarnir eru mjög mikilvægir en munu aldrei koma í stað staðbundinna,“ skrifar Olga Björt Þórðardóttir ritstjóri og eigandi bæjarblaðsins Hafnfirðings. Olga Björt hefur ákveðið að gera hlé á rekstri og útgáfu Hafnfirðings og í pistli sínum vekur hún athygli á erfiðri...
Fimm leikmenn sem hafa komið við sögu hjá ÍA á sínum ferli eru í lokahóp U-21 árs landsliðs Íslands fyrir EM 2021 í knattspyrnu karla. Úrslitakeppni EM fer fram í lok mars og er þetta í annað sinn sem Ísland tekur þátt í úrslitum EM í þessum aldursflokki. Davíð Snorri Jónasson er landsliðsþjálfari U21 karla....