Ráðast þarf í viðamiklar endurbætur á húsnæði Grundaskóla vegna rakaskemmda. Á næstu dögum og vikum ætla bæjaryfirvöld að taka ákvarðanir um þær framkvæmdir til að skapa fullnægjandi aðstæður til kennslu. Þetta kom fram á kynningarfundi sem fram fór í gær þar sem að skýrsla Verkís á ástandi húsnæðis Grundaskóla. Úttekt Verkís var framkvæmd eftir að...
Tveir leikmenn sem hafa leikið með ÍA eru í A-landsliðshóp karla sem leikur þrjá leiki í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2022. Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari tilkynnti hópinn í dag Arnór Sigurðsson sem leikur með CSKA í Moskvu er í hópnum líkt og Björn Bergmann Sigurðarson sem leikur með Molde í Noregi. Ísland mætir Þýskalandi 25. mars, Armeníu...
Niðurgreiðslur til foreldra vegna barna sem eru hjá dagforeldrum hér á Akranesi verða hækkaðar frá og með 1. apríl n.k. Skóla – og frístundaráð bæjarins lagði slíka tillögu fyrir bæjarráð – og var tillagan samþykkt og aðeins á eftir að fá formlega afgreiðslu frá Bæjarstjórn Akraness. Niðurgreiðsla til foreldra fer upp í 70.000 kr. miðað...
Skagamenn hafa samið við framherja úr Fylki sem mun leika með liðinu í PepsiMax-deild karla í knattspyrnu í sumar. Samningurinn er til þriggja ára – en leikmaðurinn er Hákon Ingi Jónsson. Hann er 25 ára og hefur leikið tæplega 140 leiki með meistaraflokki Fylkis og skorað alls 32 mörk. Hákon hefur leikið með yngri landsliðum...
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur staðfest tillögur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands að skiptingu á 300 milljóna króna stuðningi til íþróttafélaga sem starfrækja skipulagt íþróttastarf fyrir börn og unglinga 6-18 ára. Alls fá 13 aðildarfélög Íþróttabandalags Akraness stuðning í þessu verkefni – samtals 5,7 milljónir kr. Stuðningurinn er vegna Covid-19 faraldursins. Hér má sjá hvernig...
Fjölmenni mætti í dag þegar Frystihúsið við Akratorg var opnað með formlegum hætti. Löng biðröð var við Akratorgið þegar dyrnar á Frystihúsinu voru opnaðar upp á gátt kl. 13.00. Frystihúsið stendur undir nafni en um er að ræða lifandi ísbúð, kaffihús og sælkerastaður fyrir alla þá sem kunna að meta geggjaða ísa, öflugra kaffi og...
Skagamaðurinn Jakob Svavar Sigurðsson úr Hestamannafélaginu Dreyra náði frábærum árangri á fjórða móti tímabilsins í meistaradeild Líflands í hestaíþróttum. Mótið fór fram í gærkvöld í Ingólfshvoli í Ölfusi. Keppnisgreinin, gæðingafimi, er mjög krefjandi keppnisgrein í hestaíþróttum. Jakob Svavar keppti á hestinum Hálfmána frá Steinsholti og var einkunn þeirra 8,60. Eyrún Ýr Pálsdóttir á hestinum Hrannari...
Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í tuttugustu og fyrstu viku tímabilsins. Spennan fer vaxandi með hverri vikunni sem líður. Sigurður M. Sigurðsson og Magnús Brandsson eigast við að nýju í þessari umferð en þeir skildu jafnir um síðustu helgi með 8 rétta. Sigurður M. er að hefja sína þriðju viku í keppninni en...
Golfklúbbur Mosfellsbæjar og Golfklúbburinn Leynir á Akranesi hafa komist að samkomulagi um viðamikið samstarf á milli golfklúbbanna. Formenn klúbbanna, Kári Tryggvason (GM) og O. Pétur Ottesen (GL) skrifuðu undir samning þess efnis í dag í Mosfellsbæ. Frá þessu er greint á golf.is og heimasíðum klúbbanna. Í tilkynningu frá klúbbunum kemur fram að samningurinn taki á...
Knattspyrnudómarafélag Akraness er elsta starfandi knattspyrnudómarafélag landsins en félagið hélt upp á hálfrar aldar afmæli á síðasta ári. Afmælishátíð félagsins og ýmsum viðburðum sem félagið hafði skipulagt á árinu 2020 hefur ítrekað verið frestað vegna Covid-19 ástandsins en úr því verður bætt við fyrsta tækifæri á árinu 2021. Guðjón Finnbogason og Friðjón Edvardsson stofnuðu félagið...