Stofnun Fjölbrautaskólans á Akranesi markaði tímamót í skólamálum á Vesturlandi. Samningur sveitarfélaga á Vesturlandi og menntamálaráðuneytis 1987 um að reka öflugan framhaldsskóla bætti jafnframt aðstöðu Vestlendinga til að afla sér menntunar. Í dag gegnir FVA mikilvægu hlutverki í samfélagi þar sem fólki þarf að standa til boða fjölbreytt tækifæri til að auka hæfni sína á...
Ísak Bergmann Jóhannesson var í gær kallaður inn í A-landsliðshóp Íslands í knattspyrnu, ásamt þremur öðrum leikmönnum úr U-21 árs landsliði Íslands. Ísak hefur tekið þátt í fyrstu tveimur leikjum U-21 árs landsliðs Íslands í úrslitum Evrópumótsins í Ungverjalandi, hann var í byrjunarliðinu í fyrsta leiknum og kom inn á sem varmaður í öðrum leik...
Fjögur Covid-19 smit voru greind innanlands í gær og þar af voru tveir einstaklingar ekki í sóttkví. Tvö smit greindust til viðbótar á landamærunum. Þetta kemur fram á vefnum covis.is. Samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum er verið að rekja smitin sem greindust utan sóttkvíar. Ekki er enn hægt að segja til um hvort smitin tengjast hópsýkingum...
Valgarður Lyngdal Jónsson mun leiða framboðslista Samfylkingarinnar í komandi Alþingiskosningum, Jónína Björg Magnúsdóttir skipar annað sætið og Sigurður Orri Kristjánsson er í þriðja sæti. Kjördæmisþing Samfylkingarinnar fór fram um s.l helgi þar sem að kosið var um hvernig framboðslistinn yrði skipaður. Valgarður og Jóinína eru bæði búsett á Akranesi. Valgarður er forseti bæjarstjórnar Akraness en...
„Ég er ber ábyrgð á öllu fatnaði og öðrum búnaði liðsins sem liðsstjóri en ég hef verið í þessu hlutverki hjá U-21 árs liði karla frá árinu 2018,“ segir Skagamaðurinn Ágúst Valsson sem hefur í mörg horn að líta í lokakeppni U-21 árs landsliðs Íslands á EM sem fram fer í Ungverjalandi. Það eru margar...
Bólusetningar vegna Covid-19 hafa verið mikið í umræðunni á Íslandi og víðar. Á upplýsingasíðunni covid.is er ýmiskonar tölfræði sem er áhugvert að skoða og þar eru nokkur jákvæð atriði sem snúa að Vesturlandi. Hlutfallslega er Vesturland í góðum málum á landsvísu þegar kemur að fjölda þeirra einstaklinga sem hafa fengið bóluefni gegn Covid-19. Á landinu...
Akraneskaupstaður hefur sent frá sér tilkynningu þar sem að óskað er eftir því að foreldrar sem eiga börn sem nýta leikskólaþjónustu bæjarins haldi börnum sínum heima út marsmánuð á meðan hertar samkomutakmarkanir gilda. Bæjarráð Akraness fjallaði á fundi sínum þann 25. mars um breytingar á reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar og er bókun...
Alls voru sex Covid-19 smit greind á Íslandi og var einn einstaklingur utan sóttkvíar. Rúmlega 1200 sýni voru tekin í gær. Á landamærunum greindist ekkert smit í rúmlega 320 sýnum. Þetta kemur fram á covid.is. Alls eru 95 einstaklingar í einangrun á Íslandi með virkt Covid-19 smit og tæplega 1300 manns eru í sóttkví –...
Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í tuttugustu og þriðju viku tímabilsins. Spennan fer vaxandi með hverri vikunni sem líður. Getraunaseðill vikunnar er alþjóðlegur þar sem að landsleikir eru í gangi víðsvegar um Evrópu og eru þessir leikir á getraunaseðlinum að þessu sinni. Sigurður M. Sigurðsson og Eggert Herbertsson skildu jafnir um síðustu helgi...
Snæfríður, félag ungra jafnaðarmanna á Akranesi, var endurvakið í gær þegar aðalfundur félagsins fór fram. Ný stjórn var mynduð og er Jón Hjörvar Valgarðsson forseti félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Nafn félagsins tengist sögupersónunni Snæfríði Íslandssól úr Íslandsklukku eftir Halldór Laxness sem gerist í Akraneshreppi á fyrrihluta 18. aldar. Í stjórnmálaályktun sem...