Eitt Covid-19 smit greindist á Íslandi í gær og var sá einstaklingur í sóttkví. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu mörg sýni voru tekin á landinu eða landamærum. Upplýsingar um smit og sýnatöku eru ekki lengur birtar á upplýsingasíðunni covid.is um helgar. Á Vesturlandi er staðan óbreytt hvað Covid-19 smit varðar en 3 einstaklingar eru...
Fjórir leikmenn úr röðum ÍA eru í 25 manna úrtakshóp fyrir U-19 ára landslið karla í knattspyrnu sem mun æfa saman í lok janúar. Ólafur Ingi Skúlason, fyrrum atvinu – og landsliðsmaður, er nýr þjálfari liðsins en hann var áður í þjálfarateymi Fylkis. Leikmennirnir 25 koma frá 14 mismunandi félögum. Félögin eru fjöldi leikmanna eru...
Kjörnefnd Hafnarfjarðarprestakalls í Kjalarnessprófastsdæmi valdi Sr. Jónínu Ólafsdóttur, prest á Akranesi, sem nýjan sóknarprest í Hafnarfjarðarprestakalli. Frá þessu er greint á vef Þjóðkirkjunnar. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sem er starfandi biskup Íslands, hefur staðfest ráðningu Jónínu – sem mun taka til starfa á næstunni. Jónína var ráðin í starf sem sóknarprestur í Garða – og Saurbæjarprestakalli...
Þórður Elíasson, prentsmiðjustjóri Prentmets Odda á Akranesi, lét nýverið af störfum eftir fimmtíu ára starfsferil. Þórður hóf störf sem nemi í prentiðninni þann 1. september árið 1970 hjá Prentverki Akraness. Frá þessu er greint í Póstinum sem kom út í þessari viku. Þar segir Þórður m.a. að það hafi verið tilviljun að hann valdi að...
Ekkert Covid-19 smit greindist á landinu í gær en alls voru tekin tæplega 720 sýni innanlands. Á landamærunum fóru 560 einstaklingar í skimun og greindust fimm Covid-19 smit á meðal þeirra. Á landinu öllu eru 89 einstaklingar í einangrun með Covid-19 og 222 einstaklingar eru í sóttkví. Það eru 19 einstaklingar á sjúkrahúsi með sjúkdóminn...
Þrjú fyrirtæki tóku þátt í útboði vegna snjómoksturs hjá Akranekaupstað næstu fimm árin. Á fundi Skipulags – og umhverfisnefndar í lok nóvember 2020 var samþykkt að fela sviðsstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Það hefur lítið sem ekkert snjóað á Akranesi það sem af er vetri og á landsvísu hefur snjókoma verið langt undir...
Alls greindust fjórir einstaklingar með Covid-19 smit í gær og voru tveir þeirra í sóttkví við greiningu. Á landamærunum greindust tvö Covid-19 smit. Alls voru 600 sýni greind í gær innanlands og rétt tæplega 150 sýni voru tekin á landamærunum. Á Vesturlandi eru þrír einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 smits. Tveir eru í Ólafsvík og...
Aðeins tvö Covid-19 smit greindust á Íslandi í gær og var annar einstaklingurinn í sóttkví en hitt smitið greindist við einkennasýnatöku. Á landamærunum greindust alls tíu Ciovid-19 smit. Alls voru tekin 650 sýni á Íslandi í gær og rétt um 450 sýni á landamærunum. Á Vesturlandi fækkar smitum og einnig þeim sem eru í sóttkví....
Þorrablót Skagamanna 2021 fer fram laugardaginn 23. janúar. Undirbúningur hefur staðið yfir í langan tíma og gríðarleg eftirvænting ríkir fyrir Blótinu sem verður einstakt í alla staði – og líklega það fjölmennasta frá upphafi. Blótinu verður streymt í beinni í útsendingu á youtube – og Karen Lind Ólafsdóttir, sem er í þorrablótsnefndinni – útskýrir hér...
Sementsverksmiðjan ehf. hefur fengið verkfræðistofuna Eflu til að meta raunveruleg áhrif óhapps í einu af sílóum Sementsverksmiðjunnar á Akranesi þann 5. janúar sl. á umhverfi og loftgæði. Óhappið leiddi til þess að töluvert magn af sementsryki barst um nágrenni verksmiðjunnar. Þetta kemur m.a. fram í tilkynningu sem Akraneskaupstaður sendi frá sér síðdegis. Í tilkynningunni ítrekar...