Það var töluvert „bras“ hjá nemendum á Akranesi tengjast prófakerfi Menntamálastofnunar í morgun þegar samræmd próf í íslensku fóru fram. Um 70 skólar af alls 150 lentu í vandræðum með að tengjast kerfinu en slíkt ástand hefur verið vel þekkt við framkvæmd samræmdra prófa á undanförnum misserum. Skólastjórarnir í Brekkubæjar – og Grundaskóla segja í...
Karlalið ÍA í knattspyrnu mætti liði Vestra í Lengjudeildinni um s.l. helgi í Akraneshöll. Leikurinn var fjörugur og voru alls fimm mörk skoruð í viðureigninni. Vestri – leikur í næst efstu deild og kom Casper Gandrup Hansen gestunum frá Vestfjörðunum yfir á 9. mínútu. ÍA fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik sem markvörðu Vestra varði. Viktor...
Rykagnir frá glerull og rakaskemmdir í Grundaskóla eru líkleg ástæða fyrir því að nokkrir nemendur og starfsfólk skólans hafa upplifað óþægindi og breytingar á heilsufari á undanförnum misserum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Ítarleg athugun hefur staðið yfir í húsnæði Grundaskóla og Verkfræðistofan Verkís hefur skilað inn megninniðurstöðum í úttekt sinni. Skýrslan verður...
Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í tuttugustu viku tímabilsins. Spennan fer vaxandi með hverri vikunni sem líður en Sigurður M. Sigurðsson lagði Smára Guðjónsson að velli í 19. umferð þar sem Sigurður var með 8 rétta en Smári 7 rétta. Mótherji Sigurðar er Magnús D. Brandsson en útibússtjórinn hjá Íslandsbanka er að eigin...
Knattspyrnudómarafélag Akraness er í fremstu röð á landsvísu og er starf félagsins kraftmikið. Félagið er í stöðugri endurnýjun og einn þáttur í uppbyggingu félagsins er byrjendanámskeið fyrir dómara. Eitt slíkt námskeið verður haldið af Knattspyrnudómarafélagi Akraness og ÍA í salnum á Jaðarsbakka miðvikudaginn 10. mars kl 20:00. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Ókeypis...
„Með tilkomu hlutdeildalána frá HMS hafa margar dyr opnast fyri þá aðila sem vilja kaupa sína fyrstu íbúð. Það er mikil áhugi á þeim íbúðum sem við hjá DomusNova erum með í sölu hér á Akranesi,“ segir Ólafur Sævarsson fasteignasali hjá DomusNova við Skagafréttir. Í desember og janúar seldust allar íbúðir í fjölbýlinu við Asparskóga...
Það var líf og fjör á Smiðjuloftinu um liðna helgi þar sem að „Skemmtimót Smiðjuloftsins“ fór fram. Þar mættu til leiks tæplega 60 klifrarar frá þremur félögum, ÍA, KfR og Björkinni. Keppnisgreinarnar voru tvær, línu – og grjótglímu – og voru keppnisleiðirnar í erfiðari kantinum. Keppendur frá ÍA stóðu sig vel en Ester Guðrún sigraði...
Uppsjávarskipið Venus NS 150 kom til hafnar í dag á Akranesi með um 530 tonn af loðnu. Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem loðnufarmi er landað á Akranes en Venus er í eigu Brims og er skipið skráð á Vopnafirði. Aflinn fer í hrognavinnslu og samkvæmt heimildum Skagafrétta er loðnufarmurinn góður hvað...
Deildakeppni Badmintonsambands Íslands, BSÍ, fór fram um s.l. helgi í Reykjavík. Alls tóku 10 lið frá fimm félögum þátt. Keppt var í þremur deildum, Meistaradeild, A-deild og B.deild. Máni Ellertsson var í sameiginlegu liði Badmintonfélags Hafnarfjarðar, Hamars úr Hveragerði og ÍA sem tók þátt í B-deildinni. Máni og liðsfélagar hans tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í þessum...
Ársþing Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, fór fram um s.l. helgi. Þar bar hæst að lagðar voru fram fjórar mismunandi tillögur um breytingar á mótafyrirkomulagi í efstu deild karla, PepsiMax-deildinni. ÍA og Fylkir lögðu fram tillögur sem félögin drógu síðan til baka. ÍA studdi þess í stað við bakið á tillögu frá Fram sem gekk út á...