• Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum um umsókn frá Tónlistarskóla Akraness um breytingar á sviði í Tónbergi. Um er að ræða framkvæmd sem var búið að samþykkja í fjárhagsáætlun ársins 2020 en ekki náðist að ljúka við verkefnið fyrir áramótin. Breytingin mun kosta tæplega 14,3 milljónir kr. en ekki kemur fram í bókun bæjarráðs...

  • Fyrirhugaðar eru endurbætur á áhorfendastúkunni við knattspyrnuvöllinn við Jaðarsbakka. Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að veita 20,2 milljónum kr. í endurbætur á stúkunni en verkefnið felst að mestu í að setja ný sæti í stúkuna. Um er að ræða framkvæmd sem búið var að samþykkja í fjárhagsáætlun 2020 en það náðist ekki að klára...

  • Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti á síðasta fundi sínum að kaupa efri hæðina í íbúðarhúsinu við Suðurgötu 124. Með kaupunum á Akraneskaupstaður alla húseignina og eru kaupin gerð með niðurrifi fasteignarinnar í huga. Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á svæðinu á næstu misserum – vegna uppbyggingar á nýjum mannvirkjum á Sementsreitnum. Akraneskaupstaður greiðir 20 milljónir kr. fyrir efri...

  • Brynhildur Traustadóttir, sundkona frá Akranesi, stendur sig vel með skólaliðinu University of Indianapolis þar sem hún stundar háskólanám. Um síðustu helgi fékk Brynhildur viðurkenninguna „Nýliði ársins“ þegar hún keppti á „The Great Lakes Valley Conferance Championships.“ Brynhildi hefur gengið vel með keppnisliði sínu og er hún í lykilhlutverki á mótum með skólaliðinu. Lið hennar setti...

  • Stóriðjufyrirtækin á Grundartanga greiða tæplega 18 milljarða kr. á ári fyrir raforku. Þetta kemur fram í áhugaverðum pistli sem Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness skrifar á fésbókarsíðu sinni. Þar dregur Vilhjálmur fram þá staðreynd að Elkem á Grundartanga greiði nánast sömu upphæð í raforku og sjávarútvegurinn greiðir í auðlindagjöld – eða 4,8 milljarða kr. á...

  • Aðsend grein: Norðvesturkjördæmi spannar stórt landsvæði með fjölbreytt landslag, fallega náttúru, mikla möguleika og áskoranir. Kjördæmið býður upp á margbreytileg atvinnutækifæri og sóknarfærin eru mörg. Í þessari yfirferð langar mig aðeins að tala um landbúnað, sem er ein af grunnstoðum atvinnulífs og byggðar í kjördæminu.  Landbúnaður er á margan hátt undirstaða dreifðari byggðar og mikilvægi...

  • Íþróttabandalag Akraness, sem er rekstraraðili þreksalarins á Jaðarsbökkum, sendi á dögunum erindi til bæjarráðs þar sem að óskað var eftir aðstoð vegna opnunar á þreksalnum. Bæjarráð fjallaði um erindið á síðasta fundi sínum og var niðurstaðan að bæjarráð getur ekki orðið við erindinu. Í erindi ÍA kemur fram að með breyttum sóttvarnarreglum sem tóku gildi...

  • Skoski varnarmaðurinn Alex Davey hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA og mun hann leika með liðinu í PepsiMax deildinni á tímabilinu 2021. Davey er 26 ára gamall en hann var í unglingaliðum Chelsea á Englandi og var hann samningsbundinn félaginu þar til hann var 22 ára. Hann lék síðast með Tampa Bay Rowdies í Bandaríkjunum –...

  • Ég vil hvetja alla á Vesturlandi sem áhuga hafa til að vera með í félaginu en það er hægt að skrá sig á þessum hlekk, “ segir Guðrún St. Guðbrandsdóttir sem er fyrsti forseti Hinsegin Vesturlands. Félagið var stofnað nýverið og segir Guðrún að hugmyndin að stofnun slíks félags hafi lengi blundað í henni. „Markmið...

  • Á allra síðustu dögum hafa bæjarbúar á Akranesi fengið spilastokk að gjöf frá Akraneskaupstað. Um er ræða verkefni á vegum Heilsueflandi samfélags á Akranesi og er verkefnið styrkt að hluta til úr Lýðheilsusjóði. Þetta kemur fram tilkynningu frá Akraneskaupstað. Ungir sem aldnir geta alltaf gripið í spil og til eru margir skemmtilegir spilaleikir. Hægt er...

Loading...