Karlalið ÍA mætir liði Fjölnis í dag í PepsiMax deildinni í knattspyrnu á heimavelli Fjölnis í Grafarvogi. Heil umferð fer fram í deildinni í dag. Leikurinn hefst kl. 16.15 og verður 16. leikur ÍA á tímabilinu. Skagamenn eru í 8. sæti eftir góðan 3-0 sigur gegn liði Gróttu um liðna helgi en ÍA er með...
Smitrakningateymi Almannavarna á Íslandi upplýsti Knattspyrnusamband Íslands nýverið að einn þátttakandi í Hæfileikamótun drengja sem fór fram dagana 19. og 20. september hafi greinst smitaður af Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ. Af þeim sökum þurfa aðrir þátttakendur (leikmenn og aðrir) að fara í sóttkví samkvæmt ákvörðun smitrakningateymisins. Allir hlutaðeigandi hafa verið upplýstir...
Drífa Harðardóttir, badmintonkona úr ÍA, fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í tvenndarleik á Íslandsmóti Badmintonsambandsins. Drífa fékk einnig silfurverðlaun í tvíliðaleik. Drífa hefur náð frábærum árangri á undanförnum árum í badminton en hún varð Heimsmeistari í flokki 40 ára og eldri í tvíliðaleik í ágúst á síðasta ári. Sjá frétt hér fyrir neðan. Mótið fór fram í íþróttahúsinu...
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Akraness var samþykkt erindi frá Teiknistofu arkitekta, Árna Ólafssyni, fyrir hönd KFUM og KFUK á Akranesi þar sem óskað var eftir því að tillaga að deiliskipulagi Garðabrautar 1, sem félagið hefur látið vinna, yrði auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga. Í tillögunni er lagt til að núverandi samkomuhús KFUM og KFUK...
Alls eru fjögur Covid-19 smit til staðar á Akranesi og eru allir einstaklingarnir í einangrun. Á Vesturlandi eru alls 11 Covid-19 smit og þar af 7 í Stykkishólmi. Alls eru 82 í sóttkví á Vesturlandi og þar af 64 á Akranesi. Frá þessu er greint á vef Lögreglunnar á Vesturlandi. Rúmlega 170 einstaklingar frá Akranesi...
Vel á sjötta þúsund sýni voru tekin á Íslandi í gær vegna Covid-19 sem er metfjöldi frá því að byrjað var að skima fyrir Covid-19 veirunni á Íslandi. Fjölmennur hópur frá Akranesi fór í skimun en 175 einstaklingar voru í sóttkví á Akranesi eftir að smitaður einstaklingur fór í líkamsræktarsalinn í síðustu viku á Jaðarsbökkum....
Marc Mcausland, leikmaður 2. deildarliðs Njarðvíkur, var á dögunum úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir fólskulegt brot á Eggerti Kára Karlssyni leikmanni Kára frá Akranesi. Eins og sjá má í myndbandinu sem birt var á Twittersíðu Ástríðan Podcast fær Eggert Kári mikið högg í andlitið frá Mcausland sem notaði olnbogann til að slá til Eggerts....
Á undanförnum árum hefur verið unnið að stækkun kirkjugarðsins á Akranesi. Verkinu er nú lokið og garðurinn tilbúin til grafartöku. Nýjasti hluti kirkjugarðsins verður vígður í dag við hátíðlega athöfn. Þetta kemur fram á vef Akraneskirkju, Eins og áður segir verður athöfn í dag, miðvikudaginn 23. september, og hefst athöfnin kl. 18.00. Sr. Þráinn Haraldsson...
Hákon Arnar Haraldsson fagnaði í kvöld bikarmeistaratitli með liði sínu FCK frá Kaupmannahöfn í flokki 19 ára og yngri. Skagamaðurinn efnilegi var í byrjunarliði FCK og skoraði þriðja mark liðsins í 3-1 sigri gegn Nordsjælland. Hákon Arnar lagði upp annað mark FCK í leiknum. Hann gekk í raðir FCK sumarið 2019. Hann er fæddur árið...
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu náði frábærum úrslitum í kvöld gegn sterku liði Svía í undankeppni Evrópumótsins. Ísland, sem Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson þjálfar, lék sinn besta leik í langan tíma og átti bronsliðið frá síðasta HM í töluverðum vandræðum með lið Íslands í síðari hálfleik. Svíar komust yfir í fyrri hálfleik en Ísland jafnaði í...