Sælkera -og meistarakokkara Gamla Kaupfélagsins ætla að létta undir með Skagamönnum nær og fjær varðandi Páskamatinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gamla Kaupfélaginu. Allar upplýsingar í myndinni hér fyrir neðan. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.
Í gær var verksamningur gerður um smíði allra innihurða fyrir Landsímareitshótelið. Fyrirtækið HBH Byggir efh, sem er með verkstæði við Hafnarbraut 9 á Akranesi, fékk verkefnið sem er stórt í sniðum. Um er að ræða smíði á sjötta hundrað mjög vandaðra hótelhurða – sem standast allar kröfur sem Hilton hótelkeðjan setur. Skagamaðurinn Samúel Guðmundsson, er...
Góðar fréttir bárust úr röðum Almannavarna í dag þegar tilkynnt var um stöðuna á Covid-19 smitum á Vesturlandi. Í gær, föstudaginn 3. apríl, greindist ekkert nýtt smit á Vesturlandi. Á Akranesi eru alls 8 einstaklingar með Covid-19 veiruna. Á Vesturlandi öllu eru 32 einstaklingar greindir með smit og þar af 20 í Borgarnesi. Í sóttkví...
Páskabingó Grundaskóla sló heldur betur í gegn þrátt fyrir samkomubann á Íslandi vegna Covid-19 ástandsins. Tæknin var nýtt til hins ítrasta í dag og 750 manns tóku þátt. Páskabingóið fór fram með þeim hætti að bingóinu var útvarpað í gegnum stöð Grundaskóla á netinu. Sigurður Arnar Sigurðsson, skólastjóri, og Flosi Einarsson, aðstoðarskólastjóri, stjórnuðu bingóinu. Þátttakendur...
„Ég hef nú alveg átt það til að gleyma hinu og þessu hér og þar, en í dag tók steininn úr,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar í skemmtilegum pistli sínum á fésbókinni. „Heiða“ hefur í mörg horn að líta um þessar mundir þar sem að ferðaþjónustufyrirtæki landsins glíma við erfiða stöðu vegna Covid-19 ástandsins....
Aðeins eitt nýtt tilfelli af Covid-19 greindist á Akranesi í gær og eru alls 8 einstaklingar með Covid-19 veiruna. Á Vesturlandi öllu eru 32 einstaklingar greindir með smit og þar af 20 í Borgarnesi. Á vef Snæfellsbæjar voru birtar eftirfarandi upplýsingar um stöðu mála á Vesturlandi þann 3. apríl 2020. Smitið sem greindist á Akranesi...
Björgunarfélag Akraness er mikilvægur hlekkur í samfélaginu á Akranesi og víðar. Starf félagsins er unnið í sjálfboðavinnu og hafa margir notið góðs af öflugu teymi félagsins í gegnum tíðina. Um helgina ætlar Björgunarfélagið að bjóða Skagamönnum að styðja við bakið á félaginu með því að gefa dósir og flöskur. Eins og áður hefur komið fram...
Skagamaðurinn Ísólfur Haraldsson er eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is í teyminu sem hefur skemmt landsmönnum undanfarin laugardagskvöld með þættinum „Heima með Helga“. Fyrstu tveir þættirnir hafa svo sannarlega slegið í gegn og segir Ísólfur við skagafrettir.is að áhorfið á fyrstu tvo þættina sé „massívt“. Þriðji þátturinn verður sýndur í beinni útsendingu úr...
Jón Gunnlaugsson, fyrrum leikmaður ÍA og einn helsti sagnaritari knattspyrnusögunnar á Akranesi, skrifaði nýjan kafla í knattspyrnusöguna á Íslandi í byrjun júní árið 1972. Árið 1972 var tekin upp sú regla að dómarar gátu rekið leikmenn af velli – með því að draga upp rauða spjaldið. Hinn hávaxni miðherji Skagamanna var sá fyrsti sem fékk...
Nýverið tókust samningar á milli Fjölbrautaskóla Vesturlands og Leirbakarísins – og mun samstarfið nýtast nemendum á myndlistasviði FVA. FVA hefur á undanförnum árum ekki notað leirbrennsluofn sem er í eigu skólans. Leirbakaríið við Suðurgötu 50 er sjóðheitur staður á Akranesi þar sem að Kolbrún Sigurðardóttir og María Kristín Óskarsdóttir ráða ríkjum. Í Leirbakaríinu vinna vinkonurnar...