Það var töluverður áhugi hjá fyrirtækjum og verktökum á verkefnum sem Akraneskaupstaður bauð út á dögunum. Það var fyrra var gangstéttaverkefni þar sem að kostnaðaráætlun nam tæplega 21,9 milljónum kr. Alls buðu sex aðilar í það verk. Það síðara var verkefni sem tengjast götuviðhaldi og var kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar í það verk tæplega 59,9 milljónir kr....
Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni, hefur líkt og aðrir íslenskir atvinnukylfingar verið á Íslandi undanfarnar vikur vegna Covid-19 faraldursins. Valdís Þóra hefur keppt á þremur mótum á þessu ári á LET Evrópumótaröðinni en það er óvíst hvenær keppnishaldið á LET hefst á ný. Valdís Þóra keppti síðast á LET Evrópumótaröðinni um miðjan mars í...
Ekkert nýtt Covid-19 smit var greint í gær á Vesturlandi. Alls hafa 40 Covid-19 smit verið greind á Vesturlandi. Á Akranesi hafa því 12 Covid-19 smit verið greind og eru 13 í sóttkví á Akranesi. Eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan hefur ásatandið lagast mikið á Vesturlandi á rúmri viku. Aðeins þrú...
„Við erum bara brattir og erum að nýta tímann í fyrirhugaðar breytingar veitingasalnum á Gamla Kaupfélaginu,“ segir Valdimar Ingi Brynjarsson einn af eigendum Gamla Kaupfélagsins við Skagafréttir. Samkomubann, fækkun ferðamanna og ýmsir aðrir þættir vegna Covid-19 veirunnar hafa sett veitingahús út um alla veröld í undarlega stöðu. Valdimar og félagar hans á GK hafa brugðist...
Þegar vorar og sól hækkar á lofti verður mörgum tamt að grípa til orðtaksins, að nú sé tími til að rækta garðinn sinn og öll þekkjum við óeiginlega merkingu orðtaksins sem bregður fyrir allan ársins hring. Þegar við göngum í gegnum umrótartíma eins og nú, þá er okkur ofarlega í huga að samfélagið komist um...
Aðstandendur fá leyfi til að heimsækja heimilisfólk á Dvalarheimilinu Höfða frá og með 4. maí. Fréttavefurinn Hafnfirðingur greindi fyrst frá. Heimsóknirnar verða með ströngum skilyrðum og aðeins einn getur komið í heimsókn í einu. Skagamaðurinn Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, greindi frá þessu í fréttaþættinum Speglinum á RÚV í dag, Stjórnvöld mun kynna reglurnar í næstu...
„Hugmyndin af þessari þáttaröð vaknaði hjá mér í byrjun árs 2018. Ætlunin var að búa til heimildarþætti um íslenskar íþróttasögur í anda hinna frábæru ESPN þátta 30 for 30,“ segir Skagamaðurinn Gunnlaugur Jónsson við Skagafréttir en hann ýtti nýrri sjónvarpsþáttaröð úr vör á Sjónvarpi Símans. Í þáttunum hittir Gunnlaugur afreksfólk í íþróttum sem hefur með...
Eitt nýtt Covid-19 smit var greint á Vesturlandi í gær og var það á Akranesi. Alls hafa 40 Covid-19 smit verið greind á Vesturlandi og er smitið í gær það fyrsta frá fimmtudeginum 9. apríl. Á Akranesi hafa því 12 Covid-19 smit verið greind og eru 15 í sóttkví á Akranesi. Mánudaginn 6. apríl voru...
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness skorar á stjórnvöld að standa vörð um heimilin og launafólk vegna óvissunnar sem nú ríkir vegna Kórónufaraldursins. Þetta kemur fram á vef VLFA. Stjórn Verkalýðsfélag Akraness vill að þak verði sett á vísitölu neysluverðs við útreikning á verðtryggðum húsnæðislánum, í ljósi þess að samfélagið er hugsanlega að sigla inní eina dýpstu efnahagslægð...
Margar kenningar eru á lofti varðandi uppruna kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 faraldrinum. Á vef RÚV er áhugaverð fréttaskýring þar sem að vísindamaður að nafni Xuhua Xia er í aðalhlutverki. Nánar á vef RÚV. Xuhua Xia er sameindalíffræðingur við háskólann í Ottawa í Kanada. Hann hefur beint sjónum sínum að flækingshundum í kínversku borginni Wuhan vegna...