• Erik Hamren, þjálfari karlalandsliðs Íslands, fylgist grannt með yngri landsliðsmönnum Íslands og þar á meðal Skagamanninum Ísak Bergmann Jóhannessyni. Hamren sá Ísak Bergmann í leik með sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping í æfingaleik á Algarve í Portúgal. Hamren segir í viðtali sem birt er á vefnum fotbollskanalen.se að Ísak Bergmann sé efnilegur og eigi framtíðina fyrir sér....

  • Heildarfjöldi nemenda við Fjölbrautaskóla Vesturlands á vorönn 2020 er 430. Þar af er 361 nemandi í dagskóla og 69 nemendur í kvöld- og helgarnámi. Frá árinu 2012 hafa ekki verið færri nemendur í FVA. Ef miðað er við gögn úr annálum FVA á heimaasíðu skólans eru 100 færri nemendur í skólanum á vorönn 2020 ef...

  • Guðjón Snær Magnússon frá Ungmennaráði Akraneskaupstaðar er varaformaður í nýstofnuðu Ungmennaráði Vesturlands. Stofnfundurinn fór fram í lok janúar þar sem að fulltrúar frá fimm ungmennaráðum komu saman. Gubjörg Halldórsdóttir frá Ungmennaráði Stykkishólmsbæjar er formaður Ungmennaráðs Vesturlands, Guðjón Snær varaformaður og Stefanía Bláfeld Viðarsdóttir hjá Ungmennaráði Snæfellsbæjar er ritari. Ungmennaráð Vesturlands. Frá vinstri Guðjón Snær Magnússon...

  • Eins og áður hefur komið fram hefur leigufélagið Heimavelli selt allar íbúðir félagsins við Holtsflöt 4 og Eyrarflöt 2. Sá aðili sem keypti íbúðirnar hefur ekki í hyggju að leigja þær áfram og því hefur öllum leigusamningum verið sagt upp. Alls eru 26 fjölskyldur í skelfilegri stöðu um þessar mundir vegna sölu Heimavalla og uppsagna...

  • Klifuríþróttin á Akranesi hefur á undanförnum misserum vaxið gríðarlega undir dyggri stjórn Þórðar Sævarssonar frumkvöðuls. Smiðjuloftið er bækistöð kraftmikils hóps Skagamanna á öllum aldri sem stundar þessa áhugaverðu íþrótt. Árangur klifrara úr röðum ÍA hefur vakið athygli. Fyrsta mót Íslandsmeistaramótaraðarinnar í grjótglímu fór fram í Klifurhúsinu um s.l. helgi. ÍA mætti með fjölmennt lið í...

  • Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, fjölmiðlakona frá Akranesi, hefur á undanförnum árum tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum hjá Stöð 2 og SÝN. Eva Laufey mun bregða sér í nýtt hlutverk á útvarpsstöðinni Bylgjunni þar sem hún mun stýra þættinum Bakaríið ásamt Svavari Erni Svavarssyni. Eva Laufey tekur við af Einari Bárðasyni. Þátturinn Bakaríið er á dagskrá...

  • Ungir kylfingar úr Golfklúbbnum Leyni stefna á að fara í æfingaferð erlendis í vor. Barna – unglinga og afreksnefnd Leynis hefur að því tilefnið sett af stað púttmótaröð sem fram fer á sunnudögum á tímabilinu 2. febrúar – 22. mars. Púttmótaröðin fer fram í nýrri æfingaaðstöðu Leynis í Garðavöllum á sunnudögum frá kl. 13-15. Fimm...

  • Bárumótið er árlegt innanfélagsmót í sundi hjá Sundfélagi Akraness. Bárumótið 2020 fór fram þriðjudaginn 4. febrúar í Bjarnalaug. Bárumótið er ætlað yngsta sundfólkinu úr röðum ÍA sem vilja öðlast meiri keppnisreynslu. Keppendur eru á aldrinum 8-12 ára, allir keppendur fá viðurkenningu fyrir þátttökuna og í mótslok er öllum keppendum boðið í pizzuveislu. Stigahæstu keppendurnir í...

  • Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hefur hefur starfað sem settur forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands frá árinu í þrjú ár eða frá árinu 2017. Hún tók við starfinu eftir að Guðjón S. Brjánsson tók sæti á Alþingi sem þingmaður Samfylkingarinnar. Nýverið var staða forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands auglýst til umsóknar. Samkvæmt frétt á vef RÚV var Jóhanna Fjóla sú eina...

  • „Eitt þúsund og eitt hundrað manns í mat í Háskólanum i dag. Sem skiptist í Hámurétt, Veganrétt og salatbar! Sjæsen! Þá er sko gott að eiga eina Stefaníu Sunnu með sér,“ skrifaði Skagamaðurinn Þórður Gylfason á fésbókarsíðu sína nýverið. Þórður, eða Doddi Gylfa, eins og hann er oftast kallaður stýrir einu stærsta mötuneyti landsins, Hámu,...

Loading...