Skagafréttir tóku þátt í því að skrá söguna á Akranesi þegar Sementsstrompurinn var felldur þann 22. mars 2019. Góður hópur Skagamanna kom að því að safna efni í þetta myndband sem Kristinn Gauti Gunnarsson setti saman. Þeir sem komu að þessu verkefni fyrir skagafrettir.is voru þeir Hjalti Sigurbjörnsson, Þórarinn Jónsson, Michal Mogila og Kristinn Gauti...
Það er lítið um að vera í íþróttalífinu um þessar mundir en það er nóg til af gömlu efni á veraldarvefnum til þess að stytta sér stundir við. Hér er brot úr körfuboltaleik þar sem að ÍA og Skallagrímur eigast við i Borgarnesi árið 1984. Það mætti halda að leikmenn beggja liða væru að fara...
Skipulags- og umhverfisráð leggur til að samið verði við Landslag ehf. um hönnun lóða við Brekkubæjar – og Grundaskóla. Tvö tilboð frá landslagsarkitektarstofum bárust í verkefnið en kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar nam 10 milljónum kr. Landslag ehf bauð 10.752.000 kr. í verkefnið en Landsmótun ehf bauð 14.784.000 kr. Landslag er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki á sviði landslagsarkitektúrs og skipulags...
Geir Þorsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA (KFÍA) og tekur hann við starfinu af Sigurði Þór Sigursteinssyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem er hér fyrir neðan. Geir hefur áratuga reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri KR auka þess að starfa sem þjálfari yngri...
Það er alltaf stuð á Rakarastofu Gísla eins og sjá má í þessu myndbandi sem eigandinn setti sjálfur fram á fésbókarsíðu sína í dag. Það hefur oft verið meira að gera á rakarastofunni eins og gefur að skilja en það þýðir ekkert að tapa gleðinni. Gísli flytur hér frumsamið lag sem heitir því frumlega nafni...
ÍSÍ og UMFÍ tilkynntu í dag að allt skipulagt íþróttastarf hér á landi verði lagt niður vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Óljóst er hve lengi bannið standa yfir. Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, hefur sent frá sér leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi...
Íslandsmótið í knattspyrnu hefst ekki á þeim tíma sem Knattspyrnusamban Íslands hafði áætlað. Á fundi stjórnar KSÍ var ákveðið að fresta upphafi Íslandsmótsins sem mun ekki hefjast fyrr en um miðjan maí í fyrsta lagi. Keppni í Lengjubikarnum hefur verið aflýst og verður enginn sigurvegari í keppninni í ár. Stjórn KSÍ hefur samþykkt að færa...
Hátt þjónustustig í versluninni Einar Ólafsson kemur mörgum til bjargar á þessum undarlegu tímum. Í tilkynningu frá „Einarsbúð“ eru Skagamenn nær og fjær minntir á heimsendingaþjónustuna sem hefur verið eitt af einkennismerkjum verslunarinnar í marga áratugi. Það er einfalt að panta eins og fram kemur í tilkynningunni hér fyrir neðan. Einfalt ! Sendu okkur tölvupóst...
Skagamaðurinn Eiríkur Jónsson var skipstjóri í síðasta túr á Akurey AK sem kom með fullfermi til hafnar í Reykjavík. Allir þrír ísfisktogarar Brims komu til löndunar með fullfermi í síðustu viku eða sem nemur 600 tonnum. Þetta kemur fram á vef Brims. ,,Það hefur verið mjög góður afli síðustu vikur og ætli það sé ekki...
Skagamaðurinn, Ísak Bergmann Jóhannesson, er efstur á lista yfir efnilegustu leikmenn sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Frá þessu er greint á fréttavef Aftonbladet en fotbolti.net greindi fyrst frá hér á landi. Ísak Bergmann er fæddur árið 2003 og er hann atvinnumaður hjá IFK Norrköping. Í valinu hjá Aftonbladet var valið úr hópi leikmanna sem eru fæddir...