„Við vonumst til þess að sjá sem flesta og það væri frábært að sjá Skagamenn fjölmenna í frítt bíó í Tónbergi um helgina. Við fengum 275 myndir sendar inn frá 40 löndum og völdum 29 myndir af þeim lista til að sýna þannig að gæðin á myndum í ár eru talsverð,“ segir Ársæll Rafn Erlingsson...
Tomasz Wisła hefur á undanförnum misserum glatt marga með skemmtilegum ljósmyndum sem hann hefur tekið á Akranesi og í nágrenni. Tomasz Wisła starfar sem lasersérfræðingur hjá hátæknifyrirtækinu Skaginn 3x og aðaáhugamál hans er eins og gefur að skilja ljósmyndun. Í vikunni birti Tomasz Wisła þessa mynd sem tekin er með stórri aðdráttarlinsu frá Akranesi –...
Hrönn Eyjólfsdóttir mun keppa fyrir hönd Fjölbrautaskóla Vesturlands í Söngkeppni framhaldsskólanna 2020 sem fram fer á Akureyri þann 18. apríl á Akureyri. Hrönn sigraði í undankeppninni hér á Akranesi hjá FVA en alls tóku sex keppendur þátt. Sigríður Sól Þórarinsdóttir, Garðar Snær Bragason, Fannar Björnsson, Ingibergur Valgarðsson, Hrönn Eyjólfsdóttir og Björgvin Þór Þórarinsson reyndu öll...
Karlalið ÍA gerði sér lítið fyrir og sigraði á Fotbolti.net mótinu sem lauk í kvöld með úrslitaleik Breiðabliks og ÍA. Leikurinn fór fram á gervigrasinu á Kópavogsvelli. Það gekk mikið á í leiknum, tvö rauð spjöld fóru á loft, en Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði þrennu fyrir ÍA í 5-2 sigri liðsins. Tryggvi Hrafn skoraði fyrsta...
Skagamaðurinn Halldór Bjarki Ólafsson var heiðraður af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni á dögunum. Halldór Bjarki er í læknisfræðinámi og hlaut hann Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands. Þetta er í 25. skipti sem þessi verðlaun eru afhent af forseta Íslands á Bessastöðum. Halldór Bjarki hefur unnið að byltingarkenndri uppgötvun um tengsl rauðra blóðkorna og dánartíðni eftir skurðaðgerðir...
Tvö stór viðhaldsverkefni á fasteignum Akraneskaupstaðar eru framundan á árinu 2020. Nýverið var ákveðið að ganga til samninga við GS Import efh. vegna viðgerða á þaki Brekkubæjarskóla og Bjarnalaugar. Alls bárust tilboð frá þremur fyrirtækjum á Akranesi í verkin. GS Import efh. bauð lægst í bæði verkefnin en fyrirtækið er Kostnaðaráætlun vegna viðgerða á þaki...
Prentmet á Akranesi hefur verið til húsa við Heiðargerði 22 á Akranesi frá árinu 2000 þegar fyrirtækið keypti Prentverk á Akranesi en frá árinu 1970 hefur prentiðnaður verið stundaður í þessu 500 fermetra iðnaðarhúsnæði. Prentverk á Akranesi á sér sögu allt aftur til ársins 1942 en lesa má nánar um þá sögu hér. Í dag...
„Með rýmri opnun bjóðum við árrisula gestir velkomna í safnið að skoða bækur, tímarit og dagblöð. Fá sér kaffisopa, nota þráðlaust net, komast í tölvu, taka bækur að láni í sjálfsafgreiðslu og skila. Í safninu er ein sjálfsafgreiðsluvél og einnig leitartölva þar sem gestir geta flett upp safnkosti,“ segir í tilkynningu frá Bókasafni Akraness sem...
Miklar breytingar eru fyrirhugaðar hjá Póstinum á dreifingu á ónafnmerktum fjölpósti á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Selfossi og Akranesi frá og með 1. maí. Rúmlega 30 starfsmönnum verður fyrir vikið sagt upp störfum frá og með deginum í dag hjá Póstinum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum. Pósturinn heldur áfram að bjóða upp á dreifingu á...
Sundmaðurinn efnilegi Enrique Snær Llorens Sigurðsson náði frábærum árangri á RIG- Reykjavík International Games 2020. Alls voru 9 keppendur frá Sundfélagi Akraness á þessu stóra alþjóðlega sundmóti þar sem 315 keppendur tóku þátt, þar af 115 erlendir keppendur. Vinsældir keppninnar hafa aukist jafnt og þétt með árunum og var mun erfiðara fyrir keppendur að komast...