Skagafréttir hafa á undanförnum tveimur árum haft umsjón með myndatöku á hinu eina sanna Þorrablóti Skagamanna. Nú styttist heldur betur í stóru stundina en Þorrablótið fer fram laugardaginn 25. janúar. Það er því vel við hæfi að rifja upp myndasyrpurnar frá síðustu tveimur Þorrablótum. Gunnhildur Lind Hansdóttir, atvinnuljósmyndari úr Borgarnesi, verður með myndavélina á lofti...
Íbúaþing um atvinnulíf á Akranesi fer fram í kvöld, 22. janúar 2020, og fer þingið fram á Garðavöllum, frístundahúsi, við golfvöllinn. Fundarefnið er atvinnulífið á Akranesi og með sérstaka áherslu á uppbyggingu á Breið og nágrenni. Í tilkynningu frá Akraneskaupstað segir að markmið þingsins sé að fá íbúa og fyrirtækjaeigendur að borði og ræða uppbyggingu...
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að starfsemi Fjöliðjunnar verði áfram á Dalbraut 10. Fjöliðjan er vinnustaður þar sem boðið er upp á verndaða vinnu og endurhæfingu fyrir þá sem þess þurfa og leita eftir þjónustu. Í Fjöliðjunni á Akranesi fer fram fjölbreytt vinna og starfsfólkið tekst á við mörg ólík verkefni. Skipulags- og...
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir, söngkona frá Akranesi, tekur þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2020. Þar syngur hún lag með Ísold Wilberg Antonsdóttur. Höfundar lagsins eru þeir Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson. Og sjálfur Stefán Hilmarsson úr Sálinni Hans Jóns Míns er textahöfundur. Helga Ingibjörg segir í skemmtilegu viðtali á fésbókarsíðu Söngvakeppninnar að höfundar lagsins hafi...
„Eftir þónokkrar vangaveltur um lífið og tilveruna komumst við að þeirri niðurstöðu að að hlutverk okkar beggja væri að hjálpa öðrum, meðal annars börnum. Við vildum leggja áherslu á að hjálpa börnum til að þau myndu átta sig betur á hver þau raunverulega eru, hvar styrkleikar þeirra liggja og hvað veitir þeim ánægju og gleði....
Það stefnir allt í það að á næstu misserum verði sett upp öryggismyndavélakerfi ásamt löggæslumyndavélum á Akranesi. Á síðasta fundi bæjarráðs var samþykkt tillaga frá skipulags- og umhverfisráði – og drög að samningi um löggæslumyndavélar á Akranesi lagður fram. Bæjarráð samþykkt að fela bæjarstjóra Akraness að fara í það verkefni að vinna að frekari úrvinnslu...
Skagamenn eiga stóran hóp leikmanna sem hafa leikið með A-landsliði karla og kvenna í gegnum tíðina. Jón Gunnlaugsson, sagnaritari og fyrrum leikmaður ÍA og landsliðsins, á ógrynni af skemmtilegri tölfræði um slíka hluti. Í þeirri tölfræði kemur m.a. fram að Stefán Teitur Þórðarson er sá 82. í röðinni frá upphafi sem kemur úr röðum ÍA...
Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson voru báðir í byrjunarliði A-landsliðs Íslands í knattspyrnu karla í nótt gegn El Salvador. Um var að ræða vináttulandsleik sem fram fór í Los Angeles í Bandaríkjunum. Kjartan Henry Finnbogason skoraði eina mark leiksins. Tryggvi Hrafn fór útaf um miðjan síðari hálfleik en Stefán Teitur fór útaf...
Nemendur í 6. og 7. bekk í Grundaskóla fengu góða heimsókn í byrjun skólársins eftir jólafríið. Arnór Sigurðsson, fyrrum nemandi Grundaskóla, og atvinnumaður í knattspyrnu hélt fyrirlestur fyrir nemendur þar sem hann hvatti unga fólkið til að hafa trú á sjálfum sér. Fyrirlesturinn hitti beint í mark hjá krökkunum og ræddi hann m.a. um mikilvægi...
Bjarki Steinn Bjarkason, leikmaður PepsiMaxliðs ÍA í karlaflokki er þessa dagana við æfingar hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Örebro. Bjarki Steinn mun æfa með A-liðinu næstu daga en mörg lið hafa sýnt þessum efnilega leikmanni áhuga. Bjarki Steinn er fæddur árið 2000 og hann kom til ÍA frá Aftureldingu í Mosfellsbæ. Bjarki Steinn hefur leikið með yngri...