• Það er ekki oft sem að enska knattspyrnan er fréttaefni á skagafrettir.is. Við bregðum útaf vananum þar sem við rákumst á þessa skemmtilegu limru sem fjöllistamaðurinn og sjúkraflutningamaðurinn Halldór Hallgrímsson setti fram á samfélagsmiðla í gær. Þar beindi hann orðum sínum að einum dyggasta stuðninsmanni Liverpool á Akranesi, Ágústi Haraðarsyni – eða Gústa Harðar Dalamanni....

  • Eins og fram hefur komið á skagafrettir.is stóðu Knattspyrnufélagið Kári og „Vinir Kidda Jens“ fyrir styrktarleik fyrir Kristinn Jens Kristinsson. Viðburðurinn tókst vel þar sem að margir lögðu lóð sín á vogarskálarnar. Í gær fór fram laufléttur viðburður þar sem að „Vnir Kidda Jens“ afhentu það sem safnaðist. Kristinn Jens og nokkrir félagar úr liði...

  • Efnilegasti knattspyrnumaður Austur-Gotlands í Svíþjóð árið 2019 er Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson. Frá þessu kjöri er greint á heimasíðu Norrköping en Ísak Bergmann er leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins. Skagamaðurinn er fæddur árið 2003 og fær því bílfprófið á næsta ári. Frændi hans, Oliver Stefánsson, sem er fæddur árið 2002, er einnig leikmaður Norrköping en hann hefur...

  • Í dag fór fram útskriftarathöfn hjá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Alls voru 65 nemendur brautskráðir og bestum árangri á stúdentsprófi náði Irma Alexandersdóttir. Jónína Víglundsdóttir áfangastjóri flutti annál haustannar 2019. Guðjón Snær Magnússon, nýstúdent, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og rifjaði hann líkt og Jónína eftirminnileg augnablik frá atburðum undanfarinna missera. Borgnesingurinn Magnús Geir Eyjólfsson,...

  • Á næsta ári verða gerðar breytingar á opnunartíma Íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum Þreksalur Jaðarsbakkar 2020:Mánudagur til föstudags: 06:00-21:15Laugardaga og sunnudaga. 09:00-18:00 Jaðarsbakkalaug 2020:Mánudagur til föstudags: 06:00-21:00Laugardaga og sunnudaga: 09:00-18:00 Breyting opnunartíma felst í því að opnað verður í þreksal og sundlaug klukkan 06:00 í stað 06:15 og lokað í þreksal 21:15 í stað 22:00.

  • Skagakona kemur við sögu á lista leitarvélarinnar Google yfir þau orð eða nöfn sem hafa aukist mest í vinsældum á leitarvélinni á árinu 2019. Á meðal vinsælustu leitarorða Íslendinga á Google á árinu 2019 eru orð á borð við lúsmý, Hatari og Notre Dame. Bardagakappinn Gunnar Nelson er sá Íslendingur sem flestir flettu uppá á...

  • Félagarnir Ólafur Dór Baldursson, Bjarki Þór Aðalsteinsson og Gunnar Ágúst Ásgeirsson ætla að láta gott af sér leiða á næstu dögum til styrktar Unicef. Þeir blása til jólatónleika þann 28. desember á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi. Brynja Valdimarsdóttir ætlar einnig að styðja við bakið á þríeykinu og syngja með þeim nokkur lög. Húsið opnar kl....

  • „Guðsmildi og óendanlegar þakkir að ekki fór verr í gær þegar barnið mitt hún Birgitta Guðmundsdóttir lenti í þessu slysi og fékk jeppa á sig. Hún er ómeidd en eðlilega í miklu sjokki, við fjölskyldan umvefjum hana,“ skrifar Skagakonan Hanna Þóra Guðbrandsdóttir á fésbókarsíðu sína vegna umferðarslyss sem átti sér stað síðdegis í gær á...

  • Nemendur úr Tónlistaskóla Akraness voru til umfjöllunar í Landanum á RÚV nýverið. Þar brá Gísli Einarsson þáttastjórnandi sér í heimsókn á Akranesi og ræddi þar m.a. við Jónínu Ernu Arnardóttur skólastjóra Tónlistarskóla Akraness. Nemendur hafa á undanförnum dögum og vikum farið í heimsóknir í stofnanir og fyrirtæki – og leikið jólalög. Kuldakastið sem gengið hefur...

  • Starfsmenn sem og nemendur Grundaskóla á Akranesi halda á ári hverju Kaffistofukeppni í desembermánuði. Þá er skólastarfið brotið upp síðustu dagana fyrir jólin. Veggskreytingar og klæðaburður eru í aðalhlutverki hjá nemendum og starfsfólki á þessum árstíma. Eins og sjá má á þessum myndum sem birtar voru á fésbókarsíðu Grundaskóla.

Loading...