Skagamenn eiga stóran hóp leikmanna sem hafa leikið með A-landsliði karla og kvenna í gegnum tíðina. Jón Gunnlaugsson, sagnaritari og fyrrum leikmaður ÍA og landsliðsins, á ógrynni af skemmtilegri tölfræði um slíka hluti. Í þeirri tölfræði kemur m.a. fram að Stefán Teitur Þórðarson er sá 82. í röðinni frá upphafi sem kemur úr röðum ÍA...
Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson voru báðir í byrjunarliði A-landsliðs Íslands í knattspyrnu karla í nótt gegn El Salvador. Um var að ræða vináttulandsleik sem fram fór í Los Angeles í Bandaríkjunum. Kjartan Henry Finnbogason skoraði eina mark leiksins. Tryggvi Hrafn fór útaf um miðjan síðari hálfleik en Stefán Teitur fór útaf...
Nemendur í 6. og 7. bekk í Grundaskóla fengu góða heimsókn í byrjun skólársins eftir jólafríið. Arnór Sigurðsson, fyrrum nemandi Grundaskóla, og atvinnumaður í knattspyrnu hélt fyrirlestur fyrir nemendur þar sem hann hvatti unga fólkið til að hafa trú á sjálfum sér. Fyrirlesturinn hitti beint í mark hjá krökkunum og ræddi hann m.a. um mikilvægi...
Bjarki Steinn Bjarkason, leikmaður PepsiMaxliðs ÍA í karlaflokki er þessa dagana við æfingar hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Örebro. Bjarki Steinn mun æfa með A-liðinu næstu daga en mörg lið hafa sýnt þessum efnilega leikmanni áhuga. Bjarki Steinn er fæddur árið 2000 og hann kom til ÍA frá Aftureldingu í Mosfellsbæ. Bjarki Steinn hefur leikið með yngri...
Keppnislið Fjölbrautaskóla Vesturlands í spurningakeppninni Gettu betur hefur lokið keppni á þessu tímabili. FVA keppti í 16-liða úrslitum í gær gegn Borgarholtsskóla. Keppnin var spennandi en endaði með 21-16 sigri FVA. Guðmundur Þór Hannesson, Amalía Sif Jessen og Karl Ívar Alfreðsson skipuðu keppnislið FVA í ár líkt og í fyrra. Alls eru 7 skólar komnir...
Stefnt er að opnun nýrrar fiskbúðar á Akranesi á næstunni samkvæmt heimildum Skagafrétta. Fiskbúðin verður staðsett í því rými þar sem að Fasteignamiðlun Vesturlands, FastVest, hefur verið til húsa við Kirkjubraut 40. Það er langt síðan að fiskbúð var starfrækt á Akranes eða frá árinu 2006 þegar Fiskihornið var opnað við Ægisbraut – en sú...
Jens Heiðar Ragnarsson er nýr slökkviliðsstjóri slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á vef Akraneskaupstaðar í dag. Alls bárust 11 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Umsjón með ráðningunni höfðu sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hjá Akraneskaupstað. Hagvangur veitti ráðgjöf...
Það stendur mikið til á næstunni hjá Fasteignasölu Vesturlands á Akranesi. Fyrirtækið hefur verið með skrifstofu á Kirkjubraut 40 s.l. 25 ár. Framundan eru flutningar hjá FastVest en fyrirtækið ætlar ekki að fara langt því nýja skrifstofan verður í rýminu þar sem að tryggingafélagið VÍS var áður með starfsstöð. „Við verðum áfram á Kirkjubraut 40...
Karlalið ÍA gerði 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni í Akraneshöllinni í fyrsta leiknum á fotbolti.net mótinu í knattspyrnu. Brynjar Snær Pálsson skoraði fyrsta mark leiksins á 25. mínútu en Guðjón Baldvinsson jafnaði fyrir Stjörnuna á 31. mínútu. Steinar Þorsteinsson kom ÍA yfir á 66. mínútu en Hilmar Árni Halldórsson jafnaði fyrir Stjörnuna 80. mínútu.
Kvennalið ÍA sigraði Gróttu örugglega í Faxaflóamótinu í knattspyrnu kvenna 6-0 í Akraneshöllinni. María Björk Ómarsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins strax á 3. mínútu. Sigrún Eva Sigurðardóttir bætti við öðru marki á 22. mínútu, Bryndís Rún Þórólfsdóttir bætti við þriðja markinu á 47. mínútu. Eva María Jónsdóttir skoraði fjórða markið á 53. mínútu. Erna Björt...