Tíu af tólf stærstu sveitarfélögum landsins hafa nú birt frumvörp til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 og af þeim ætla fimm sveitarfélög að lækka fasteignaskatta á næsta ári. Akranes lækkar mest fasteignaskatta á næsta ári samkvæmt úttekt Félags atvinnurekenda. Fréttin í heild sinni er hér: „Mesta lækkunin er á Akranesi, en þar er fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði...
CrossFit Ægir á Akranesi hefur á undanförnum tveimur starfsárum fjölgað í iðkendahópi stöðvarinnar jafnt og þétt. Frá því að líkamsræktarstöðin var opnuð við Vesturgötu 119 á Akranesi hafa fjölmargir farið í gegnum grunn-námskeið hjá CrossFit Ægi. Áhugasömum er bent á að helgar grunn-námskeið fer fram um næstu helgi, 16.-17. nóvember. Kennt er laugardag og sunnudag...
Skagamennirnir og bræðurnir Hákon Ingi – og Páll Sindri Einarssynir eru samrýmdir þegar kemur að því að velja sér fótboltafélag. Þeir sömdu nýverið við Kórdrengina sem leika í 2. deild á næsta tímabili. Þar mæta þeir fyrrum félögum sínum úr liði Kára sem leika í sömu deild. Hákon Ingi og Páll Sindri léku báðir með...
Auður Líndal og Sigríður Lína eru í aðalhlutverki í innslagi í þættinum Að Vestan sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni N4. Þær eru hönnuðirnir á bak við draugahúsið í Byggðasafninu á Akranesi sem er sett upp árlega í tengslum við hátíðina Vetrarnætur. Hátíðin er upprunalega norræn og keltnesk í hina áttina og hin ameríska Halloween er...
Knattspyrnukappinn Ríkharður Jónsson er eini Skagamaðurinn sem hefur fengið þann heiður að vera tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ. Ríkharður og handknattleikskonan Sigríður Sigurðardóttir voru tekin inn í Heiðurshöll ÍSÍ árið 2015. Nánar um Heiðurshöll ÍSÍ. Ríkharður er einn fremsti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi en hann lék 33 landsleiki og skoraði í þeim 17 mörk. Auk...
Þann 10. nóvember 2016 var fréttavefurinn skagafrettir.is opnaður með mjög svo óformlegum hætti. Skagafréttir fögnuðu því þriggja ára afmæli sínu í gær og fjórða starfsárið er hafið. Þegar verkefninu var ýtt úr vör á sínum tíma var haldið af stað út í óvissuna. Við vissum ekkert hvernig Skagamenn nær og fjær myndu taka á móti...
Árgangamót ÍA fór fram laugardaginn 9. nóvember. Viðburðurinn hefur vakið mikla athygli og metfjöldi tók þátt á Árgangamóti ÍA 2019. Guðmundur Bjarki Halldórsson ljósmyndari var á svæðinu og tók þessar frábæru myndir fyrir skagafrettir.is.
Brynhildur Traustadóttir landaði silfurverðlaunu í 400 metra skriðsundi á Íslandsmótinu í 25 metra laug sem fram fer í Ásvallalaug. Skagakonan sterka synti vegalengdina á 4.22.43 og bætti árangur sinn um eina sekúndu. Í 100 m. fjórsundi bætti Ragnheiður Karen Ólafsdóttir tímann sinn og kom í mark á 1.09.28 mín sem skilaði henni í 5. sæti....
Skagamaðurinn Eiríkur Jónsson er skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK 10. Skipið var smíðað í Tyrklandi og kom það til Íslands árið 2016. Áhöfnin á Akurey AK 10 er þaulæfð þegar kemur að því að nýta sér þjónustu Landhelgisgæslunnar. Nýverið fór fram æfing þar sem að þyrluáhöfnin á TF – GRO frá Landhelgisgæslunni æfði réttu handtökin...
Sérstakur ráðgjafi og sáttasemjari hefur verið ráðinn til þess að miðla málum milli aðila að stofnanasamningi Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þetta kemur fram á vef Kennarasambands Íslands. Mikil ólga hefur verið hjá starfsfólki FVA og nýverið höfnuðu kennarar FVA samstarfi við núverandi skólameistara og kveðast einvörðungu munu sinna kennsluskyldum og samstarfi við nemendur þar til...