Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari mfl. liðs ÍA í Pepsi-deild karla í knattspyrnu fékk í dag tvo nýja aðstoðarþjálfara. Arnór Snær Guðmundsson og Ingimar Elí Hlynsson verða aðstoðarþjálfarar – og taka við af Sigurði Jónssyni sem er í dag afreksþjálfari KFÍA. Arnór Snær hefur leikið með ÍA á undanförnum árum en hann ætlar ekki að leika...
Leikmenn ÍA/Kára/Skallagríms eru í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn í 2. umferð UEFA Unglingadeildarinnar í knattspyrnu í 2. flokki karla. Fyrri leikurinn fór fram á miðvikudaginn á Víkingsvellinum í Fossvogi. Mótherjar Íslandsmeistaraliðs ÍA/Kára/Skallagríms voru Englandsmeistaralið Derby County í aldursflokknum 18 ára og yngri. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Derby County en síðari leikurinn fer...
Sjö keppendur frá Sundfélagi Akraness, ÍA, taka þátt á Íslandsmótinu í 25 metra laug sem fram fer um næstu helgi. Íslandsmótið fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Keppnin hefst á föstudag og lýkur á sunnudag. Eins og áður segir eru sjö keppendur frá ÍA en samt sem áður náðu níu keppendur frá ÍA lágmörkum fyrir...
Ásdís Halla Bragadóttir, sem var búsett á Akranesi um langan tíma sem barn og unglingur, er í áhugaverðu viðtali hjá sjónvarpsmanninum Loga Eiðssyni. Í þættinum í „Logi í beinni“ sem sýndur er á Sjónvarp Símans segir Ásdís Halla m.a. frá óskemmtilegri reynslu sem hún varð fyrir þegar hún kom til Íslands með flugi. Á þeim...
Frumsýningu á Litlu Hryllingsbúðinni, í uppsetningu Skagaleikflokksins, hefur verið seinkað um eina viku en þetta kemur fram í tilkynningu til miðakaupenda á vefsíðunni midi.is. Skessuhorn greindi fyrst frá. Frumsýningin verður föstudaginn 15. nóvember og sýningin sem átti að vera fimmtudaginn 14. nóvember fer fram föstudaginn 22. nóvember. Söngleikurinn verður sýndur á fjölum Bíóhallarinnar. „Skagaleikflokkurinn biður...
„Ég er fædd á Akranesi og fór í gegnum alla skólagönguna hér áður en ég leiðin lá í Háskóla Reykjavíkur þar sem ég fór í byggingarverkfræði,“ segir hin 33 ára gamla Anna María Þráinsdóttir við skagafrettir.is. Anna María tók nýverið við sem útibússtjóri Verkís á Vesturlandi af Gísla Karel Halldórssyni en starfsstöð hennar er á...
Jóna Alla Axelsdóttir, söngkona frá Akranesi, nálgast toppsætið á vinsældarlista Rásar 2. Lagið heitir „Svo birti aftur til.“ Héðinn Svavarsson samdi lagið, textann gerði Ólafur Heiðar Harðarson en þeir vinna saman undir nafninu Two Spirits Music. Vinsældarlisti Rásar 2. Lagið fjallar um gosnóttina örlagaríku í Vestmannaeyjum. Atburðarás næturinnar er líst ásamt þeirri von og trú...
Íslandsmeistaralið ÍA/Kára/Skallagríms tapaði naumlega 2-1 gegn enska liðinu Derby County í Unglingadeild UEFA í kvöld. Þetta var fyrri viðureignin í 2. umferð keppninnar. Síðari leikurinn fer fram á heimavelli Derby County miðvikudaginn 27. nóvember. Derby County komst í 2-0 fyrri hálfleik með mörkum á 16. og 39. mínútu. Fyrst skoraði Festy Ebosele og Jack Stretton...
Guðjón S. Brjánsson, alþingismaður Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi, skorar á Heilbrigðisráðherra að skoða þann möguleika að nýta betur skurðstofurnar á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Guðjón er fyrrum forstjóri Heilbrigðisstofnunnar Vesturlands á Akranesi. Þingmaðurinn sagði þetta í ræðu sinni á Alþingi, og beindi þeim tilmælum til heilbrigðisráðherra að nýta sér þá kostnaðargreiningu sem þegar hefur farið fram varðandi...
Það er ýmsu að hyggja þegar frostið bítur grimmt. Við viljum því benda sumarhúsaeigendum á að huga vel að vatnslögnum í sumarhúsum sínum. Kynningarefni frá Securitas. Á hverjum ári verða vatnstjón í sumarhúsum sem má rekja til frostskemmda í vatnslögnum. Með því að gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að það frjósi...