Það var líf og fjör á Smiðjuloftinu um s.l. helgi þar sem að árlegt Hrekkjavökumót ÍA fór þar fram. Hátt í 60 klifrarar á aldrinum 4-13 ára tóku þátt og góðir gestir mættu í heimsókn. Hópur klifrara frá Reykjavík mætti á svæðið ásamt félögum í nýstofnaðri klifurdeild Ungmennafélags Laugdæla á Laugarvatni. Á föstudagskvöldið klifruðu flokkar...
Sameiginlegt lið ÍA/Kára/Skallagríms í 2. flokki karla í knattspyrnu er áberandi í tölfræðisamantekt Unglingadeildar UEFA. Liðið mætir enska meistaraliðinu Derby County á miðvikudaginn og fer leikurinn fram á Víkingsvelli i Reykjavík og hefst hann kl. 19:00. Um er að ræða fyrri leikinn í 2. umferð Evrópudeildarinnar. Alls hafa verið leiknir 82 leikir í keppninni, sem...
Það stendur mikið til í Frístundamiðstöðinni við golfvöll Skagamanna á fimmtudagskvöld. Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar verður með opið hús þar sem að 37 laga tvöfaldur diskur með lögum Skagamannsins Óðins G. Þórarinssonar verður kynntur. Diskurinn hefur fengið nafnið „Þá og nú.“ Mörg af lögum Óðins hafa náð miklum vinsældum og má þar nefna „Nú liggur vel...
„Foamflex er fyrir fólk á öllum aldri og sem dæmi má nefna að amma mín 72 ára elskar þessa tíma,“ segir Elísa Svala Elvarsdóttir íþróttafræðinemi og FoamFlex kennari. Á undanförnum vikum hefur hún boðið upp á FoamFLex tíma í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka við góðar undirtektir. En hvað er FoamFlex? „Það er nú bara þannig að...
Glæpaskáldsagan Marrið í stiganum eftir Skagkonuna Evu Björg Ægisdóttur kemur út næsta vor í enskri útgáfu. Bókin heitir „The Creak on the Stairs“ í þýðingu Victoriu Cribb og útgefandinn Orenda Books. Bækur eftir íslenska höfunda ferðast víða um heiminn og eru þýddar á æ fleiri tungumál, en þau eru nú orðin um fimmtíu talsins. Þýðingum...
Gríðarleg svifryksmengun er í Hvalfjarðargöngunum og má líkja ástandinu við borgir á borð vð Nýju-Delí á Indlandi og Peking í Kína. Þetta kom fram í máli Gísla Guðmundssonar jarðfræðings hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, á rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar sem haldin var síðastliðinn föstudag. Morgunblaðið greinir frá. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir frá því á fésbókarsíðu sinni að meðalstyrkur svifryks...
Hópur nemenda frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fór á dögunum í heimsókn til Berlín í Þýskalandi. Hópurinn dvaldi i borginni í fimm daga en ferðin var hluti af valáfanga í þýsku. Kristín Luise Köttenheinrich, þýskukennari, skipulagði ferðina og fór fyrir hópnum ásamt Steingrími Benediktssyni, kennara. Um 25 nemendur fóru í ferðina til Berlínar. Að sögn...
Aníta Ólafsdóttir og Eva María Jónsdóttir eru klárar í slaginn með kvennaliði ÍA í Inkassodeildinni 2020. Þær skrifuðu báðar nýverið undir samning við ÍA og eru samningar þeirra til tveggja ára eða út árið 2021. Eva María er fædd árið 1999 og hefur spilað 44 deildar- og bikarleiki með ÍA og skorað í þeim sex...
Íslandsmeistaralið ÍA/Kára/Skallagríms í 2. flokki karla í knattspyrnu hefur æft af krafti á undanförnu vikum fyrir stórverkefni liðsins í Evrópukeppni UEFA í þessum aldursflokki. Mótherjarnir eru enska liðið Derby County sem fagnaði Englandsmeistartitlinum í U-18 ára úrvalsdeildinni á Englandi. Fyrri leikurinn er á miðvikudaginn á Víkingsvellinum í Fossvogi í Reykjavík og hefst hann kl. 19:00....
Guðmundur Sigvaldason, sem hefur starfað sem framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis frá árinu 2013, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leyni. „Tíminn hjá Golfklúbbnum hefur verið afar gefandi og skemmtilegur og hefur verið gaman að vinna fyrir félagsmenn Leynis. Ég er þakklátur öllu því góða starfsfólki og samstarfsfólki sem...