• Í myndbandinu hér fyrir neðan eru ýmsar klippur frá HEIMA-SKAGA tónlistarhátíðinni á Akranesi 2019. Tónlistarhátíðin vakti mikla athygli, uppselt var á viðburðinn, og gestir skemmtu sér vel í veðurblíðunni á Akranesi föstudagskvöldið 1. nóvember. Ragnheiður Gröndal, Högni, Jónas Sig, Friðrik Dór og Valgeir Guðjónsson koma við sögu í myndbandinu. Úlfur var líka á svæðinu en...

  • Tónlistarhátíðin HEIMA-SKAGI fór fram í gær á Akranesi. Þetta var í fyrsta sinn sem hátíðin fór fram og komust færri að en vildu á HEIMA-SKAGA hátlðina. Óhætt er að segja að Skagamenn og aðrir gestir hafi kunnað að meta það sem boðið var upp á. Hús gestgjafa hátíðarinnar voru þéttsetinn og frábærir listamenn buðu upp...

  • Á Akranesi eru fjórir leikskólar, tveir grunnskólar og einn framhaldsskóli. Leikskólarnir eru Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel. Grunnskólarnir eru Brekkubæjarskóli og Grundaskóli. Framhaldsskólinn er Fjölbrautaskóli Vesturlands. Þessar stofnanir eru á meðal stærstu vinnustaða Akraneskaupstaðar. Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan er mikill meirihluti starfsmanna á þessum vinnustöðum konur. Staðreynd sem hefur reyndar...

  • Það var draugalegt um að litast á Byggaðsafninu á Görðum á Akranesi í gær þegar hinn árlegi viðburður Veturnætur fór þar fram. Allskonar furðuverur voru á kreiki í byggingunni en viðburðurinn er hluti af Vökudögum og sannkölluð „Hrekkjavökustemning“ var til staðar. Að venju var gríðarlega góð mæting en 1.600 gestir þorðu að mæta á svæðið...

  • Í Brekkubæjarskóla á Akranesi hafa nemendur látið ljós sitt skína á Morgunstundum sem haldnar eru með reglulegu millibili. Á þessum Morgunstundum koma nemendur og starfsfólk Brekkubæjarskóla saman í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mikið er lagt í verkefnið og margar hendur sem koma að þeim undirbúningi. Dagskráin á Morgunstundinni er fjölbreytt og hæfileikar nemenda fá að njóta...

  • Skagamaðurinn Jón Leó Ríkharðsson kemur að uppbyggingu á stærsta sólarorkuveri Svíþjóðar. Alls verða 50.000 sólarspeglar settir upp meðfram þjóðvegi E20 fyrir utan bæinn Strängnäs. Jón Leó starfar hjá fyrirtækinu HSB Södermanland og er verkefnið unnið í samstarfi við EnergiEngagemang. HSB eru félagssamtök sem hefur það m.a. að markmiði að byggja upp hagkvæmt húsnæði. Alls eru...

  • Kennarar við Fjölbrautaskóla Vesturlands hafna samstarfi við núverandi skólameistara og kveðast einvörðungu munu sinna kennsluskyldum og samstarfi við nemendur þar til nýr skólameistari hefur verið skipaður. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á félagsfundi Kennarafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands sem fram fór 21. október síðastliðinn. Áður höfðu kennarar við skólann lýst vantrausti á núverandi skólameistara....

  • Jón Kristjánsson er nýr þjálfari Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi. Gengið var frá ráðningu hins þaulreynda þjálfara í kvöld. Jón hefur mikla reynslu sem þjálfari . Hann þjálfað liði KF og Hamars þegar þau léku í 2. deild karla. Lið Kára lék í 2. deildinni á síðustu leiktíð og endaði í 10. sæti af alls 12...

  • Það er ekki alltaf þögn á Bókasafni Akraness eins og sjá má í myndböndunum sem Skagafréttir tóku í gær. Kór Grundaskóla bauð til fjölskyldusöngskemmtunar síðdegis í gær og er viðburðurinn hluti Vökudögum Akraness. Bókasafnið var þétt setið og góð stemning á meðal kórfélaga og gesta. Kór Grundaskóla er eingöngu skipaður stúlkum og höfðu þær lagt...

  • Hjördís Grímarsdóttir var í skemmtilegu spjalli í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 þar sem hún sagði frá einlægum áhuga sínum á hrekkjavökuhátíðinni. Hjördís heldur mikið og stórt hrekkjavökupartý þar sem hún býður m.a. nemendum sínum úr Grundaskóla á Akranesi í heimsókn. Hjördís hefur einnig haldið úti hinum vinsæla vef mommur.is fer ótroðnar slóðir...

Loading...