Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, á eftir að keppa á tveimur mótum á þessu tímabili á LET Evrópumótaröðinni. Þetta kemur fram á golf.is Í lok nóvember, 28.-1. desember fer fram mót á Spáni, Andalucia Costa del Sol, á Aloha vellinum og lokamót tímabilsins á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki fer síðan fram...
Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson hafa á undanförnum árum vakið athygli fyrir áhugaverða sjónvarpsþætti sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni N4. Þættirnir heita „Að Vestan“ og fyrsti þátturinn í nýrri seríu var frumsýndur í kvöld. Í innslaginu hér fyrir neðan ræðir Hlédís Sveinsdóttir um þættina „Að Vestan“ við þáttastjórnanda á N4 á Akureyri. Hún segir...
Þróunarfélag Grundartanga og kísilver Elkem vinna nú að nýtingu þeirrar umframorku sem myndast við framleiðslu verksmiðjunnar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu. Í framleiðsluferlinu myndast mikill varmi sem hingað til hefur ekki verið nýttur og er þar talað um glatvarma. „Hugmyndin að baki því að nýta þennan glatvarma er að fanga þessa orku í stað þess...
Jón Gísli Eyland Gíslason, leikmaður ÍA og Ísak Bergmann Jóhannesson leikmaður Norrköping í Svíþjóð eru í U-19 ára landsliðshóp Íslands sem tekur þátt í undankeppni EM 2020. Oliver Stefánsson, leikmaður Norrköping, væri án efa í þessum hópi líka en hann getur ekki tekið þátt vegna meiðsla. Þorvaldur Örlygsson, fyrrum þjálfari mfl. karla hjá ÍA er...
Körfuboltastrákarnir úr 10. flokki ÍA halda áfram að gera góða hluti á Íslandsmótinu 2019-2020. Um síðustu helgi lék ÍA gegn Þór á Akureyri., lokatölur 73-65 fyrir ÍA. Skagamenn hafa nú sigrað í öllum fjórum leikjum sínum á Íslandsmótinu í 10. flokk en í liðinu eru leikmenn sem eru á síðasta ári í grunnskóla eða yngri....
„Hugbúnaðurinn sem við fengum verðlaun fyrir er gagnvirkur dómsalur í sýndarveruleika þar sem þolendur kynferðisofbeldis geta komið með sínum fagaðila og æft sig í öruggu umhverfi,“ segir Skagakonan Edit Ómarsdóttir sem fékk Gulleggið 2019 ásamt Helgu Margréti Ólafsdóttur og Hafdísi Sæland fyrir bestu stafrænu lausnina á uppskeruhátíð keppninnar í síðustu viku. Gulleggið er frumkvöðlakeppni Icelandic...
Enska knattspyrnan er ekki oft til umfjöllunar á skagafrettir.is en þessi saga er of góð til að sleppa henni. Hallgrímur Viðar Arnarson er í fámennum en kraftmiklum hópi stuðningsmanna enska liðsins Southampton. Hann fór í „pílagrímsferð“ með syni sínum til Southampton s.l. föstudag þar sem hann var viðstaddur leik sinna manna gegn Leicester. Hallgrímur Arnar...
Á dögunum sóttu Heiðrún Hámundardóttir, tónmenntarkennari og Bryndís Böðvarsdóttir fund á vegum Erasmus+ í Faro í Portúgal. Er það liður í tveggja ára verkefninu „And Action“ þar sem áhersla er á kvikmyndir og kvikmyndagerð. Verkefni skólanna sem taka þátt er að gera fréttaþátt um viðfangsefni er tengjast nærumhvefinu. Í þessari ferð þeirra skipulögðu þær áframhaldið...
Öflug viðbragðsáætlun í Elkem og snör handtök Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar komu í veg fyrir stórbruna í verksmiðjunni við Grundatanga snemma í morgun. „Allir eru heilir, og það er aðalatriðið,“ segir Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem á Íslandi í samtali við mbl.is. Einar bætir því við að óvíst er hvaða áhrif þetta atviki hafi á starfsemi...
Danskan verður í hávegum höfð á vorönn 2020 grunnskóla Akraness. Bæjarráð hefur samþykkt að taka á móti dönsku farkennar sem mun starfa í grunnskólum Akraneskaupstaðar á næstu önn. Verkefnið er á grundvelli samstarfssamnings mennta- og menningamálaráðuneytanna á Íslandi og í Danmörku. Laun kennarans eru að fullu greidd af danska ráðuneytinu og til viðbótar greiðir ráðuneytið...