• Skagamennirnir Bjarni Guðjónsson og Arnþór Ingi Kristinsson fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í gær með liði KR í Pepsi-Maxdeild karla í knattspyrnu. Bjarni er aðstoðarþjálfari KR-liðsins og Arnþór Ingi er að leika sitt fyrsta tímabil með KR en hann lék áður með Víkingum úr Reykjavík. Þetta var 27. Íslandsmeistaratitill KR í efstu deild karla. Bjarni og Arnþór Ingi...

  • Heimildarmyndin Kaf, verður sýnd í Bíóhöllinni á Akranesi, þriðjudaginn 17. september kl. 20.00.Myndin er með mikla Skagatengingu og er Bjarnalaug á Akranesi í stóru hlutverki í mörgum atriðum myndarinnar. Myndin Kaf hefur fengið frábæra dóma hjá Fréttblaðinu og Morgunblaðinu. Myndin fjallar um ungbarnasundsfrumkvöðulinn, Snorra Magnússon, sem er fæddur á Akranesi og var í fremstu röð...

  • Skagamaðurinn Arnar Gunnlaugsson stýrði liði Víkings úr Reykjavík til sigurs í Mjólkurbikarkeppni KSÍ s.l. laugardag. Þetta er í annað sinn sem Víkingur fagnar sigri í þessari keppni en 48 ára bið félagsins eftir þessum titli lauk s.l. laugardag með 1-0 sigri gegn liði FH, „Þetta er geggjað maður,“ sagði Arnar við fotbolti.net eftir leikinn en...

  • Það var sannkölluð sigurhátíð í Akraneshöllinni s.l. laugardag þegar sameinlegt lið ÍA/Kára og Skallagríms fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með formlegum hætti. ÍA/Kári og Skallagrímur fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í keppni A og B liða. Þetta er annað árið í röð sem ÍA/Kári/Skallagrímur sigrar á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla í keppni A-liða í 2. flokki. Í þeim flokki eru leikmenn...

  • Eins og komið hefur fram áður á vef Skagafrétta verður Kútter Sigurfari fjarlægður og skipinu fargað. Frá því í mars á þessu ári hefur verið leitað að áhugasömum aðilum sem vilja eignast skipið. Það hefur ekki tekist. Ella María Gunnarsdóttir, forstöðumaður menningar- og safnamál, fór yfir stöðuna á Kútter Sigurfara á síðasta fundi bæjarráðs. Þar...

  • Sóknarnefnd Akraneskirkju íhugar að skila gjöf sem Akraneskaupstaður afhenti Akraneskirkju árið 2008. Um er að ræða gamla Iðnskólahúsið við Skólabraut, en Akraneskaupstaður gaf Akraneskirkju eignina árið 2008. Ástæðan fyrir þessari hugmynd er að margvíslegar skemmdir komu fram í húsinu fljótlega eftir að gjöfin átti sér stað. Meðal annars á klæðningu sem ekki var unnin í...

  • Kvennalið ÍA tryggði sér í kvöld áframhaldandi veru í næst efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu, Inkasso-deildinni. ÍA lagði Aftureldingu á heimavelli, Norðurálsvellinum. Lokatölur 2-0. Fyrra mark leiksins kom strax á 6. mínútu en það var sjálfsmark hjá Aftureldingu. Védís Agla Reynisdóttir tryggði sigurinn með marki á 82. mínútu og þar við sat. Á sama tíma...

  • Nýverið var tilkynnt um opnunartíma Guðlaugar yfir vetrarmánuðina. Það er óhætt að segja að fyrstu tillögur um opnunartímann hafi ekki fallið í kramið hjá bæjarbúum á Akranesi, gestum og ferðamönnum. Bæjarráð hefur snúið frá fyrri ákvörðun sinni og gefið út nýja opnunartíma fyrir veturinn 2019-2020. Þetta var ákveðið á fundir bæjarráðs þann 12. september. Breytingin...

  • Minningarsjóður Guðbjarts Hannessonar veitti í fyrsta sinn verðlaun við brautskráningu Tómstunda- og félagsmálafræðinga á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Verðlaunin eru ætluð einstaklingum er ljúka námi með fyrstu einkunn, skila framúrskarandi lokaverkefni, hafa unnið óeigingjarnt starf sem fulltrúar nemenda í stjórn deildar og verið virk í félagslífi. Indíana Björk Birgisdóttir hlaut verðlaunin að þessu sinni. Þetta kemur...

  • Það verður nóg um að vera hjá frábæru sjálboðaliðateymi ÍATV um helgina. Dagskráin verður þétt á netsjónvarpsstöðinni sem hefur vakið mikla athygli fyrir framúrskarandi þjónustu, fagmennsku og úthald. Knattspyrnuleikir verða áberandi í dagskrá helgarinnar. Dagskráin er eftirfarandi: Föstudagur 13.09:16:45 – Norðurálsvöllur, ÍA – Afturelding*Inkasso-deild kvenna. ÍA er í harðri baráttu fyrir tilverurétti sínum í næst...

Loading...