• Kvennalið ÍA lék frábærlega í síðari hálfleik gegn Þrótti úr Reykjavík í gær í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyrnu. Staðan var dökk í fyrri hálfleik þar sem að gestirnir skoruðu tvö mörk. Staðan var 2- 1 í hálfleik. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði fyrir ÍA á 24. mínútu. Fríða Halldórsdóttir jafnaði metin á 55. mínútu og...

  • Hörður Ingi Gunnarsson og Stefán Teitur Þórðarson hafa samið á ný við Knattspyrnufélag ÍA. Þeir skrifuðu undir samning til þriggja ára. Hörður Ingi Gunnarsson er fæddur árið 1998 og hefur spilað 32 deildar- og bikarleiki með ÍA og skorað í þeim eitt mark. Hann á að baki fjölda unglingalandsliðsleikja með U17, U19 og U21 árs...

  • Akraneskaupstaður í samstarfi við Íþróttabandalag Akraness og Knattspyrnufélag ÍA hafa keypt fjóra svokallaða „klobbavelli” eða „pönnur”. Frá þessu er greint á vef Akraneskaupstaðar. Um er að ræða litla átthyrnda fótboltavelli þar sem að hægt er að spila hraða og skemmtilega leiki, einn á móti einum. Miðvikudaginn 29. maí síðastliðinn voru fyrstu tveir vellirnir vígðir á sitthvorri...

  • Skagamaðurinn Arn­ór Sig­urðsson fékk 10 í einkunn hjá tölfræðimiðlinum WhoScor­ed eftir lokaumferðina í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arnór skorað eitt mark og lagði upp mark sem Hörður Björgvin Gunnarsson skoraði í 6-0 sigri CSKA Moskva gegn Krilia So­vet­ov. CSKA Moskva endaði í 4. sæti deildarinnar og tryggði sér sæti í Evrópudeildinni á næsta tímabili. Arnór...

  • Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum s.l. þriðjudag einróma nýjan rekstrarsamning við Golfklúbbinn Leyni. Samningurinn er til þriggja ára og er umtalsverð hækkun á fjárhæðinni sem Leynir fær til að reksturs golfvallarins að Görðum. Akraneskaupstaður leggur Golfklúbbnum Leyni til árlega framlag til reksturs golfvallar að fjárhæð kr. 16.100.000. Upphæðin var nálægt 9 milljónum í gamla samningnum....

  • Það stendur mikið til næsta laugardag á Garðavelli á Akranesi hjá Golfklúbbnum Leyni. Opið Hjóna – og paramót er á dagskrá þann 1. júní en slík mót hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum út um allt land. Þar sameinast hjón og pör í leik með kúlur og kylfur. Keppnisfyrirkomulagið er Texas-Scramble. Nú þegar hafa...

  • Arnar Már Guðjónsson mun stýra ÍA fagninu næstu þrjú árin. Miðjumaðurinn þaulreyndi skrifaði í dag undir nýjan samning við uppeldisfélagið. Arnar Már hefur nú þegar leikið 351 leik með ÍA og skorað alls 70 mörk. Flest þeirra með þrumufleygum. „Tímabilið í ár hefur byrjað virkilega vel og ég hef sjaldan verið hluti af jafngóðum og...

  • Eva Björk Ægisdóttir fékk mikla athygli fyrir fyrstu skáldsöguna sem hún skrifaði og gaf út í fyrra. Marrið í stiganum fékk spennu­sagna­verð­launin Svart­fuglinn sem afhent voru í fyrravor. Bókin hefur fengið frábæra dóma og vakið mikla athygli. Eva Björk var nýverið í viðtali hjá Hallgrími Thorsteinssyni – þar sem að hún segir frá hvernig sagan...

  • Guðjón Þórðarson hefur farið vel af stað sem þjálfari knattspyrnuliðsins NSÍ í færeysku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Skagamaðurinn er með lið sitt í toppbaráttunni í „Betri deildinni“ eins og úrvalsdeildin kallast í Færeyjum. NSÍ er í öðru sæti deildarinnar eftir 11 umferðir. Heimir Guðjónsson, fyrrum lærisveinn Guðjóns hjá KR, er þjálfari HB sem er í fimmta...

  • Skagamaðurinn Hjalti Sigurbjörnsson skráir sögu Akraness úr lofti flesta daga ársins. Hjalti var á ferðinni með drónann hátt yfir Norðurálsvelli þegar ÍA lagði Stjörnuna 2-0 í PepsiMax-deild karla s.l. sunnudag. Þar fangaði hann stemninguna hjá tæplega 1.800 áhorfendum sem mættu á leikinn. Myndbandið segir allt sem segja þarf.

Loading...