Aðsend grein frá Heiðrúnu Janusardóttur Undanfarið hefur vefmiðillinn Skagafréttir birt greinaflokk undir heitinu Þorpið í kaupstaðnum þar sem undirrituð hefur reynt eftir bestu getu að greina frá því starfi sem fer fram innan Frístundamiðstöðvarinnar Þorpsins. Á bak við allt faglegt starf eru ákveðin fræði. Þorpið byggir sitt starf á tómstunda- og félagsmálafræðum. Sífellt fjölgar þeim...
Skagafréttir litu við í Brekkubæjarskóla í dag og fór í heimsókn í 6 BS. Þar hittum við eldklárar stelpur sem sigruðu í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Nemendur úr Brekkubæjarskóla náðu langt í þessari keppni og fjölmargar hugmyndir náðu alla leið í úrslit keppninnar. Regína Lea Ólafsdóttir, Sóley Líf Konráðsdóttir, Oliwia Huba, Anna Valgerður Árnadóttir, Tinna Rós Halldórsdóttir,...
„Ég er mjög ánægður með að gera nýjan samning við ÍA. Það er frábær stemning í hópnum og liðsheildin er mjög þétt. Tímabilið hefur byrjað ótrúlega vel og það er virkilega gaman að taka þátt í því,” segir Bjarki Steinn Bjarkason sem skrifaði nýverið undir nýjan þriggja ára samning við Knattspyrnufélag ÍA. Bjarki Steinn er...
Skagamaðurinn Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood International, náði í morgun að standa á hæsta tindi veraldar á fjallinu Everest. Frá þessu er greint á mbl.is. Bjarni er fæddur árið 1968 fagnaði því 50 ára afmæli sínu á síðasta ári. Bjarni er níundi Íslendingurinn sem nær á toppinn á hæsta fjalli heims. Á þessum fámenna lista...
Anna Valgerður Árnadóttir og Oliwia Huba eru eldklárar og hugmyndaríkir nemendur úr 6 BS í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Þær gerðu sér lítið fyrir og stóðu uppi sem sigurvegarar í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2019. Anna Valgerður og Oliwia skiluðu af sér tæki sem kallast Hafragrautaruppáhellari. Hugvit þeirra skilaði þeim fartölvu, mynd með Forseta Íslands og spjalli við...
Það var mikið um að vera á Akratorgi í gær í veðurblíðunni á Akranesi. Þar var boðið upp á dans þar sem að nemendur í 6. bekk Brekkubæjarskóla brugðu á leik ásamt vinabekk frá Carr’s Glens Primary School í Belfast á Norður-Írlandi. Þetta verkefni er liður í Erasmus+ verkefninu „And action“ sem Brekkubæjarskóli er þátttakandi...
Stórtíðindi frá einum stærsta vinnustað Akurnesinga. Nýr forstjóri tekur við af Ragnari Guðmundssyni. Ragnar Guðmundsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri Norðuráls. Ragnar hóf störf hjá Norðuráli árið 1997 sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og tók við sem forstjóri árið 2007. Ragnar mun verða stjórnendum Norðuráls til ráðgjafar næstu mánuði. Þetta kemur fram í...
Tæplega 30 keppendur frá Sundfélagi Akraness tóku þátt á sundmóti ÍRB sem fram fór um s.l. helgi í Reykjanesbæ. Sundfólkið úr ÍA landaði alls 25 verðlaunapeningum á þessu móti og margir bættu árangur sinn. Enrique Snær Llorens Sigurðsson setti nýtt Akranesmet í flokki 15-17 ára í 800 metra skriðsundi. Enrique kom í mark á 9.23.27...
Skagamenn halda áfram að klífa upp metorðastigann í klifuríþróttinni á Íslandi. Um s.l. helgi átti ÍA mjög góðu gengi að fagna á Íslandsmeistaramótaröðinni – en um var að ræða annað mót tímabilsins. Tveir keppendur frá ÍA náðu að komast á verðlaunapall. Í C-flokki stúlkna hafnaði Sylvía Þórðardóttir í öðru sæti eftir öruggt klifur og Sverrir...
Skagamenn voru fjölmennir á Kópavogsvelli í kvöld þegar ÍA sótti Breiðablik heim í Pepsi-Maxdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Einar Logi Einarsson skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma og tryggði ÍA stigin þrjú í toppslagnum. Gleðin var einlæg í leikslok eins og sjá má í þessu myndbandi.