Skagamaðurinn Jón Ingi Þorvaldsson tók þátt í því að setja nýtt Ástralíumet í fallhlífarstökki um s.l. helgi. Alls tóku 130 stökkvarar þátt í því að setja Ástralíumet – og stökkið var framkvæmt á fallhlífarstökksvæðinu Skydive Perris í Kaliforníu. Jón Ingi segir í viðtali við mbl.is að hann hafi verið heppinn að fá að komast inn...
Eins og fram hefur komið á skagafrettir.is hætti Sigríður Steinunn Jónsdóttir sem verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað um miðjan maí. Bæjarráð hefur samþykkt að auglýsa ekki eftir nýjum verkefnastjóra atvinnumála. Fjármagn vegna launakostnaðar verkefnastjóra verður nýtt til aðkeyptrar sérfræðiþjónustu vegna verkefna sem tengjast atvinnuuppbyggingu á Akranesi. Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram eftirfarandi bókun á fundi bæjarráðs. Á fundi...
Hleðslustöðvum verður fjölgað verulega á Akranesi á næstu misserum. Samkomulag þess efnis var samþykkt í bæjarráði Akraness nýverið. Akraneskaupstaðar, Orkuveita Reykjavíkur og Veitur ætla í sameiningu að standa að uppbyggingu innviða til hleðslu á rafbílum á Akranesi. Akraneskaupstaður leggur til 4 milljónir kr. í verkefnið á árinu 2019, Orkuveita Reykjavíkur leggur til sömu fjárhæð sem...
Bæjarráð Akraness leggur til að samið verði við Kaja organic ehf. um veitingasölu í þjónustuhúsinu við Guðlaugu við Langsand. Tillaga þess efnis var samþykkt í bæjarráði nýverið. Samstarfið er tilraunaverkefni sem gildir frá 25. maí til 31. ágúst 2019.
Kvennalið ÍA lék frábærlega í síðari hálfleik gegn Þrótti úr Reykjavík í gær í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyrnu. Staðan var dökk í fyrri hálfleik þar sem að gestirnir skoruðu tvö mörk. Staðan var 2- 1 í hálfleik. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði fyrir ÍA á 24. mínútu. Fríða Halldórsdóttir jafnaði metin á 55. mínútu og...
Hörður Ingi Gunnarsson og Stefán Teitur Þórðarson hafa samið á ný við Knattspyrnufélag ÍA. Þeir skrifuðu undir samning til þriggja ára. Hörður Ingi Gunnarsson er fæddur árið 1998 og hefur spilað 32 deildar- og bikarleiki með ÍA og skorað í þeim eitt mark. Hann á að baki fjölda unglingalandsliðsleikja með U17, U19 og U21 árs...
Akraneskaupstaður í samstarfi við Íþróttabandalag Akraness og Knattspyrnufélag ÍA hafa keypt fjóra svokallaða „klobbavelli” eða „pönnur”. Frá þessu er greint á vef Akraneskaupstaðar. Um er að ræða litla átthyrnda fótboltavelli þar sem að hægt er að spila hraða og skemmtilega leiki, einn á móti einum. Miðvikudaginn 29. maí síðastliðinn voru fyrstu tveir vellirnir vígðir á sitthvorri...
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson fékk 10 í einkunn hjá tölfræðimiðlinum WhoScored eftir lokaumferðina í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arnór skorað eitt mark og lagði upp mark sem Hörður Björgvin Gunnarsson skoraði í 6-0 sigri CSKA Moskva gegn Krilia Sovetov. CSKA Moskva endaði í 4. sæti deildarinnar og tryggði sér sæti í Evrópudeildinni á næsta tímabili. Arnór...
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum s.l. þriðjudag einróma nýjan rekstrarsamning við Golfklúbbinn Leyni. Samningurinn er til þriggja ára og er umtalsverð hækkun á fjárhæðinni sem Leynir fær til að reksturs golfvallarins að Görðum. Akraneskaupstaður leggur Golfklúbbnum Leyni til árlega framlag til reksturs golfvallar að fjárhæð kr. 16.100.000. Upphæðin var nálægt 9 milljónum í gamla samningnum....
Það stendur mikið til næsta laugardag á Garðavelli á Akranesi hjá Golfklúbbnum Leyni. Opið Hjóna – og paramót er á dagskrá þann 1. júní en slík mót hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum út um allt land. Þar sameinast hjón og pör í leik með kúlur og kylfur. Keppnisfyrirkomulagið er Texas-Scramble. Nú þegar hafa...