• Heiðrún Janusardóttir verkefnisstjóri æskulýðs-og forvarnarmála hjá Akraneskaupstað skrifar hér þriðja pistilinn af alls fjórum þar sem að hún beinir kastljósinu að því mikla starfi sem unnið er í Þorpinu. Ungmennahúsið Hvíta húsið hóf starfsemi sína 1. maí 2002 í húsnæði gamla Iðnskólans á Akranesi að frumkvæði Rauða kross deilda á Vesturlandi í samstarfi við Akraneskaupstað....

  • Halldór Jónsson og Jón Ármann Einarsson hafa á undanförnum árum verið í fremstu röð í stórum hópi sjálfboðaliða hjá Golfklúbbnum Leyni. Halldór og Jón Ármann fengu báðir viðurkenningu fyrir þeirra framlag í gær þegar 75. ársþing Íþróttabandalags Akraness fór fram. Þeir fengu báðir bandalagsmerki ÍA fyrir ómælda aðstoð sína við hin ýmsu störf á golfvellinum...

  • Það gekk mikið á í Bíóhöllinni í dag þegar Skagafréttir litu þar við. Æfingar stóðu yfir fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fer á laugardaginn. Ísólfur Haraldsson, framkvæmdastjóri keppninnar, segir í samtali við Skagafréttir að það sé stórkostlegt að upplifa það að svona stór viðburður sé á fjölum Bíóhallarinnar. „Ég hvet Skagamenn á öllum aldri til...

  • Senn líður að því að nýr bæjarlistamaður Akraness taki við af Eðvarði Lárussyni – sem var útnefndur bæjarlistamaður Akraness árið 2018. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann Akraness árið 2019. Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tillögur sem berast og...

  • Kvennalið ÍA í knattspyrnu hefur á undanförnum dögum dvalið á Spáni við æfingar og keppni. ÍA lék æfingaleik gegn Lorca Femínas og landaði þar góðum 4-0 sigri.Mörkin skoruðu þær Erna Elíasdóttir, Fríða Halldórsdóttir, Erla Karítas Jóhannesdóttir og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir. Fyrsti leikur ÍA í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu á Íslandsmótinu fer fram eftir tæplega fjórar...

  • Skúffukaka og mjólk er uppskrift að sigri fyrir Káramenn í knattspyrnunni ef marka má úrslitin gegn Hamarsmönnum úr Hveragerði í gær. Kári landaði þar 5-1 sigri og komst þar með áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Kári mætir Vestra eða Víði þann 20. apríl. Áhorfendum var boðið upp á mjólk og skúffuköku á leiknum. Í...

  • Nemendur á málmiðnaðarbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fóru í áhugaverða heimsókn á Grundartanga á dögunum. Eins og gefur að skilja eru fjölmörg tækifæri fyrir nemendur á þessu sviði hjá fyrirtækjum sem eru með starfssemi á Grundartangasvæðinu. Vélsmiðjan Hamar á Grundartanga og Elkem Ísland buðu nemendum í heimsókn. Þar sem nemendurnir fengu tækifæri að skoða fyrirtækin...

  • „Ég vildi mest koma hingað á Akranes þar sem ég þekki allt. Aðstaðan hér til æfinga er með þeim betri á landinu ef ekki sú besta. Gæðin á æfingunum komu mér einnig á óvart,“ segir Tryggvi Hrafn Haraldsson leikmaður ÍA í viðtali við Skagafréttir. Tryggvi samdi við sænska úrvalsdeildarliðið Halmstad í ágúst árið 2017. Hann...

  • Eins og áður hefur komið fram náði sundfólk úr röðum ÍA góðum árangri á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug. Mótið fór fram um s.l. helgi. Á lokakeppnisdeginum landaði Enrique Snær Llorens bronsverðlaunum í 400 metra fjórsundi og Brynhildur Traustadóttir gerði slíkt hið sama í 200 metra skriðsundi. Brynhildur fékk tvenn bronsverðlaun á mótinu en hún...

  • „Ég vonast til þess að fá einhver tækifæri með ÍA liðinu í sumar. Markmiðið er að komast í leikmannahópinn og nýta þau tækifæri sem ég fæ. Ef ég skora þá ætla ég að fagna eins og Mbappé,“ segir Hákon Arnar Haraldsson leikmaður ÍA við Skagafréttir. Hákon Arnar hefur haft í nógu að snúast að undanförnu...

Loading...