• Það er mikill áhugi hjá Skagamönnum á Rock of Ages sem er kraftmikill Brodway söngleikur eftir Chris D’Arienzo. Aðeins örfáir miðar eru eftir á frumsýninguna sem fram fer föstudaginn 22. mars. Sýningin er ein sú stærsta og umfangsmesta sem FVA og Bíóhöllin hafa sett upp. Verkefnið er unnið í samvinnu við Tónlistarskóla Akraness. Fjöldi duglegra nemenda...

  • Ferðamenn halda áfram að koma á Akranes þrátt fyrir að blikur séu í lofti í þeirri atvinnugrein. Hilmar Sigvaldason, starfsmaður í Akranesvita, tekur á móti mörg þúsund gestum víðsvegar að úr heiminum á hverju ári. Nýverið kom stór hópur af ferðamönnum á vegum Iceland Travel í Akranesvita – en þessi hópur hafði ferðast alla leið...

  • ´ Miklar breytingar voru gerðar á stjórn Sundfélags Akraness á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Þaulreyndur sundkappi og fyrrum íþróttamaður Akraness, Ágúst Júlíusson, tekur við formennskunni, af Trausta Gylfasyni. Harpa Finnbogadóttir varaformaður og Ingibjörg Júlíusdóttir gengu úr stjórn en í þeirra stað voru kjörin Þórdís Guðmundsdóttir, Ruth Jörgengsdóttir Rauterberg Fundarstjórn var í höndum Karítasar...

  • „Allir áhugasamir um nýsköpun, atvinnu og gott samfélag á Vesturlandi eiga ekki að láta sig vanta á ráðstefnuna á laugardaginn. Okkar er ábyrgðin,“ segir Helena Guttormsdóttir við Skagafréttir. Helena er ein af þeim sem kemur að skipulagningu á málþinginu „Að sækja vatnið yfir lækinn“ sem haldið verður í Tónbergi Akranesi laugardaginn 23.mars. Þar  koma saman aðilar af...

  • Tveir Skagamenn eru í íslenska landsliðinu í knattspyrnu karla sem mætir Andorra á föstudaginn í undankeppni Evrópumótsins. Það eru þeir Arnór Sigurðsson og Björn Bergmann Sigurðarson en þeir leika báðir í rússnesku úrvalsdeildinni. Arnór er áberandi í viðtölum hjá íslenskum fréttamiðlum sem hafa fylgt liðinu þar sem það undirbýr sig í æfingabúðum landsliðsins á Spáni....

  • Hvað verður um krónurnar okkar sem við greiðum í útsvar eða skatt til Akraneskaupstaðar? Atvinnu- og ferðamál / menningar- og safnamál eru útskýrð í þessu myndbandi. Þetta fimmta myndbandið af alls fimm þar sem að fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar er útskýrð með einföldum hætti. Myndböndin veita upplýsingar um einstaka málaflokka innan stjórnsýslunnar, þ.e. skipulags- og umhverfismál, menningar-...

  • Um s.l. helgi fór fram lokaumferðin í Meistarakeppni Ungmenna í keilu. Bæði voru veitt verðlaun fyrir umferðina og fyrir samanlagðan áragnur vetrarins. Nær allir keppendur ÍA náðu á pall en allir keppendur stóðu sig frábærlega og oft á tíðum yfir eigin meðaltali. Hér fyrir neðan eru myndir af verðlaunahöfum ÍA. Auglýsing Auglýsing

  • Sementsstrompurinn verður felldur fimmtudaginn 21. mars eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is. Nákvæm tímasetning hefur ekki verið gefin út enn sem komið er. Danskir sprengjusérfræðingar taka ákvörðun um hvenær sprengingarnar fara fram. Samkvæmt heimildum Skagafrétta er líklegast að farið verði í framkvæmdina á bilinu 12-13 fimmtudaginn 21. mars. Það er verktakinn Work North...

  • Nýr keppnisbúningur ÍA fyrir yngri flokka félagsins í knattspyrnu kemur vel út og eru iðkendur ánægðir með gula búninginn. Að venju eru fjölmörg fyrirtæki sem styðja við bakið á ÍA með því að kaupa auglýsingar á búninginn – og fer ekkert á milli mála hvaða fyrirtæki það eru. Það eru ekki margir sem vita hver...

  • „Ég hlakka til að takast á við áskoranir og skemmtileg verkefni með þessum öfluga hópi,“ segir Skagakonan Bjarnheiður Hallsdóttir sem mun leiða nýskipaða stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar sem formaður. Bjarnheiður hefur starfað við ferðaþjónustu í þrjá áratugi en hún er stofnandi og framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Katla DMI ehf. Aðalfundur SAF fór fram á Húsavík og er ný...

Loading...