Matthías Leó Sigurðsson hefur á undanförnum misserum vakið athygli fyrir frábæran árangur í keiluíþróttinni. Matthías tók þátt um liðna helgi á alþjóðlegu móti í Danmörku. Þar náði Skagamaðurinn ungi öðru sæti en hann lék til úrslita gegn heimamanninum Tobias Kastfelt Bryde. Matthías er 12 ára gamall og er lengst til hægri á myndinni en sem...
Kór Akraneskirkju verður með tónleika í Guðríðarkirkju fimmtudaginn 14. mars. Þar ætlar kórinn að kynna geisladiskinn Þýtur í stráum sem kom út í desember s.l. Á diskinum má finna úrval kórlaga sem kórinn hefur flutt í gegnum tíðina. Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast hér. Textar eru á íslensku og má finna ljóð og þýðingar...
Breytingar verða gerðar á opnunartíma þjónustuvers bæjarskrifstofunnar frá og með 18. mars 2019. Bæjarráð Akraness samþykkti tillögu þess efnis þann 27. febrúar s.l. Frá og með 18. mars verður opnunartími í þjónustuveri frá 9-15 mánud. – fimmtud. en á föstudögum verður opið til 14.00. Aðalbreyting er sú að opið verður í hádeginu og einnig verður...
Það gengur á ýmsu á hafinu hjá sjómönnum eins og sjá má í þessu myndbandi sem Gísli Gíslason birtir á fésbókinni. Myndbandið er tekið úr stýrishúsi Bjarna Ólafssonar sem er á kolmunnaveiðum. Eins og sjá má er veðrið ekki gott og bræla á miðunum. Kolmunni er ein af 10 mest veiddu fisktegundum í heimi. Stofninn...
Skagamaðurinn Jakob S. Sigurðsson og Skýr frá Skálakoti sigruðu fimmganginn annað árið í röð í Meistaradeildinni í hestamennsku sem fram fór s.l. föstudag. Keppnin var afar spennandi og munaði aðeins 0,03 stigum á fyrsta og öðru sætinu. Jakob er efstur í einstaklingskeppninni í Meistaradeildinni með 32 stig en þar á eftir kemur Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir með...
Mikill gróska er í pílukastíþróttinni hér á landi. Pílufélag Akraness var stofnað nýverið og nú er komið að aðalfundi félagsins sem fram fer mánudaginn 4. mars í aðstöðu Keilufélagsins í kjallaranu á íþróttahúsinu við Vesturgötu. Markmið félagsins er að iðka pílukast, glæða áhuga á pílukastíþróttinni og stuðla að bættri aðstöðu til iðkunar hennar á Akranesi....
Bæjarráð hefur samþykkt að kaupa land við Æðarodda/Miðvog fyrir um 8 milljónir kr. Um er að ræða land sem var í eigu Þorgeirs og Helga/Smellinn/BM Vallá. Akraneskaupstaður og Hestamannafélagið Dreyri skrifuðu í maí árið 2018 undir viljayfirlýsingu um byggingu á reiðskemmu sem staðsett verður við Æðarodda. Landið sem Akraneskaupstaður var að kaupa verður notað að hluta...
Skagamaðurinn Jóhann Magnússon hefur vakið athygli með skemmtilegri útfærslu á góðgæti sem nota má á sjálfan bolludaginn. Jóhann rekur Verslunina Albínu á Petreksfirði og án efa verður ísbollan vinsæl hjá gestum og gangandi á mánudaginn. Jóhann er fæddur árið 1969 á Akranesi en hann er sonur Magnúsar Villa Vilhjálmssonar frá Efstabæ og Sigrúnar Jóhannsdóttur frá...
Skagamenn halda áfram að skora mörkin í Lengjubikarkeppninni í knattspyrnu karla. ÍA mætti Þór frá Akureyri í Akraneshöllinni í gær og endaði leikurinn 4-1 fyrir ÍA. Þetta var þriðji sigurleikur ÍA í keppinni og liðið hefur skorað alls 12 mörk í þessum þremur leikjum og er í efsta sæti riðilsins. Mörk ÍA skoruðu: Tryggvi Hrafn Haraldsson...
Það verður nóg um að vera í Tónlistarskóla Akraness í næstu viku eða dagana 4.-8. mars. Margir spennandi viðburðir eru á dagskrá og er aðgangur ókeypis á alla viðburðina. Margir listamenn mæta á svæðið og er dagskráin eftirfarandi. Þriðjudaginn 5. mars. kl. 17:30. mætir Hljómsveit Bjössa Thors og Unnar Birnu með tónleikaprógram sem samanstendur af...