„Smiðjuloftið er frábær staður til að halda afmælisveislur. Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á þægindi og góða þjónustu og hjá okkur er nóg um að vera fyrir alla aldurshópa,“ segir Þórður Sævarsson í Smiðjuloftinu. Á Smiðjuloftinu er glæsileg aðstaða til þess að gera afmælisdaginn enn eftirminnilegri. – Glæsilegir klifurveggir – Leiktæki eins...
Fasteignaverð hækkaði mest á Akranesi eða um tæp tuttugu prósent á milli áranna 2017 og 2018. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Þróun fasteignaverðs í fjórum bæjum er borið saman við höfuðborgarsvæðið á þessum tíma. Bæirnir eru Akureyri, Árborg, Akranes og Reykjanesbær. Akranes skorar hæst í þessum samanburði, með 20% hækkun, en á höfuðborgarsvæðinu var...
Ekkert verður af siglingum á milli Akraness og Reykjavíkur á árinu 2019 en stefnt er að því að bjóða upp á slíka þjónustu á árinu 2020. Í fundargerð Skipulags- og umhverfisráðs Akraness kemur fram að samþykkt hafi verið að vinna að útboðsgögnum vegna Flóasiglinga 2020. Samhliða vinnu við útboðsgögn verði unnin greinargerð um reynslu af Flóasiglingum 2017....
Á fundi bæjarstjórnar Akraness sem fram fór í gær var fjallað um aðkomu ríkisins að uppbyggingu þjóðvegar í þéttbýli við Faxabraut. Í ályktun sem sett fram á fundinum í gær eru samgönguyfirvöld og ríkisstjórn hvött til að tryggja nægt fjármagn til Faxabrautar – eigi síðar en á árunum 2021 og 2022. Bæjarstjórnin samþykkti með öllum...
Skagamenn stóðu sig vel á Gullmóti KR í sundi sem fram fór um s.l. helgi. Rétt tæplega 460 keppendur mættu til leiks. ÍA var með 33 keppendur á aldrinum 9-18 ára. Það sem vekur athygli er að keppendur ÍA bættu sig í 153 skipti af alls 175 mögulegum bætingum. Sannarlega glæsilegur árangur. Yngstu keppendurnir frá...
Skagamaðurinn Davíð Þór Jónsson stóð uppi sem sigurvegari við afhendingu Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunanna 2019 í Berlín í dag. Verðlaunin hlýtur Davíð fyrir tónlist sína í kvikmynd Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð. Þetta kemur fram á RÚV. Þetta í níunda sinn sem verðlaunin eru veitt. Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunin bera heitið Harpa og eru veitt árlega einu tónskáldi...
Stefán Þór Steindórsson, byggingafulltrúi Akraness, er fjölhæfur svo ekki sé meira sagt. Skagamaðurinn á eitt af lögunum í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2019. Lagið heitir „Þú bætir mig / Make me whole“ og er það flutt af Ívari Daníels. Lagið verður flutt laugardaginn 16. febrúar í forkeppni Söngvakeppninnar sem sýnt verður á RÚV. Stefán Þór hefur töluverða...
Öldungaráð verður stofnað hjá Akraneskaupstað á næstunni. Sveitarfélög eiga að koma slíkum ráðum á laggirnar samkvæmt breytingum á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sem tóku gildi þann 1. okt. 2018. Öldungaráðum er fyrst og fremst ætlað að vera formlegur vettvangur fyrir samráð við notendur um öldrunarþjónustu. Öldungaráðum er ætlað að taka við því hlutverki sem þjónustuhópum aldraðra...
Starfsmenn áhaldahúss bæjarins vinna nú hörðum höndum við að salta stíga og helstu íbúagötur bæjarins. Byrjað verður að salta við stofnanir og í framhaldinu farið um íbúagötur bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Veðurspá næstu daga bíður upp á hlýnandi veður en fer kólnandi þegar líður á vikuna. Auglýsing Auglýsing
Aníta Ólafsdóttir, leikmaður ÍA, er í U17 ára landsliði kvenna sem mætir Írum í tveimur vináttuleikjum 18. og 20. febrúar n.k. Báðir leikirnir fara fram í Kópavogi, sá fyrri kl. 18.00 í Fífunni og sá síðari kl. 12.00 í Kórnum. Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari liðsins: Hópurinn: Hafrún Rakel Halldórsdóttir | Afturelding Elín Helena Karlsdóttir...