• Svo gæti farið að Valdís Þóra Jónsdóttir verði keppendi í golfi á næstu Ólympíuleikum. Næstu leikar fara fram í Tókýó í Japan árið 2020 og er Valdís Þóra þessa stundina á meðal þeirra 60 keppenda sem kæmust inn á ÓL. Ólympíuleikarnir í Tókýó í Japan verða settir þann 24. júlí árið 2020 eða eftir tæplega...

  • Rekstur Guðlaugar við Langasand mun falla undir ábyrgðarsvið forstöðumanns íþróttamannvirkja. Frá því var greint á fundi Skóla- og frístundaráðs á dögunum. Gert er ráð fyrir að laugin verði opnuð fyrir almenning á næstunni. Samkvæmt heimildum Skagafrétta er áætlað að kostnaðurinn við byggingu Guðlaugar verði rétt rúmlega 80 milljónir kr.  Og er það nokkuð nálægt þeirri áætlun...

  • Skagamaðurinn Heimir Bergmann, eigandi fasteignasölunnar Lögheimili, segir að margir íbúar á Akranesi hafi sýnt því áhuga að kaupa eignir á Spáni. „Við höfum fengið margar fyrirspurnir um eignir á Spáni. Til þess að bregðast við þeim áhuga verður kynning á Akranesi á  húseignum á Spáni. Kynningin fer fram á skrifstofu Lögheimilis á Akranesi við Skólabraut 26...

  • Brynhildur Traustadóttir, sundkona frá Akranesi, fór fremst í flokki um helgina hjá Skagamönnum á Íslandsmótinu í 25 metra laug. Brynhildur landaði þrennum verðlaunum. Þar stóð upp úr að hún fékk gullverðlaun í 1500 metra skriðsundi og náði þar að auki lágmörkum í tveimur sundum á Norðurlandameistaramótið. Keppendur frá ÍA áttu í heildina frábæra keppnishelgi. Alls...

  • Það var góð stemning þegar starfsfólk og eigendur Ritari fögnuðu 10 ára starfsafmæli fyrirtækisins nýverið í höfuðstöðvum Ritari við Esjubraut 49. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 11 manns og hefur Ritari stækkað jafnt og þétt á undanförnum tíu árum. Hjónin Ingibjörg Valdimarsdóttir og Eggert Herbertsson eru eigendur Ritari. Ingibjörg er hér lengst til hægri ásamt...

  • Árgangamót ÍA fór fram í dag í Akraneshöll. Að venju var glæsileg mæting og rúmlega 20 lið tóku þátt. Nánar verður greint frá úrslitum mótsins hér á skagafrettir.is síðar en hér eru myndir sem teknar voru á mótinu.

  • Þann 10. nóvember 2016 var fréttavefurinn skagafrettir.is opnaður með mjög svo óformlegum hætti. Skagafréttir eru því tveggja ára í dag. Þegar verkefninu var ýtt úr vör á sínum tíma var haldið af stað út í óvissuna. Við vissum ekkert hvernig Skagamenn nær og fjær myndu taka á móti því sem við höfum fram að færa....

  • Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórsson hefur leik laugardaginn 10. nóvember á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar. Keppt er á Lumine golfsvæðinu við Tarragona rétt utan við Barcelona á Spáni. Alls verða leiknir sex hringir og alls hafa 156 keppendur tryggt sig inn á lokaúrtökumótið og koma þeir frá 26 löndum. Birgir Leifur hefur leik kl. 9.35 að íslenskum tíma...

  • „Ég var með mikla þörf fyrir að hreyfa mig þegar ég var barn. Ég byrjaði að ganga á höndum þriggja ára gamall – og leikskólakennararnir sögðu að ég gengi meira á höndum en fótum. Á Akranesi prófaði ég flestar íþróttir eins og gerist og gengur. Mér fannst einfaldlega skemmtilegra að fá að hoppa og skoppa...

  • Skagamaðurinn Ólafur Hallgrímsson er í afar áhugverðu viðtali á vefnum lifidernuna.is. Þar segir Ólafur frá því að hann sé á leið í háskólanám eftir fjörtíu ára starfsferil sem sjómaður. Ólafur hefur komið víða við á starfsferli sínum sem sjómaður og segir hann frá því helsta í þessu stórskemmtilega viðtali. Ólafur var lengi búsettur í Noregi...

Loading...