Atli Vikar Ingimundarson og Brynhildur Traustadóttir stóðu uppi sem stigameistarar á Akranesmeistaramótinu í sundi sem fram fór í Jaðarsbakkalaug fimmtudaginn 27. september s.l. Alls tóku 33 keppendur þátt og var mótið vel heppnað þrátt fyrir að kalt hafi verið í veðri. Fjölmargir voru á bakkanum að hvetja krakkana og myndaðist skemmtileg stemmning Akranesmeistar 2018...
Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið yfirþjálfara fyrir yngri flokka félagsins. Skagmaðurinn Skarphéðinn Magnússon tekur við starfinu um næstu mánaðarmót. Skarphéðinn hefur starfað hjá KFÍA frá árinu 2014 og þjálfað marga af yngri flokkum félagsins. „Ég tel þetta vera frábært tækifæri fyrir mig sem þjálfara. Ég sé fram á virkilega spennandi tíma enda um mjög krefjandi starf...
Kvöldvökurnar á Gamla Kaupfélaginu hafa vakið mikla lukku hjá Skagamönnum á þessu ári. Listamenn úr öllum áttum hafa mætt með reglulegu millibili á fimmtudagskvöldum og hefur mætingin verið góð. Í gær var boðið upp á lifandi tónlist á tónleikum þar sem lög með írsku stórhljómsveitinni U2 voru á dagskrá. Landsþekktir tónlistarmenn skipuðu hljómsveitina sem hefur...
Innheimtu í Hvalfjarðargöngin var hætt skömmu eftir hádegi ídag, föstudaginn 28. september, og göngin verða afhent íslenska ríkinu á sunnudaginn. RÚV greindi fyrst frá þessu. Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, segir í frétt á Vísir að samkomulag um endanlegt uppgjör sé nú klárt – og öll skilyrði fyrir hendi að afhenda ríkinu göngin og hætta innheimtu...
Það styttist í að Guðlaugin við Langasand á Akranesi verði tekin í notkun. Verkinu er að mestu lokið og aðeins á eftir að ganga frá ýmsum smáatriðum við vinnusvæðið. Verkefnið var unnið af Ístak en Guðlaug er steinsteypt mannvirki staðsett í brimvarnargarðinum við Langasand. Guðlaug er á þremur hæðum, en á efstu hæðinni er útsýnispallur, en...
Bæjarstjórn Akraness fjallaði á fundi sínum í gær um þann merkisáfanga sem verður í lok september 2018 – þegar Spölur skilar Hvalfjarðargöngum til ríkisins tveimur áratugum eftir að þau voru opnuð. Bæjarstjórnin sendi eftirfarandi ályktun frá sér í gær. Bæjarstjórn Akraness fagnar þeim merkisáfanga sem verður í lok þessa mánaðar, þegar Spölur skilar Hvalfjarðargöngum fullfjármögnuðum...
Það var mikið um dýrðir þegar leikmenn ÍA, forsvarsmenn félagsins, þjálfarar og stuðningsmenn settu punktinn fyrir aftan frábært keppnistímabil í knattspyrnunni á Akranesi. Myndirnar sem eru hérna fyrir neðan segja allt sem segja þarf. Auglýsing Auglýsing
Lokahóf meistaraflokka karla og kvenna hjá Knattspyrnufélagi ÍA fór fram um s.l. helgi. Þar voru ýmsar viðurkenningar veittar á skemmtilegu kvöldi sem fram fór í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka. Leikmenn ársins í Inkasso-deild kvenna og karla hjá ÍA 2018 eru þau Unnur Ýr Haraldsdóttir og Arnar Már Guðjónsson. Efnilegustu leikmenn ársins voru einnig valdir en það eru...
Skagamennirnir Ísak Bergmann Jóhannesson og Oliver Stefánsson eru þessa stundina staddir í borginni Farum í Danmörku. Þeir munu æfa með FC Nordsjælland í eina viku en liðið er í efsta deild þar í landi. Félagið óskaði eftir því að fá örfættu frændurna frá Akranesi til reynslu. Ísak Bergmann er fæddur árið 2003 og Oliver er fæddur...
Guðbjörg Árnadóttir hlaut Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2017 fyrir framúrskarandi framlag til menningarmála á Akranesi. Á vef Akraneskaupstaðar er óskað eftir tilnefningum fyrir árið 2018. Smelltu hér til að senda inn tilnefningu fyrir árið 2018: Menningarverðlaunin verða afhent á menningarhátíðinni Vökudögum sem fram fer dagana 25. október – 4. nóvember. Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að nýta sér...