• Veðrið var með allra besta móti í dag á Akranesi. Sólin lét sjá sig, hitastigið var nálægt 10 gráðum, nánast logn og Akranes skartaði sínu fegursta. Baldur Ólafsson var á ferðinni í dag með dróna sem flaug í um 100 metra hæð yfir Akranesi. Hann tók þessar myndir sem sýna Akranes úr lofti frá skemmtilegu...

  • Bæjarbúar á Akranesi hafa á undanförnum misserum fylgst vel með gangi mála hvað varðar framtíð Sementsstrompsins. Nú er ljóst að það styttist í að strompurinn verði felldur. Bæjarstjórn Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum samhljóða tillögu þess efnis að Sementsstrompurinn verði fjarlægður. Formlegt ferl fer nú í gang þar sem að tillögur að breytingum á...

  • Tinna Helgadóttir og Atli Jóhannesson landsliðsþjálfarar í badminton hafa valið í landsliðshópana sem verða á æfingum saman í vetur. ÍA á alls sex fulltrúa  landsliðshópunum en alls eru 55 leikmenn í landsliðshópunum. Leikmennirnir frá ÍA eru Máni Berg Ellertsson, Viktor Freyr Ólfasson, Arnar Freyr Fannarsson, María Rún Ellertsdóttir, Davíð Örn Harðarson, Brynjar Már Ellertsson. Þess má geta að...

  • ÍA leikur tímamótaleik á laugardaginn kl. 13 á Grenivík í Inkasso-deild karla í knattspyrnu. Það verður í fyrsta sinn sem ÍA leikur gegn Magna í deildarkeppni á heimavelli Magna í Grenivík. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. ÍA er í efsta sæti deildarinnar og framundan er hörkulokasprettur um laust sæti í Pepsi-deildinni en Magni...

  • Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson mun leika með CSKA Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni. Hinn 19 ára gamli miðjumaður var keyptur fyrir metfé frá sænska liðinu Norrköping. Samkvæmt frétt á visir.is er greint frá því að kaupverðið sé um 500 milljónir kr. og að ÍA fái um 10% af kaupverðinu. Heimildir Vísis eru þær að ÍA hafi samið um...

  • Það er margt áhugavert í boði í vetrardagskrá Smiðjuloftsins opnaði nýverið eftir sumarfrí. Smiðjuloftið er afþreyingarmiðstöð þar sem hægt er að stunda klifur, og einnig er aðstaða fyrir ýmsar samkomur, fundi og afmælisveislur. Klifuríþróttin hefur notið ört vaxandi vinsælda á Akranesi og í hverjum mánuði er boðið upp á kynningarkvöld fyrir nýja klifrara. Slík kynningarkvöld...

  • Landssamtökin Þroskahjálp reka húsbyggingasjóð sem byggir og kaupir íbúðir sem eru leigðar fötluðu fólki. Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að fara í viðræður við samtökin um byggingu eða kaup á íbúðum á Akranesi fyrir fatlaða. Fulltrúar samstarfsaðila hafa farið yfir lóðir í Skógarhverfi 2 sem koma til greina við byggingu á húsnæði. Þetta kemur fram í...

  • Það eru sviptingar í þjálfaramálum ÍA í körfubolta karla. Bandaríkjamaðurinn Chaz Franklin kemur til landsins í byrjun næstu viku. Eins og greint var frá nýverið var búið að komast að samkomulagi við Jermelle Fraser en það gekk ekki eftir. Chaz Franklin er 37 ára gamall og kemur frá borginni Philadelphia. Franklin er með mikla reynslu sem leikmaður...

  • Skagamaðurinn Hrannar Örn Hauksson sigraði í sumarmyndakeppni VR.  Fjölmargir tóku þátt en myndin hans Hrannars þótti sú besta. Myndin segir allt sem segja þarf. Það er án efa einhver tilvísun í sumarveðrið 2018 á SV-hluta landsins í þessari framsetningu og mynduppbyggingu. Pollagalli, stígvél, húfa, sólgleraugu og mikið vatn. Reyndar er ekki rigning og það þykir...

  • Síðdegis í dag var stigið stórt framfaraskref hjá Fimleikafélagi Akraness. Hafist var handa við framkvæmdir á nýju fimleikahúsi við íþróttahúsið við Vesturgötu – og var fjölmenni mætti til þess að fylgjast með því þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Guðmundur Claxton formaður FIMA, Marella Steinsdóttir formaður ÍA og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness tóku fyrstu skóflustunguna....

Loading...