Leikmenn Kára og forsvarsmenn félagsins söfnuðu góðum minningum í ferð liðsins austur í Fjarðabyggð þar sem liðið lék gegn Leikni frá Fáskrúðsfirði. Andri Júlíusson skoraði sigurmark Kára úr vítspyrnu í fyrri hálfleik og með sigrinum heldur Kári áfram að gera atlögu að efstu sætum deildarinnar – og liðið á enn góða möguleika á að komast...
Skagamenn eru enn á toppnum í Inkasso-deild karla í knattspyrnu þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn HK í toppslag deildarinnar á föstudagskvöld. Það er óhætt að segja að ÍA hafi fengið færin til þess að skora gegn Kópavogsliðinu. Tvær vítaspyrnur fóru í súginn hjá ÍA sem markvörður HK varði. Skagamenn eru með 40 stig á toppi...
Það styttist í að framkvæmdir við nýjar íbúðir við Dalbraut 4 hefjist. Um er að ræða íbúðir og félagsheimili fyrir eldri borgara á Akranesi. Um er að ræða 26 íbúðir í fimm hæða húsi. Félagsaðstaða eldri borgara verður á 1. hæð en íbúðirnar eru á hæðunum þar fyrir ofan. Fasteignasalan Lögheimili verður með kynningu á...
Maren Leósdóttir og Unnur Ýr Haraldsdóttir skoruðu glæsileg mörk fyrir ÍA í 2-0 sigri liðsins gegn toppliði Fylkis í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu. Maren skoraði strax á 4. mínútu með glæsilegu langskoti. Staðan var 1-0 í hálfleik og Unnur Ýr bætti við öðru marki ÍA rétt fyrir leikslok með góðu skoti úr vítateignum eftir snarpa...
Bergdís Fanney Einarsdóttir, leikmaður ÍA, er í landsliðshóp Íslands sem mætir Noregi og Svíþjóð í lok ágúst. Þetta verkefni bætist því í reynslubankann hjá Bergdísi sem hefur tekið þátt í mörgum landsliðsverkefnum yngri landsliða Íslands á undanförnum misserum. Um er að ræða vináttuleiki hjá U19 ára landsliði kvenna. Skagamaðurinn Þórður Þórðarson er þjálfari liðsins. Leikirnir...
Mikill áhugi er á nýju starfi persónuverndarfulltrúa sem Akraneskaupstaður auglýsti til umsóknar í sumar. Umsóknarfrestur rann út 26. júlí s.l. og sóttu 12 aðilar um starfið. Tveir þeirra drógu umsókn sína til baka og stendur ráðningarferlið yfir – segir í frétt á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Ný persónuverndarreglugerð ESB gerir það verkum að bæjarfélög þurfa að ráða persónuverndarfulltrúa. Sjá nánar...
„Það væri draumur að fylla völlinn. Gerum þetta saman!,“ segir Hallbera Guðný Gísladóttir leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Hallbera Guðný er fædd á Akranesi og lék með yngri flokkum og mfl. ÍA. Hallbera lék með ÍA til 2005, með Val 2006 til 2011 og var síðan í hálft þriðja ár erlendis með Piteå í Svíþjóð og...
Sögur frá Akranesi koma víða við á samfélagsmiðlum á borð við Instagram. Hér má sjá brot af því sem hægt er að finna á vefnum þar sem myllumerkið #akranes er notað. Eins og sjá má er margt sem vekur áhuga þeirra sem heimsækja Akranes og einnig hjá íbúum bæjarins. #akranes #akranesbeach #iceland #icelandicnature #icelandtravel A...
Mánudaginn 13. ágúst síðastliðinn var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og fyrirtækisins Spennt ehf. um byggingu fimleikahúss á Akranesi. Framkvæmir við nýtt fimleikahús hefjast í ágúst á þessu ári og eru áætluð verklok í desember 2019. Í síðustu viku var undirritaður samningur á milli Akraneskaupstaðar og Spennt ehf. sem átti lægsta tilboðið í verkefnið. Alls bárust...
Skagamennirnir Guðmundur Kári Þorgrímsson, Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Logi Örn Axel Ingvarsson eru í landsliðshóp Íslands sem keppir á Evrópumótinu í hópfimleikum. Þeir keppa allir fyrir Stjörnuna en hófu ferilinn með Fimleikafélagi Akraness, ÍA. Evrópumótið fer fram í Lissabon í Portúgal 17.-20. október 2018 og keppa Guðmundur, Helgi og Logi í blönduðu liði fullorðinna. Mikil samkeppni...