• Arnór Sigurðsson er orðaður við rússneska liðið CSKA frá Moskvu. Hinn 19 ára gamli Skagamaður hefur leikið sem atvinnumaður hjá Norrköping í Svíþjóð undanfarin tvö tímabil. Hann samdi við sænska liðið vorið 2017. Samkvæmt heimildum fréttavefsins fotbolti.net hefur CSKA Moskva lagt á ný fram tilboð í leikmanninn en félagið hefur sýnt Arnóri áhuga á undanförnum mánuðum....

  • Lokatölur úr leik ÍA og Keflavíkur sem fram fór í gærkvöld í Inkasso-deild kvenna í Akraneshöllinni segja ekki alla söguna. Leikurinn var jafn og spennandi allt þar til að 10 mínútur voru eftir. Gestirnir úr Bítlabænum skoruðu þrjú mörk á síðustu tíu mínútum leiksins og breyttu stöðunni úr 2-1 í 5-1. Staðan var 2-1 fyrir...

  • Það eru margir sem leggja leið sína í Byggðasafniðí Görðum á hverju ári. Þar er hægt að kynna sér sögu Akraness og nágrennis. Safnið var opnað árið 1959 og hefur grunnsýning safnsins dregið fram áherslur úr sögu útgerðar, landbúnaðar, heimilishalds og þjóðlífs á svæðinu. Til stendur að opna nýja grunnsýningu í lok ársins 2019 í tilefni...

  • Knattspyrnufélag ÍA leitar að nýjum yfirþjálfara yngri flokka félagsins. Lúðvík Gunnarsson hefur gegnt þessu starfi frá því í nóvember á síðasta ári en hann tók við af Jóni Þóri Haukssyni. Í auglýsingu KFÍA segir m.a. að félagið leiti eftir kraftmiklum leiðtoga til að taka að sér yfirþjálfara starf félagsins. Þjálfarar félagsins eru um 30 og...

  • Jermelle Fraser verður þjálfari og leikmaður körfuknattleiksliðs ÍA næsta vetur ef allt gengur að óskum. Félagið hefur komist að munnlegu samkomulagi við Bandaríkjamanninn sem mun koma til landsins í september. Fraser er fæddur árið 1987 og hefur á undanförnum misserum þjálfað í Malmö í Svíþjóð með góðum árangri. Fraser mun þjálfa yngri flokka ÍA ásamt...

  • Knattspyrnufélag ÍA fær rúmlega 6,3  milljónir kr. úr HM sjóði Knattspyrnusambands Íslands af þeim 200 milljónum kr. sem KSÍ úthlutaði til aðildarfélaga. Fjármunum sem veitt er til aðildarfélaga skal eingöngu varið til knattspyrnutengdra verkefna félaganna. Á ársþingi KSÍ sem fram fór 10. febrúar sl. var tilkynnt að 200 mkr. yrði úthlutað á árinu til aðildarfélaga KSÍ...

  • „Ég hleypt til styrktar Ljóssins sem er endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir fyrir fólk sem tekur slaginn við krabbamein – það fólk eru hetjur í mínum augum. Einnig er þetta hlaup til þess að sanna að allir geta hlaupið, meira að segja eðal skyrhausar – áfram gakk,“ segir Gísli Þór Gíslason, sem oftar en ekki er...

  • „On My Mind“ er nýtt lag sem Skagamaðurinn Baldur Einarsson birti nýverið á Youtube. Baldur var að útskrifast úr 10. bekk Grundaskóla á Akranesi. Hann vakti mikla athygli fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hjartasteinn – og næsta skref á ferli hans á listasviðinu er tónlistin. Baldur þarf ekki að leita langt eftir góðum ráðum varðandi...

  • Skagamenn eru á siglingu í Inkasso-deild karla í knattspyrnu. Liðið er á toppi deildarinnar eftir 16 umferðir eftir 2-0 sigur gegn Fram í kvöld á Norðurálsvellinum. Hér má sjá myndasyrpu úr leiknum frá skagafrettir.is    

  • „Leikmennirnir sem við bættum við í hópinn hafa skapað aðrar víddir i okkar leik. Þeir eru með ólíka hæfileika sem við getum nýtt sem lið. Þar að auki hefur t.d. samvinna Jeppe Hansen og Stefáns Teits Þórðarsonar smollið saman í undanförnum leikjum. Ég verð einnig að hæla þeim og öllu liðinu fyrir vinnsluna sem þeir...

Loading...