Listamaðurinn Bjarni Þór Bjarnason hefur á undanförnum árum og áratugum vakið athygli og verk hans njóta vinsælda. Hlédís Sveinsdóttir var í heimsókn hjá Bjarna Þór á dögunum og var þetta innslag sýnt í þættinum Að Vestan á sjónvarpsstöðinni N4.
Skagamenn áttu ekki í teljandi vandræðum með að komast í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins í gær þegar liðið sigraði Íþróttafélag Hafnarfjarðar, 8-0. Steinar Þorsteinsson skoraði fjögur mörk í 8-0 sigri ÍA. Mörkin úr leiknum má sjá í samantekt ÍATV hér fyrir neðan. 5′ Steinar Þorsteinsson (1-0) 7′ Lárus Geir Árelíusson sjálfsmark (2-0) 11′ Ólafur Valur Valdimarsson...
Skagamaðurinn Jóhann Ársæll Atlason úr keilufélagi ÍA sló á þriðjudaginn 19 ára gamalt Íslandsmet í einum leik 1. flokki pilta þ.e. 17 til 18 ára. Jóhann fékk alls 299 stig í leik sem fram fór í 2. deild á Akranesi. Fyrra metið sem var 298 stig setti Steinþór Geirdal árið 1999 og var því metið...
Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir byrjaði vel á Lalla Meryem Cup á LET Evrópumótaröðinni í golfi. Mótið fer fram á Royal Golf Dar Es Salam vellinum í Marokkó. Mótið er hluti af sterkustu mótaröð Evrópu hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki. Íslandsmeistarinn 2017 lék á einu höggi undir pari eða 71 höggi. Hún er sem stendur í fjórða sæti...
Eins og fram hefur komið er Faxabrautin lokuð vegna niðurrifs á efnisgeymslu Sementsverksmiðjunnar. Þegar útsendari Skagafrétta var á svæðinu í morgun fór ekkert á milli mála að Faxabrautin er lokuð. Verktakinn er að undirbúa niðurrifið eins og sést á þessum myndum sem teknar voru í dag, miðvikudaginn 18. apríl. Efnisgeymslan er risamannvirki, vel á annað...
Unglingar á Akranesi sem verða í Vinnuskólanum í sumar geta glaðst yfir því að þeir fá 10% launahækkun sumarið 2018. Á fundi bæjarráðs á dögunum var samþykkt að hækka tímakaupið hjá 14-17 ára unglingum um 10%. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnuskóla Akraness verður tímakaupið í sumar með eftirfarandi hætti. 14 ára fá 550 kr. á tímann...
Góðgerðarfélagið Eynir í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi kom færandi hendi á dögunum í söfnuninni Mottumars hjá Krabbameinsfélaginu. Eynir safnaði 158.634 kr. á góðgerðasýningu sem fram fór í Bíóhöllinni á Akranesi. Það voru Eva María Jónsdóttir, Hrafnhildur Arín Sigfúsdóttir og Hjördís Brynjarsdóttir sem afhentu Krabbameinsfélaginu styrkinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Eynir færir Krabbameinsfélaginu gjöf. Félagið...
Stofnfundur stuðningsfélagsins Sterkir Skagamenn fór fram þann 11.apríl s.l. og var vel mætt á fundinn. Hugmyndin að stofnun Sterkra Skagamanna vaknaði í spjalli einstaklinga sem hafa átt sterka tenginu við fótboltann á Akranesi. Umræðan í þeim hóp snérist um hvað einstaklingarnir gætu lagt að mörkum til að styrkja það góða starf sem unnið er af...
Allar líkur eru á því að settar verði upp öryggismyndavélar eða bílnúmeramyndavélar við innkomur í Akraneskaupstað. Lögreglan á Vesturlandi lagði fram slíkt erindi á fundi bæjarráðs Akraness nýverið. Bæjarráð tók jákvætt í erindið og úrvinnsla málsins er nú í höndum bæjarstjóra Akraness. Málið verður unnið í samvinnu við sveitastjórana í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit. Hver er...
Björgunarfélag Akraness fékk í gær góðan liðsstyrk þegar átta nýliðar bættust í öfluga sveit félagsins. Nýliðarnir skrifuðu undir eiðstaf sveitarinnar og teljast nú fullgildir meðlimir. Nýliðarnir eru: Björn Óskar Andrésson, Einar Þór Guðbjartsson, Ísak Máni Sævarsson, Ólafur Þór Pétursson, Sölvi Már Hjaltason, Styrmir Þór Tómasson, Úlfheiður Embla Blöndal og Þórólfur Kristjánsson. Ein breytinga var á...